Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Side 22
Svo einföld voru þau orð. Svo auðskilin. Svo kraftmikil. Orð-in mælti Ólafur Þórðarson, þáverandi leikmaður ÍA, eftir að lið hans hafði tapað útileik sumarið 1997. Skagamenn voru ekki vanir að tapa fótboltaleikjum á þessum árum. Þeir höfðu orðið Íslandsmeistarar fimm ár í röð og bætt tveimur bikar- meistaratitlum og deildabikarmeist- aratitli við það bikarasafn á sama tíma. Skagamenn voru því vanir hinu ljúfa lífi. En hinu ljúfa lífi vill oft ljúka. Hverjar svo sem ástæðurnar eru. Stundum færist aldur yfir. Stund- um breytast að- stæður. Stund- um verðum við fyrir áföllum. Þá er spurning hvernig menn bregðast við. Menn geta gefist upp. Menn geta gert eins og Ólafur og haldið áfram að berjast, jafnvel af auknum krafti. Og menn geta farið í það far að skammast út í aðra, kenna öllum nema sjálfum sér um. Svarthöfði hefur ákveðið að gera ekkert af þessu. Svart-höfði ætlar að gera byltingu. Svarthöfði segir nei við öllum barlómi. Svarthöfði neitar að lúta í gras. Svarthöfði ætlar ósköp einfald- lega að grípa til vopna. Skærurnar við lögreglustöðina í Reykjavík voru bara upphafið. Þetta á eftir að verða miklu verra. Eða hefur enginn tekið eftir því að Íslendingar eru smátt og smátt að breytast í Frakka? Íslendingar hafa aldrei kunnað að mótmæla en það hafa Frakkar kunnað. Og nú virðumst við vera að læra þetta. Síðasta vor sýndu atvinnubílstjórar að íslenskir mótmælendur geta pirrað fólk og sett lífið úr skorðum í smástund. Und- anfarnar vikur hafa reið fórnarlömb hrunsins sýnt að það er hægt að safna Íslendingum saman á fjölmenna mót- mælafundi, viku eftir viku eftir viku. Og síðasta laugardag sýndu reiðir mótmælendur að þeir geta meira að segja gert aðsúg að lög- reglunni, ekki nóg með það heldur eru þeir reiðubúnir að brjóta sér leið inn í lög- reglustöðina. (Og þótt það hafi ekki reynst jafnauðvelt fyrir mótmælendur að brjótast inn í lög- reglustöðina og það reyndist Annþóri Karlssyni að brjótast út var það ágætis byrjun.) Nú er bara spurning hvort við viljum stíga næsta skref og grípa til vopna. Sýna að við erum jafnlangt komin á þró- unarbrautinni og Frakkar voru undir lok átjándu aldar. Segja kúgurum okkar stríð á hendur. Ráðast á Alþingi, ráðast á stjórnarráðið og ráðherrabú- staðinn. Hver ætti að stöðva okkur? Björn Bjarnason og tindátar stjórn- valda? Þegar við rísum upp sameinuð getur enginn stöðvað okkur. En kannski er ekkert sniðugt að hefja borgarastríð. Enda Svarthöfði löngum verið frið-semdarmaður. Og rólyndis- maður sem kann best við sig í góðum hægindastól með góða bók og jafnvel með annað augað á beinni útsend- ingu frá mótmælafundi á Austurvelli eða borgarafundi í Háskólabíói. Og auðvitað þætti Svarthöfða langbest að þetta gæti allt gengið nokkuð smurt fyrir sig og án allra blóðsúthellinga - sérstaklega sinna eigin. Þannig að kannski er best að við höldum bara áfram í sama farinu. Mótmælum á Austurvelli. Látum heyra í okkur á borgarafundum. Og sjáum hvort ráða- menn átti sig ekki á því að best sé að boða til kosninga áður en upp úr sýð- ur. Eða halda menn að fólk róist eftir því sem fleiri verða atvinnulausir? Föstudagur 28. nóvember 200822 Umræða Lifi byLtingin svarthöfði spurningin „Nei, nei, Hörður Torfa er ekki bylting, Hörður Torfa er Hörður Torfa og nú skulum við fara að fókusera á alvöruhluti,“ segir Kolfinna