Náttúrufræðingurinn - 2012, Síða 32
Náttúrufræðingurinn
32
Um 3 km sunnan við mynni Þver-
árdals gengur Holár- og Klængs-
hólsdalur til SA inn úr Skíðadal. Þar
er einnig að finna allstórar snjó-
flóðadyngjur handan ár, andspænis
nokkrum giljum líkt og á Þverárdal.
Dyngjurnar eru ekki jafn tignarlegar
og þær stærstu á Þverárdal, en engu
að síður býsna umfangsmiklar með
miklu grjóti. Stærð þeirra er í sam-
ræmi við flatarmál upptakasvæðis
og fallhæð í viðkomandi gili. Þannig
eru dyngjurnar langminnstar innst á
dalnum þar sem fallhæðin er minni
og gilin grynnri. Stærsta dyngjan er
um 11 m há upp frá ánni, og á henni
liggja a.m.k. 10 steinar stærri en 8 m3.
Einnig er vitað um eina snjóflóða-
dyngju í Sveinsstaðaafrétt í Skíðadal,
skammt innan við eyðibýlið Stafn.
Staksteinar geta verið allt frá
litlum völum upp í margra tonna
björg sem liggja á víðavangi í fjalls-
hlíðum og á undirlendi þeirra,
gjarnan neðan gilja (6. mynd). Erf-
itt getur verið að greina hvort stakir
steinar á víðavangi séu þangað
komnir við grjóthrun, með snjó-
flóðum eða séu jafnvel jökulbornir.
Vitneskja um tíð snjóflóð í farvegi
og önnur snjóflóðaummerki í kring
gefa skýrar vísbendingar um að
grjótið sé borið fram af snjóflóðum.
Grjótdreifar eru þekjandi eða nán-
ast þekjandi flekkir af möl sem snjó-
flóðin skilja eftir á yfirborði neðan
snjóflóðafarvega. Líkt og staksteinar
geta grjótdreifar verið blanda af
flestum kornastærðum. Almennt er
talið að snjóflóð beri grjót lengra frá
brekkurótum en grjóthrun, enda hafa
staksteinar verið notaðir til að meta
lengsta úthlaup snjóflóða í nokkrum
snjóflóðafarvegum.20 Grjóthrun
eftir Suðurlandsskjálftann 2008 náði
óvíða lægra úthlaupshorni en 30°
ef fallhæð var meiri en 250 m,21 en
hins vegar geta snjóflóð fallið mun
lengra út frá upptökum.15
Snjóflóð geta átt þátt í myndun
aurkeilna ef framboð setefna í
snjóflóðafarveginum er mikið. Í
virkum farvegum geta fallið mörg
snjóflóð á vetri; þau geta skilað tals-
verðum setframburði og átt drjúgan
þátt í að aurkeilur byggist upp
(6. mynd).2 Einnig geta snjóflóð
beinlínis sótt sér efni í aurkeilur
en við það myndast rofform. Oft
má þekkja setframburð aurskriðna
frá setframburði snjóflóða, en aur-
skriðuset einkennist oft af litlum
rásum, hryggjum og haugum.4,18
Rof á sér stað í farvegum og á
úthlaupssvæðum snjóflóða. Sé lítið
frost í jörðu geta snjóflóð, eða grjót
sem með þeim berst, rofið jarðvegs-
þekjuna og myndað stór sár. Þessi
ummerki eru algeng við snjóflóðaf-
arvegi og finnast yfirleitt í námunda
við nýlegt snjóflóðagrjót, en á fáum
árum geta þau gróið upp og horfið.
Þegar jörð er þíð getur orðið sér-
staklega mikið rask, og torfur og
jarðvegsfyllur eiga það til að flettast
upp og berast með flóðum langa leið
(7. mynd a). Miklar skemmdir geta
einnig orðið á trjágróðri. Algengt er
að finna plógför eftir bæði litla og
stóra steina sem hafa dregist eftir
yfirborði jarðar.1,4 Á Upsadal ofan
Dalvíkur eru stórar skellur í jarð-
vegsþekjuna eftir snjóflóð í október
1995 sem féll einmitt eftir að snjór
settist á þíða jörð (7. mynd b). Sama
flóðið féll yfir Brunnklukkutjörn og
skóf upp leirbotn hennar svo sjá
mátti ljósa slikju á lynginu neðan
tjarnarinnar sumarið eftir, en að
sögn Þorsteins Skaftasonar (2011) á
Dalvík hafði slíkt gerst a.m.k. einu
sinni áður. Veturinn 1994–1995 féll
stórt snjóflóð sem umturnaði stór-
grýtisurð við Nykurtjörn undir
Digrahnjúk í Holtsfjalli við vest-
anverðan Svarfaðardal, að sögn
Sölva Hjaltasonar bónda á Hreið-
arsstöðum (2005). Árni Hjartarson
greindi frá miklu raski af völdum
snjóflóða í Sveinsstaðaafrétt vet-
urinn 1995–1996.22
Vangaveltur um snjó-
flóðasögu og tengsl við
loftslag á nútíma
Með könnun á snjóflóðadyngjum
og aurkeilum hefur loftslagssaga á
nútíma, þ.e. síðustu 10.000 ár, verið
könnuð í Noregi.3 Lífrænar leifar
sem finnast í aurkeilum og snjó-
flóðadyngjum eru aldursgreindar
og tíðni flóða metin. Gott yfirlit um
tíðni snjóflóða og skriðufalla getur
6. mynd. a) Keilur og staksteinar neðan snjóflóðafarvega í Landafjalli í Öxnadal. b) Grjótdreifar að vori sem eru framburður snjóflóða
vetrarins úr fjallshlíðinni skammt innan Látra á Látraströnd. – a) Debris cones and scattered boulders below avalanche paths in the
Landafjall mountain, Öxnadalur N-Iceland. b) Avalanche transported debris on a mountain slope on the Flateyjarskagi peninsula,
N-Iceland. Ljósm./Photos: a) Brynjólfur Sveinsson, 2010, b) Sveinn Brynjólfsson, 2010.
b)a)