Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2012, Síða 13

Náttúrufræðingurinn - 2012, Síða 13
13 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Leifur A. Símonarson og Jón Eiríksson Á milli hraunlaga í íslensku blágrýtismynduninni eru víða misþykk set- lög úr leirsteini, siltsteini, sandsteini eða völubergi og eru þau vatna- eða árset að uppruna. Hins vegar eru rauðleit, leirborin silt- og sandsteinslög að mestu leyti mynduð úr fornum jarðvegi mun algengari. Efnaveðrun hefur losað um járn í lögunum og litað þau rauð og víða eru forn gjósku- lög í þeim. Í setlögunum hafa víða fundist leifar plantna sem lifðu hér á landi á meðan blágrýtismyndunin hlóðst upp. Hér er reynt að rekja helstu breytingar sem urðu á íslenskum plöntusamfélögum samtímis hægfara kólnun á síðari hluta nýlífsaldar. Á Tjörnesi eru þrjár aðalsetlagasyrpur; elst og syðst eru Tjörneslög, þá koma setlög í Furuvík og yngst eru set- lögin í Breiðuvík. Í krókskeljalögunum, yngsta lífbelti Tjörneslaga, hafa fundist allmargar tegundir sjávardýra sem virðast ættaðar úr Kyrrahafi; því er talið að miklir sædýraflutningar hafi átt sér stað úr Kyrrahafi yfir í Atlantshaf þegar þessi hluti Tjörneslaga myndaðist. Hefur það verið sett í samband við lokun Panamasunds (Central American Seaway) fyrir um 3,6 milljónum ára, en þá breyttust yfirborðsstraumar í Norður-Kyrrahafi þannig að mun sterkari straumur varð norður á bóginn í átt að Berings- sundi og út úr sundinu, yfir í Íshafið og áfram í átt til Norður-Atlantshafs og þá suður á bóginn. Talið er að Tjörnes hafi verið einn af fyrstu viðkomu- stöðum þessara tegunda í Atlantshafi. Jarðlög frá ísöld eru frábrugðin jarðlögum blágrýtismyndunarinnar að því leyti að þau bera þess oftast merki að jöklar hafi haft áhrif á myndun þeirra. Setlög frá ísöld eru af mismunandi uppruna, en talsvert hefur fund- ist í þeim af leifum hryggleysingja, einkum í vatna- og sjávarseti. Náttúrufræðingurinn 82 (1–4), bls. 13–25, 2012 Ritrýnd grein Steingervingar og setlög á Íslandi Inngangur Jarðsaga Íslands mótast af eldsum- brotum, hraunrennsli og gjóskufalli. Elstu jarðlög á landinu eru talin til íslensku blágrýtismyndunarinnar frá seinni hluta nýlífsaldar (tertíer- tímabili) og hefur upphleðslu hennar lokið fyrir um það bil 2,6 milljónum ára. Blágrýtismyndunin nær aðallega yfir tvö svæði, ann- ars vegar Vestur- og Norðurland frá Hvalfirði til Bárðardals og hins vegar Austurland frá Þistilfirði til Skeiðarársands. Nú á tímum skilja virk gosbelti þessar myndanir að, en jarðlögunum hallar yfirleitt inn að miðju landsins í átt að gosbelt- unum. Því mun elsta berg á land- inu vera á norðvestanverðum Vest- fjörðum og austast á Austfjörðum. Gera má ráð fyrir að enn eldra berg sé varðveitt undir sjávarmáli. Íslenska blágrýtið er talið myndað eftir að rek og gosvirkni færðist frá Ægishrygg og vestur á Kolbeins- eyjarhrygg fyrir um 27 milljónum ára.1 Blágrýtismyndunin íslenska er að mestu úr hraunlögum, einkum blágrýti, og hefur meginhlutinn hlaðist upp í sprungugosum, sem skilja sjaldan eftir sig vel varð- veittar eldstöðvar. Aðfærsluæðar þeirra eru hins vegar vel þekktar sem gangar er skerast í gegnum lögin. Dyngjur sjást hins vegar hér og þar og eldkeilur og eldhryggir hafa víða varðveist sem svonefndar megineldstöðvar, en allmargar slíkar fornar eldstöðvar hafa fundist í blá- grýtismynduninni báðum megin við gosbeltið. Frumkortlagning og aldursgrein- ingar á íslensku blágrýtismyndun- inni hafa leitt í ljós að yfirleitt líða fimm til tíu þúsund ár á milli þess að hraun rennur á tilteknu myndunar- svæði.2 Myndun einstakra hraun- og gjóskulaga tekur því einungis nokkur augnablik, þegar litið er til þess langa tíma sem það tók að byggja upp jarðlagastaflann. Í ljós þess hvernig setlög myndast og varðveitast á Íslandi í dag er ekki erf- itt að sjá fyrir sér uppruna sets sem varðveitt er í íslenska hraunlagastafl- anum. Þetta skýrist af því að ríkjandi myndunarferli eru þau sömu nú og þá. Í fyrndinni, alveg eins og á okkar dögum, hefur landslagið mótast af höggun og eldvirkni á gosbeltum en af rofi og setmyndun utan þeirra. Öskufall á nokkurra ára fresti hefur stuðlað að hraðri jarðvegsmyndun og auðveldað gróðri að ná fótfestu. Þessa sjást greinileg merki í víðáttu- miklum, rauðum setlögum í hraun- lagastaflanum, en í þeim er víða töluvert af stöngul- og blaðförum og koluðum plöntuleifum. Bendir það til þess að einkum sé um fornan jarðveg að ræða, en þessi fornu jarðvegslög eru ekki einu setlögin sem varðveist hafa. Meginhluta þess tíma sem landið hefur verið að hlað- ast upp ofan sjávarmáls hefur það verið eyja í Norður-Atlantshafi og veðurfar líklega tiltölulega rakt og vindasamt, dæmigert eyjaloftslag.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.