Baldvins- dóttir, skipuleggjandi mótmæla, en miklar deilur hafa verið um hvernig Hörður torfason stendur að mótmælum á austurvelli. Hefur hann meinað ákveðnu fólki að tala vegna flokkatengsla og hafa fleiri mótmæl- endur bent á að það sæmi ekki nýja Íslandi að örfáir einstaklingar stjórni því hverjir fái að tala og hvejrir ekki. Er byLtingin að éta börnin sín? sandkorn n Guðjón Friðriksson rithöf- undur virðist ekki ætla að ríða feitum hesti frá bók sinni um Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands. Þeir sem dæmt hafa bókina gefa henni falleink- unn vegna blindrar að- dáunar höf- undarins á viðfangs- efni sínu. Kolbrún Bergþórs- dóttir og Páll Baldvin Baldvinsson fjölluðu um bók- ina í Kiljunni og voru á einu máli um ókostina. Þetta hlýtur að vera Guðjóni mikið áfall og þá ekki síst vegna þess að heiður hans er undir. n Davíð Oddsson seðlabanka- stjóri heyktist á því í gær að mæta fyrir þingnefnd Ágústs Ólafs Ágústssonar og svara þingmönnum þar beint. Óljóst er hvaða afsökun seðlabanka- stjórinn hefur fyrir fjarveru sinni. En það rifjast upp fyrir mönnum að hann hefur hing- að til ekki fengist til að mæta í viðtöl nema einn og sér. Dav- íð vill aðeins drottningarvið- töl eða standa einn á sviðinu. Og þar liggur skógarkötturinn grafinn. n Grímur Atlason, fyrrverandi bæjarstjóri Bolvíkinga, lætur Agnesi Bragadóttur, blaða- mann Moggans, hafa það óþvegið á heimasíðu sinni. vísar Grímur til umfjöllunar Agnesar um Stím, sem hún kallar leynifélag Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Hannes- ar Smárasonar. „Baugsararn- ir hafa í mörg ár verið Svarti Pétur viðskiptanna á meðan Bjöggarnir eru kórdrengirn- ir. Ákveðinn armur Sjálfstæð- isflokksins er í uppáhaldi en vinstrimenn flestir hörmungin ein. Það kann að vera að Agn- es segi á stundum satt og rétt frá en það dylst engum að hún heldur með ákveðnu liði og það mengar alla hennar um- fjöllun,“ bloggar Grímur. n Jakob Valgeir Flosason, út- gerðarmaður og skattakóng- ur Vestfjarða, fær þá einkunn Agnesar Bragadóttur að vera aðeins drengur að vestan. Grímur Atla- son skerpir á skilningi hennar og bendir á að hann hefur verið einn af stærstu hluthöfunum í Ex- ista og fleiri félögum: „Fyrir- tæki hans á nær allan kvótann í Bolungarvík og er sú eign metin á marga milljarða. En Agnes hefur bara ekkert verið að fylgjast með viðskiptalíf- inu á Íslandi – hún virðist fá upplýsingar sínar úr einni átt og veit þannig lítið annað en það sem henni er skammt- að hverju sinni. Dæmigerður kranablaðamaður.“ LyngháLs 5, 110 Reykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir ritStjórar: jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010, áskriFtarsÍmi: 512 7080, auglýsingar: 515 70 50. Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Öllum kortun- um var bara lokað, þannig að ég fékk ekki einu sinni kók með matnum.“ Sæmundur Pálsson var í lúxussiglingu þegar íslenska bankakerfið hrundi. – Séð og heyrt. „Það hefur lengi verið draumur minn að spila á elliheimili.“ Finni í rokksveitinni dr. spock segir meðlimi sveitarinnar tilbúna að spila á undarlegustu stöðum. – DV „Mér finnst þú vera svalur. Það er enginn sem gæti fyllt upp í þína skó.“ Ragnar Sólberg um ragnar bjarnarson söngvara. – Fréttablaðið. „Það er sorglegt að venjulegar umræður og skoðanir séu ekki frjálsar.