Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 5

Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 5
5 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 1960–1961 og síðar við rannsóknir í Cambridge- háskóla árin 1970 og 1979. Áherslur Þorleifs í háskólanáminu voru á almenna jarðfræði, jarðlagafræði og jarðsögu og þá sérstak- lega gróðurfars- og veðurfarssögu. Skömmu eftir að hann kom til háskólanáms var hann búinn að ákveða hvað hann ætlaði að taka fyrir sem doktors- verkefni, þ.e.a.s. veður- og gróðurfarssögu Íslands, en það var ekki vani manna að taka ákvarðanir um slíkt fyrr en langt var liðið á háskólanámið. Það varð til þess, ásamt öðru, að hann flutti sig á milli háskóla í leit að réttum leiðbeinanda og læriföður á þessu sviði. Á námsárunum las Þorleifur allt sem hann kom höndum yfir og skrifað hafði verið um íslenska jarð- fræði, að því er hann sagði mér eitt sinn, enda var þekking hans á íslenskum jarðfræðilitteratúr mjög víðfeðm. Þá las Þorleifur annála og annað ritað efni með það að leiðarljósi að öðlast betri yfirsýn á atburðum í mótun lands á sögulegum tíma. Þetta var ekki hluti af skilgreindu háskólanámsefni en varð honum síðar gagnleg vitneskja á ýmsan máta í starfi. Þetta sýndi líka brennandi áhuga hans á jarð- fræðilegri þekkingu almennt og sérstakan áhuga hans á þætti föðurlandsins í því samhengi. Þetta tvennt varð enda lífsviðfangsefni hans. Aðallærifaðir Þorleifs á lokaskeiði námsins var Dr. Martin Schwarzbach, prófessor og sérfræðingur í fornveðurfræði við Kölnarháskóla. Hann kom oft til Íslands til rannsókna og skrifaði mikið um jarð- sögu og fornveðurfar Íslands. Þeir voru aldavinir upp frá því. Þorleifur var Alexander von Humbolt-styrkþegi við doktorsnám sitt árin 1959 og 1960. Starfssvið Við heimkomuna árið 1961 réðst Þorleifur til rannsóknastarfa við Iðnaðardeild Atvinnudeildar Háskólans, þar sem hann var til 1965 og síðan í framhaldi af því við Rannsóknastofnun iðnaðarins 1965–1968, í kjölfar endurskipulagningar á rann- sóknastofnunum ríkisins, þeim er tengdust atvinnu- vegum landsmanna. Hann var síðan sérfræð- ingur við Raunvísindastofnun Háskólans 1968, er Atvinnudeildin flutti af lóð Háskólans. Eftir það var starfsvettvangur hans alla tíð Háskóli Íslands. Íþróttaiðkun Þorleifur var félagi í Íþróttafélagi Reykjavíkur (ÍR), spilaði með því félagi handbolta á yngri árum og varð síðar virkur í stjórn þess. Í röðum jarðfræð- inga hafa jafnan gengið þjóðsagnakenndar sögur af handknattleiksferli Þorleifs, en erfitt hefur reynst að fá staðfestingu þeirra. Nær ekkert er um þetta skráð en langt um liðið. Félagar hans frá þessum árum muna þó sitthvað og ber saman um það sem þeir hafa sagt. Þorleifur var góður handboltamaður, kappsamur, duglegur, útsjónarsamur og fylginn sér, taktískur leikmaður og skynsamur. Í leik var hann jafnvígur í sókn og vörn. Hann var kannski ekki stjarnan í hverjum leik en hins vegar var hann jafnan driffjöðrin. Bæði utan vallar og innan var hann fyrirliði og spilaði yfirleitt þá stöðu sem nú kallast leikstjórnandi. Hann átti heima í Langholt- inu og að heiman var stutt í það fræga íþróttahús Hálogaland og þangað teymdi hann strákana úr nágrenni sínu á ungum aldri og stýrði þá yfirleitt æfingum og leikjum. Þannig gekk þetta öll mennta- skólaárin hér heima. Þorleifur lék þá og keppti í mótum sem haldin voru og var jafnvel formaður handknattleiksdeildarinnar ÍR og þjálfari. Hann var landsliðsmaður í handboltanum, spilaði svo vitað sé með vissu í þriðja landsleik sem Íslend- ingar háðu, og var það líklega fyrsti landsleikurinn hér heima. Hann fór fram árið 1950, á móti Finnum, og endaði með sanngjörnu jafntefli. Þessi leikur fór fram á Melavellinum, malarvelli sem stóð þar sem nú er Þjóðarbókhlaðan. Í Tímanum voru leikmenn kynntir að morgni leikdagsins og þar er þetta sagt um Þorleif: „Þorleifur Einarsson (ÍR) er hægri fram- herji. Hann er yngstur í liðinu aðeins 18 ára. Þor- leifur hefir góða knattmeðferð en hefir litla reynslu og mun val hans verða gagnrýnt.“ Hann hélt áfram handboltaiðkun á háskólaárunum í Þýskalandi. Þar spilaði hann m.a. með Hassloch en einnig öðrum liðum. Einhverju sinni varð félag hans, líklega Tüb- ingen, Þýskalandsmeistari undir liðstjórn hans. En hann stundaði einnig handboltaþjálfun í Þýskalandi og ferðaðist þá töluvert um landið í þeim erindum, til keppni o.fl. Hann er því líklega fyrsti Íslendingur- inn sem spilaði með þýsku handboltaliði og hann er vafalítið fyrsti Íslendingurinn sem stundaði þjálfun í þýska handboltanum. Handboltaþjálfun hans kom íslenskum námsfélögum hans líka að gagni, þótt þeir væru ekki í boltanum, og lýsir það vel útsjón- arsemi Þorleifs og því hve hann var traustur félagi. Fyrir handboltaiðkunina, líklega fyrst og fremst þjálfunarstörf sín, fékk hann einhver laun, en þau lagði hann á banka og „geymdi til mögru áranna“. Það var á þessum árum nánast regla að peningar, námslán og annað fé barst seint og illa til Þýska- lands svo að stúdentar voru oft orðnir harla blankir á þeim árstímum þegar von var peningasendinga að heiman. Þegar að þeim árstímum kom hélt Þorleifur fund með félögum sínum og reddaði fjármálum þeirra með þjálfaralaunum sínum. Eftir heimkom- una lifði enn í Hálogalandsglæðunum, en tiltölu- lega fljótlega eftir heimkomuna mun hafa dregið úr handboltaiðkun hans. Þar með sagði hann þó ekki skilið við boltann. Áfram var hann áhrifamaður í ÍR og einnig hafði hann dómararéttindi, stundaði eitthvað dómgæslu og þjálfði meistaraflokk ÍR með
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.