Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 9

Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 9
9 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags hefur jarðfræðibók Þorleifs því ekki átt keppinauta sem aðalnámsefni í jarðfræðí í framhaldsskólakerf- inu, þ.e. ekki fyrr en með bókum Jóhanns Ísaks og Jóns Gauta á allra síðustu árum, þau rit hafa þó ekki náð útbreiðslu meðal almennings og eru aðeins notuð til kennslu. Bók Þorleifs er enn notuð í kennslu við ákveðna menntaskóla. Jarðfræði Þorleifs hefur því verið í notkun í 43 ár sem ber vitni um gæði bókarinnar. Enda hefur þessi kennslubók, bæði sem Saga bergs og lands og síðan Myndun og mótun lands, almennt gengið undir nafn- inu Þorleifsbiblía. Lítilsmetnum bókum er ekki líkt við Biblíuna. Alls hefur Þorleifsbiblía komið út í yfir 28 þúsund eintökum. Þegar Saga bergs og lands kom út barðist útgáfu- fyrirtækið Mál og menning í bökkum og var nán- ast undir hamrinum. En með útkomu jarðfræði- bókar Þorleifs brá svo við að fyrirtækið tók að rétta úr kútnum, síðan að blómstra og varð loks öflugasta bókaútgáfa landsins í nokkra áratugi. Að því máli kom Þorleifur á öðrum vettvangi, eins og áður var rakið, en sagan segir að jarðfræðibók hans hafi bjargað Máli og menningu frá gjaldþroti, enda seldist hún á fyrsta ári í upp undir 6.000 eintökum. Bókin var mest selda íslenska bókin í jólabókaflóð- inu 1968 og sló m.a. út spennusögu Alistair Maclean. Þannig seljast ekki nema örfáir metsöluhöfundar hér á landi. Hvað olli þessum vinsældum bókarinnar? Ekki fjölgun nemenda í framhaldsskólum, heldur hungur fólks eftir betri og meiri þekkingu um landið, hungur sem loksins var svalað með frábærri bók. Aðeins þeir sem höfðu haft hina gömlu Jarðfræði Guðmundar G. Bárðarsonar að námsefni, með fullri virðingu fyrir henni, og upplifðu svo Sögu bergs og lands haustið 1968 geta gert sér fulla grein fyrir þeirri byltingu sem Saga bergs og lands var, hvílík uppljómun fylgdi henni fyrir áhugafólk um náttúru Íslands og jarðfræði almennt. Bókin fékk lofsamleg ummæli í tveimur ritdómum, öðrum eftir Örnólf Thorlacius líffræðing og hinum eftir Sigurð Þórarinsson jarðfræðing. Auk þess fékk málfar hennar sérlegt lof frá sjálfu Nóbelsskáldinu. Þess má líka geta að metsölurithöfundurinn og sjónvarpsþáttagerðarmaðurinn Michael Crichton, sem hér á landi er líklega frægastur fyrir vinsæla framhaldsþætti sína, Bráðavaktina, og kvikmynd- ina Jurassic Park, segir í bók sinni State of Fear (2004), þar sem hann vitnar í ensku útgáfuna af Myndun og mótun lands: „Surely one of the clearest geology text- books ever written“. Þetta eru engin smáummæli og það í metsölubók. Helsta gagnrýnin sem jarðfræðibók Þorleifs fékk laut að landreki. Ýmsir fundu henni það til for- áttu að þar væri lítið gert úr þætti landreks í þróun jarðar, sem vissulega er rétt. Þeir töldu þá gjarnan að Þorleifur væri andstæðingur landrekshugmynd- arinnar. Það er hins vegar ekki rétt eins og allir þeir sem sátu tíma í jarðsögu vita. Hann var spurður út í landrek í blaðaviðtali skömmu eftir að bókin kom út: „Hefur landrekskenningin aftur rutt sér til rúms?“ Svar hans var á þessa leið: „Já, og nú eru þeir taldir gamaldags, sem malda í móinn.“ Landrek var aldrei rauður þráður í ræðu eða ritum Þorleifs um jarðfræði enda fannst honum að ekki hefði verið útskýrt hvernig flestir þættir innrænnar jarðfræði og langtímaþróunar jarðar koma saman í landreki og mynda skiljanlegt og heildstætt samhengi. En Þor- leifur mótmælti ekki þeirri hugmynd að landrek ætti sér stað, enda átti lega meginlanda og hvernig jaðrar þeirra falla saman og Heklugosið 1947 mestan þátt í að vekja áhuga hans á jarðfræði þegar hann var barn að aldri. Þessi orðrómur um landreksandúð Þorleifs loddi alla tíð við hann og stundum hefur mér dottið í hug að þar eigi kannski eðlislæg stríðni hans ein- hvern hlut að máli – hann hafi hreinlega ekki viljað reka þetta orð af sér. Engu að síður kenndi Þorleifur ávallt kenningar Alfreds Wegeners, og síðar kenn- ingar um botnskrið, enda Pangea og dreifing forn- meginlanda mikilvægt innlegg í fornveðurfræði. Útgáfusaga jarðfræðibókar Þorleifs er í stuttu máli eftirfarandi: Fyrst kom út Jarðfræði – saga bergs og lands árið 1968. Stytt útgáfa undir einfalda nafn- inu Jarðfræði kom út í alls 5 útgáfum, fyrst 1971, en síðan leiðrétt en nær óbreytt í annarri útgáfu árið 1973. Þriðja útgáfa, nokkuð breytt, kom 1978 og fjórða útgáfa, leiðrétt en lítt breytt, árið 1980. Loks kom fimmta útgáfa nokkuð breytt árið 1985. Loka- gerð bókarinnar kom svo undir nafninu Myndun og mótun lands – jarðfræði árið 1991 og hefur hún verið endurprentuð fjórum sinnum síðan. Þá kom út bæði ensk og þýsk þýðing hennar árið 1994, þýðendur Þorleifur með myndavélina frægu (Leica IIIg frá 1954) sem var kveikjan að fyrirsögnum að viðtölum við hann í Þjóðviljanum árið 1985: „Sjö eldgosavélin“ og „Hún hefur séð margt, þessi myndavél“. Ljósm. Þjóðviljinn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.