“ Katrín Oddsdóttir, laganemi, svarar gagnrýni samnemenda sinna í Hr. – Vísir.is „Ég myndi pottþétt fara að vinna í fiski ef þess þyrfti, án þess að hugsa mig um.“ Friðrika Geirsdóttir segir að það þýði ekkert að neita að vinna í slori þar sem fiskurinn sé það sem gefi okkur líf. – Vikan. Ógn íslensku elítunnar Leiðari Brenglun íslenskrar blaðamennsku var ein af rótum þess að þjóðfélag-ið keyrði í þrot. Fjölmiðlar stýrðust af hagsmunum stjórnvalda á kostnað sann- leikans. Myndband G. Péturs Matthíassonar, fyrrverandi fréttamanns RÚV, af dónaskap og andlegu ofbeldi forsætisráðherra í viðtali, er hrópandi dæmi um að fjölmiðlar stund- uðu markvisst að fegra ímynd ráðamanna. Hliðverðir fjölmiðla hafa skipulega rit- skoðað ógeðfellda framkomu valdafólks í þjóðfélaginu. Margir valdamenn viðhafa hótanir, hrokafull svör og rakinn dónaskap, án þess að almenningur viti af því. Þetta hef- ur verið klippt út úr myndböndum og fal- ið almenningi vegna brenglaðra hugmynda um að blaðamenn eigi að fegra ímynd ráða- manna. Stjórum sumra fjölmiðla virðist vera sama um að fólk hafi almennt gríðarlegan áhuga á að vita hvort ráðamenn hafi á sér þessar hliðar og að það geti skipt sköpum í kosningum. Á undanförnum mánuðum hefur þetta verið að breytast, með háværri kröfu reiðs fólks sem vill vita sannleikann óritskoðaðan. Viðbrögð elítunnar í þjóðfélaginu eru jafnan að saka fjölmiðla um „æsifréttamennsku“. Í þroskuðum lýðræðisríkjum komast stjórn- málamenn ekki upp með slíkar innantómar upphrópanir, þeir eru látnir svara efninu og segja af sér ef tilefni er til. Helga Lára Haarde, dóttir forsætisráð- herra, skrifaði nýlega á vef ungra sjálf- stæðismanna almennar og órökstuddar ásakanir í garð íslenskra fjölmiðlamanna. Helga Lára hneykslast á því að fjölmiðla- menn „grilli“ stjórnmálamenn. Henni þyk- ir einnig einkennilegt að fjölmiðlar skyldu hafa sagt frá því að mótmælendur við lög- reglustöðina á Hverfisgötu hefðu verið beittir piparúða, og bætir við þeirri rang- færslu að þeir hefðu verið sagðir saklausir í fjölmiðlum. Mögulega hefur hún meiri vel- þóknun á lýsingu Morgunblaðsins á upp- þotunum 1949: „Trylltur skríll ræðst á Al- þingi.“ Einhverjir mikilvægustu hagsmun- ir ráðamanna eru að fjölmiðlar nái ekki að gefa almenningi upplýsingar um mis- gjörðir þeirra. Það er þeim í hag að rit- skoða, veikja trúverðugleika fjölmiðla og koma í veg fyrir kosningar. Á móti er það lýðræðinu og almenningi nauðsynlegt að sem flestar upplýsingar komist upp á yf- irborðið með öllum tiltækum ráðum. Ís- lenska elítan mun halda áfram að ráðast gegn fjölmiðlum opinberlega. Hún mun halda áfram að hóta fjölmiðlamönnum á laun sem segja allan sannleikann. Hún mun beita gríðarlegum áhrifum sínum til að útiloka öfluga gagnrýnendur frá fjöl- miðlum. Hún mun reyna allt og þess vegna verðum við öll að hafa augun opin. Elíta valdaflokks Íslands hefur plantað meðlimum sínum í helstu stofnanir lands- ins og stærstu fjölmiðlana. Meðlimir elít- unnar hafa stjórnað stærsta dagblaðinu, haft ítök í frísjónvarpi, átt ritstjóra á stærsta fríblaðinu og þau réðu útvarpsstjórann sem réðst gegn G. Pétri fyrir að segja sannleik- ann. En þau eiga ekki DV, ekki fréttastofu Stöðvar 2 og ekki Útvarp Sögu. Jón trausti rEynisson ritstJóri skrifar. Elíta valdaflokks Íslands hefur plantað meðlimum sínum í helstu stofnanir landsins og stærstu fjölmiðlana. bókstafLega
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.