Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2012, Síða 37

Náttúrufræðingurinn - 2012, Síða 37
37 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Framhlaup Brúarjökuls hafa myndað sérstakt landslag. Auk jökulgarða má í Kringilsárrana t.a.m. finna jökulöldur, jökulkembur, krákustígsása, malarása og sprungu- fyllingar í dalverpum milli ávalra hæða.13,15–18 Vísbendingar um sífrera má sjá í formi rústa og frostsprungna. Sums staðar fer sífreri minnandi eins og sjá má á hringlaga tjörnum sem taldar eru ummerki samfall- inna rústa. Meðalárshiti við Brúar- jökul 2003–2005, þegar rannsóknin fór fram, var -0,3°C og hefur verið vel undir frostmarki síðan 1830 og því líklegt að ósamfelldur sífreri hafa þrifist á svæðinu um aldir.16,19 Aðferðir Jökulgarðarnir í Kringilsárrana voru greindir á loftmyndum frá 1993 og 2003. Landlögun garðanna var svo könnuð nánar á hæðalíkani sem gert var á grunni loftmyndanna frá 2003. Landlögun var kortlögð enn frekar á jörðu niðri með landmæl- ingu þverlína á fjórum stöðum sem taldir voru endurspegla landlögun garðanna í heild (1. og 5. mynd). Þrjú náttúruleg þversnið (nefnd snið 1–3 í textanum hér eftir) í görð- unum voru hreinsuð með skóflum og sköfum til að rannsaka setgerð og innri byggingu garðanna (1. mynd). Setlagaskipan og innri bygging garðanna var kortlögð í kvarðanum 1:20 og setlög og byggingareinkenni þeirra flokkuð með hliðsjón af lykli Krüger og Kjær20 (1. tafla). Rann- sóknir á byggingareinkennum garð- anna fólu í sér mælingar á striki og halla misgengja, sprungna og set- laga og stefnu og halla fellingaása. Graf var gert af niðurstöðum mæl- inganna til að auðvelda túlkun gagnanna og tölfræðilega greiningu. Þykkt setlagasyrpunnar innan við garðana var fengin með því að mæla hæð berggrunnsins (í m y.s.) á botni lækjarfarvega og hæð yfirborðsins á bökkunum þar fyrir ofan. Því næst var hæðalíkan búið til af berggrunni annars vegar og yfirborði lands hins vegar. Með því að draga hæð berggrunnsins frá hæð yfirborðsins fékkst þykkt setlagasyrpunnar sem hvílir ofan á berggrunninum. Lang- snið A-A’ sýnir niðurstöður þessara útreikninga (1. og 2. mynd). Dreifing setlaga innan við Hrauka Langsnið A-A’ (2. mynd) sýnir dæmigerða dreifingu setlaga í dal- verpum þar sem setlagasyrpan er þykk og jökulgarðar stórir (1. mynd). Langsniðið nær yfir jökul- garðana frá 1810 og 1890. Innan við og á milli garðanna er yfirborðið þakið jökulkembum og haugaruðn- ingi, auk farvega sem mynduðust eftir að jökullinn hörfaði. Innan við jökulgarðinn frá 1810 er þunn setþekja ofan á berggrunninum en þegar nær dregur garðinum verður setlagasyrpan smám saman þykkari. Á miðjum garðinum er þykkt syrp- unnar um 5 m en um 3 m rétt fyrir framan hann. Breidd jökulgarðsins frá 1810 (miðað við breidd garðs- ins frá 1890; Hrauka) skýrist af því að framhlaupið 1890 gekk yfir hann og flatti hann út (1. og 2. mynd). Á milli þessara tveggja jökulgarða er þykkt setlagasyrpunnar um 3–4 m. Um 400–500 m innan við jökul- garðinn frá 1890 eykst þykkt set- lagasyrpunnar jafnt og þétt og nær 7 m á toppi jökulgarðsins (2. mynd). 2. mynd. Þversnið A-A’ í austari hluta Kringilsárrana (sjá 1. mynd). Efri myndin sýnir landslagið en neðri myndin þykkt setlaga ofan á berggrunninum. Á efri myndinni má sjá hve breiður jökulgarðurinn frá 1810 er miðað við garðinn frá 1890. Ástæða þess er að fram- hlaupið 1890 gekk yfir garðinn frá 1810 og flatti hann eilítið út. Á neðri myndinni má sjá tvo greinilega setfleyga innan á görðunum frá 1810 og 1890. – Profile A-A’ in the eastern part of Kringilsárrani (see fig. 1). Above is a terrain profile and below is a sediment thick- ness profile. Sediment wedges on the proximal sides of the 1810 and 1890 end moraines are clearly visible.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.