Náttúrufræðingurinn - 2012, Side 20
Náttúrufræðingurinn
20
straumur varð norður á bóginn í
átt að Beringssundi og út sundið
yfir í Íshafið. Straumurinn tók með
sér allmikið af tegundum sem lifðu
norðarlega í Kyrrahafi og flutti þær
yfir í Íshafið, en síðan bárust þær
áfram í átt til Norður-Atlantshafs
og þá suður á bóginn. Talið er að
Tjörnes hafi verið einn af fyrstu við-
komustöðum þessara tegunda í Atl-
antshafi. Þessi straumabreyting er
talin hafa styrkt Golfstrauminn úr
Karíbahafi, en samtímis urðu til eða
styrktust kaldir straumar úr Íshafinu,
bæði Labradorstraumur og Austur-
Grænlandsstraumur. Straumakerfið,
eins og við þekkjum það umhverfis
Ísland á okkar dögum, hefur því lík-
lega komist á um þetta leyti.28 Dreif-
ing svipuþörunga í Tjörneslögunum
bendir til þess að mörk krókskelja-
og tígulskeljalaga séu ívið eldri en
hingað til hefur verið talið.32
Sjávarhiti virðst hafa farið lækk-
andi meðan neðstu lög í krókskelja-
lögum voru að myndast og fór lík-
lega niður í 6°C um miðbik þeirra.
Hann hækkaði síðan um 2–3°C,
lækkaði þá aftur niður í 6°C, en
hækkaði að lokum hægt og sígandi
og var um 12°C þegar efstu lögin
mynduðust.29
Í Furuvík hvíla setlög á Hösk-
uldsvíkurbasaltinu. Þar hafa aðeins
fundist fáein skeljabrot sem benda til
sjávarsets. Í Furuvík eru hins vegar
tvö jökulbergslög og eru þau elstu
menjar um jökul á nesinu. Neðra
lagið er talið vera um 2,5 milljón ára
gamalt.31,34 Hraunlög og setlög sem
hvíla á efra jökulbergslaginu má
rekja norður í Breiðuvík.
Í Breiðuvík er um 125 m þykk
setlagasyrpa, mynduð til skiptis úr
jökulbergi, óseyrarlögum, vatnaseti
og sjávarseti með sædýraleifum,
einkum götungum, krabbadýrum
og lindýrum.35,36 Á milli jökulbergs-
laga er víða sjávarset og hraunlög á
stöku stað, hvort tveggja myndað
á hlýskeiðum ísaldar. Sædýrafánan
í setlögunum í Breiðuvík er líkari
nútímafánunni hér við land en fán-
unni í eldri Tjörneslögum. Flestar
tegundirnar lifa nú hér við land,
nema samlokutegundirnar Chlamys
breidavikensis og Cyrtodaria angusta,
en sú síðarnefnda finnst einnig í
Tjörneslögunum.36 Þessar tegundir
eru nú taldar útdauðar. Annars eru
flestar kulvísu tegundirnar í Tjör-
neslögunum horfnar, en hins vegar
hefur jökultodda (Portlandia arctica)
fundist á a.m.k. þremur stöðum í
setlögunum í Breiðuvík. Tegund
þessi er óþekkt í eldri setlögum
hér á landi og lifir nú í köldum sjó
norður í höfum, t.d við Austur-
Grænland.37 Fyrst kemur hún í ljós í
Hörgamynduninni vestast í Breiðu-
vík, en sú myndun er líklega um það
bil 2,15 milljón ára gömul. Þar hefur
hún lifað ásamt öðrum tegundum
sem þoldu bæði lágan sjávarhita og
ísaltan sjó við jökuljaðarinn, þegar
sjór gekk inn yfir dauðíslandslag
og sjávarset settist í lægðir á milli
malarkeilna, sem nú mynda m.a.
Rakkadalsbjarg og Beitarhúsastapa
(8. mynd). Annað slagið hafa malar-
tungur skriðið frá malarkeilunum
út í eðjóttar lægðirnar og hrifið með
sér fánu sem lifði utan í malarkeil-
unum, en hún er töluvert frábrugðin
eðjubotnsfánunni.
Tjörnes liggur á mörkum rekáss-
ins um Öxarfjörð og þverbrotabeltis-
ins sem tengir það við Kolbeinseyjar-
hrygg.28 Skaginn hefur lyfst upp
miðað við landið sunnan Húsavík-
ursiggengisins og í Öxarfirði, og
nemur afstæð lyfting meira en 1.000
metrum frá því að Tjörneslögin tóku
að setjast til í flóa sem var opinn
í norður. Höggunarsaga Tjörness
hefst á langvarandi landsigi, en land
8. mynd. Setlög í austurhluta Breiðuvíkur á Tjörnesi. Lagskipt sjávarset með skeldýraleifum hefur sest í dældir á milli malarkeilna, sem
mynduðust þegar ísa leysti í lok jökulskeiðs fyrir um það bil 2,15 milljónum ára. Í sjávarsetinu eru elstu menjar um jökultoddu í íslenskum
setlögum. – Sediments in Breiðavík, Tjörnes, North Iceland. Fossiliferous marine sediments occupy basins between kame deposits from a
deglaciation phase at about 2.15 Ma. Among the observed fossils are the oldest Portlandia arctica specimens found in Iceland.