Náttúrufræðingurinn - 2012, Síða 10
Náttúrufræðingurinn
10
Georg Douglas á ensku og Lúðvík E. Gústafsson
á þýsku. Enska útgáfan hefur verið endurprentuð
tvisvar, síðast árið 2005 og seldist samstundis upp.
Enn er mikil eftirspurn eftir þessum bókum á þýsku
og ensku á netinu enda er bókin afar vel skrifuð og
vönduð. Nú er verið að huga að endurútgáfu þess-
ara merku bóka enda næg eftirspurn fyrir hendi,
ekki síst með vaxandi fjölda ferðamanna.
Sitthvað um framlag Þorleifs
Seint verður einróma samkomulag um það hvert
sé merkilegasta framlag Þorleifs til þekkingarauka
í jarðfræði. Ef litið er á þetta á heimsvísu eru rann-
sóknir hans á jarðlögunum á Tjörnesi ofarlega ef
ekki efst á blaði. Þetta er fyrst og fremst vegna þeirra
möguleika til túlkunar sem fólgnir eru í hugmynd-
inni um að Beringssund hafi ýmist verið opið eða
lokað á ísöld, eftir því hvort ríkti hlýskeið eða kulda-
skeið, hvort jöklar lágu á Beringíu eða ekki og hvort
lágt stóð í heimshöfunum eða ekki. Þetta býður
upp á fjölþætta túlkun á ferðum bæði land- og
sjávardýra. Tilkoma Kyrrahafsfánunnar í setlögum
á Tjörnesi áður en ísöld skall á er lykilatriði í þessu
samhengi og opnar farveg fyrir hugleiðingar um
áhrif breytinga í landaskipan á lífríkið. Bandarískir
jarðfræðingar bentu á þessar fánubreytingar í Tjör-
neslögum, en Þorleifur reyndi að útskýra hvenær
þetta ferðalag lífvera til nýrra heimkynna hafði átt
sér stað. Enn skemmtilegri getgátur um landnám
manna í Ameríku og ferðir annarra stórra spendýra
á milli álfanna hefðu verið mögulegar í þessu ljósi
og á þessum tíma, en hafa að því er ég best veit ekki
enn átt sér stað með tilvísun í þá mynd sem rann-
sóknir Þorleifs kölluðu fram, mynd af breytilegum
aðstæðum. Innan Tjörnesrannsóknanna eru einnig
brautryðjandaverk í segulmælingum berglaga sem
skipa veglegan sess.
Annar þáttur sem snertir hnattræna jarðfræðilega
þekkingu eru rannsóknir Þorleifs á veður- og gróður-
farssögu ísaldarloka og nútíma. Sú vinna varð
honum efni í doktorsritgerð, en eins og fyrr sagði
ákvað hann strax í upphafi háskólanáms síns að
hefja rannsóknir á þessu sviði og leggja niðurstöður
þeirra fram til doktorsprófs. Hér má afla fanga á
marga vegu og flétta marga þætti jarðfræðinnar
saman, og það gerði Þorleifur þegar frá leið, en til
doktorsprófsins gerði hann einkum grein fyrir gróð-
urfarssögu landsins byggða á frjógreiningu. Niður-
stöður Þorleifs hafa staðist mjög vel tímans tönn þótt
að sjálfsögðu hafi myndin skýrst og orðið fullkomn-
ari með nýrri tækni og fjölgun náttúruvísindamanna.
Þannig hefur skipting hans á síðjökul- og nútíma í
afmörkuð skeið, byggt á breytingum í gróður- og
veðurfari, staðið óbreytt.
Í greinargerð Þorleifs um jarðfræði Tungnafells-
svæðisins (1965) kemur fram skýring hans á því að
skálögótt gosberg myndist þegar hraun streymir út í
stöðuvatn eða árfarvegi. Líklega er þetta fyrsta grein-
argerð um storkuberg og mismunandi byggingar-
einkenni þess, a.m.k. hér á landi þar sem byggingar-
einkenni eru notuð til túlkunar á myndun ákveðinna
gerða gosbergs. Þorleifur segir: „Af jarðfræðiathug-
unum í Hvítárgljúfri og ritgerðum um þær er helzt
að geta bergfræðilegra ritgerða eftir Skotann M.
Peacock (The Petrology of Iceland. I. The basic Tuffs.
Trans. Roy. Soc. Edinburgh, I, 1926), en hún fjallar
einkum um móbergsmyndun undir jökli. Hann taldi
„móberg“, þ.e. skálagaða breksíu og bólstraberg undir
efstu basaltlögunum í veggjum Hvítárgljúfurs við
Gullfoss, vera myndað við gos undir jökli. Rann-
sóknir, sem hér getur á eftir, sýna að þetta móberg
hefur ekki orðið til við gos undir jökli, heldur er hér
um hraun að ræða, sem rann og storknaði í árfarvegi
eða stöðuvatni.“ Síðar í greinargerðinni segir Þor-
leifur svo: „Ofan á setlaginu SC við Gullfoss, vestan
ár, liggur breksía og bólstraberg, sem teljast verður
neðsti hluti Hólalaganna. Breksían er skálögótt líkt
og straumvatnaset og hefur sennilega myndazt, er
hraun rann út í grunnt stöðuvatn eða eftir árfarvegi
og fyllti hann. Skálögun breksíunnar hallar til suð-
vesturs, svo líklega hefur hraunið á þessum stað
runnið til suðvesturs. Ofan á breksíuna kemur bólstr-
ótt berg, sem gengur síðan yfir í beltuð hraunlög.“
Síðan þetta var ritað hefur mér vitanlega skálögótt
hraungrýti, hvaða mynd sem það hefur, jafnan verið
túlkað sem runnið í vatn eða sjó.
Í ritgerðum Þorleifs um jarðfræði Hellisheiðar
(1960 og 1961) má segja að fyrst fáist heildarmynd
af einkennandi uppbyggingu móbergsfjalla. Heil-
mikið hafði safnast í sarpinn um breytilegar ásýndir
gosmóbergs, en heildarmynd af uppbyggingarferl-
Þorleifur (fremst til hægri) í Vestmannaeyjum ásamt, talið frá
vinstri, Guðlaugi Gíslasyni alþingismanni, Kristjáni Eldjárn
forseta, Hauki Claessen varaflugmálastjóra og Magnúsi Magn-
ússyni bæjarstjóra. Eldfell í baksýn. Ljósm.: Sigurgeir 1973.