Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2012, Side 23

Náttúrufræðingurinn - 2012, Side 23
23 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags baka og skildi eftir sig dældina þar sem nú er Jökulsárlón. Yfirleitt eru setlög frá nútíma lítt samanlímd og ekki tiltakanlega hörð. Snemma á nútíma, fyrir 10–9 þús- und árum, virðist birki hafa vaxið víða á Norðurlandi, en ekki er ljóst hvort það óx þá sunnanlands. Þetta gæti bent til þess að hluti íslensku flórunnar hafi lifað af harðindi síð- asta jökulskeiðs á jökulskerjum á Norðurlandi.42 Á birkiskeiðinu fyrra, fyrir um 9.000 árum, breiddist birki allhratt út og virðist meginhluti lág- lendisins fljótlega hafa klæðst birki- skógi eða birkikjarri, eins og sjá má af frjórannsóknum og lurkalögum í mýrum.47,48,49 Þá hefur meðalárshiti verið um það bil 2°C hærri en nú er og eitthvað minni úrkoma. Fyrir um 6.500 árum jókst úrkoman og mýrar urðu útbreiddar á láglendi á mýra- skeiðinu fyrra. Meðalárshiti hefur þó verið lítið eitt hærri en nú er, því að þá var svarðmosi frekar algengur og gróbær, en það er hann tæplega lengur hér á landi. Á birkiskeiðinu síðara, fyrir 5.000 árum, dró heldur úr úrkomu og birki breiddist aftur út. Þá mun landið hafa verið fullrisið eftir að fargi ísaldarjökulsins létti. Einu menjar um hærri sjávarstöðu frá þessum tíma eru nákuðungs- lögin, en þau eru einkum þekkt við Húnaflóa annars vegar og á Eyrar- bakka og Stokkseyri hins vegar.50 Hæstu sjávarmörk virðast hafa verið í 5 m hæð yfir sjó og eru þau um það bil 5.000 ára gömul. Lögin virðast mynduð við sjávarborðs- hækkun vegna aukinnar bráðnunar jökla um miðbik og á seinni hluta nútíma. Við Bæjará í Hrútafirði má sjá fleiri malarkamba, hvern neðan við annan, og hefur áflæði sjávar greinilega gengið til baka í þrepum. Sjávarborðið tók að lækka á ný fyrir um 3.000 árum. Fánan í nákuðungs- lögunum er dæmigerð strandfána og eru doppur og nákuðungur einkennisdýr þeirra (10. mynd).50 Nákuðungs varð fyrst vart á ný við norðurströndina upp úr 1920 og virðist því sem sjávarhiti hafi verið nokkru hærri á myndunartíma nák- uðungslaganna en hann var á síð- ustu öldum og þá svipaður og nú er. Birkiskógar eyddust enn frekar upp úr landnámi, grös urðu útbreidd- ari og plöntutegundir sem fylgdu manninum skutu upp kollinum. Í kjölfarið fylgdi jarðvegseyðing af völdum vatns og vinda samhliða búsetu og versnandi veðurfari. Á síðustu árum hefur birst fjöldi greina um umhverfisbreytingar á Íslandi og í hafinu umhverfis landið á síðjökultíma og nútíma. Steingerv- ingar hafa komið þar mjög við sögu, til dæmis skordýraleifar í stöðu- vatnarannsóknum51 og götungar,52 kokkólítar53 og kísilþörungar54 í sjávarseti. Gjóskulög og geislakols- greiningar hafa verið notaðar til að tengja saman gögn frá hafi og landi55 og fjölbreytilegra gagna um setlög í stöðuvötnum hefur verið aflað.56 10. mynd. Þykkustu samfelldu skeljalög á Íslandi. Skeljalögin eru frá seinni hluta nútíma, 2.700–2.200 ára gömul, og hafa skeljarnar líklegast safnast saman í lóni þar sem nú er Stokkseyri. Lögin eru skáskorin af áberandi roffleti, en eftir að hann myndaðist hefur skelja- söfnun haldið áfram. Efst eru allt að eins metra djúpar rofrennur fylltar af jarðvegi. – The thickest, continuous shell layers in Iceland, formed in a lagoon during a transgression 2.7 to 2.2 thousand years ago at Stokkseyri, South Iceland. A distinct erosional contact is visible under the pebbly layer and a deep erosional channel filled up with sand mixed with soil. 9. mynd. Lífför í setlögum frá ísaldarlokum í Hvalvík á Sléttu. Förin eru greinilega dvalar- för eftir samlokur, einkum smyrsling (Mya truncata). – Lateglacial ichnofossils of domich- nia type formed by the burrowing bivalve Mya truncata from Hvalvík, Melrakkaslétta, Northeast Iceland.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.