Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2012, Síða 50

Náttúrufræðingurinn - 2012, Síða 50
Náttúrufræðingurinn 50 gangsetja má virkjanir hvenær sem er og af þeirri stærð sem tekur mið af þekkingu á auðlindinni. Kjör- aðstæður eru fyrir hendi ef tilgangur- inn með jarðgufuvirkjunum er sá að minnka notkun annarra orku- gjafa, annaðhvort af umhverfis- eða hagkvæmniástæðum. Af ofansögðu virðist ekki líklegt að nýting jarðhita á heimsvísu til raforkuframleiðslu taki stór stökk fram á við, a.m.k. ekki í fyrirsjáanlegri framtíð, heldur verði vöxturinn tiltölulega hægur eins og verið hefur undanfarin 25 ár (1. mynd). Á hinn bóginn hefur bein notkun jarðvarma aukist mjög mikið á síðustu tveimur áratugum. Stafar sú aukning mest af stórauk- inni notkun varmadælna (3. mynd). Það er alveg ljóst að auðlindir jarðar eru takmarkaðar. Sú staðreynd hefur leitt þess viðhorfs að fara skuli vel og sparlega með þessar auðlindir og leggja áherslu á sjálfbæra þróun, en þróun er sjálfbær ef hún fullnægir þörfum samtíðarinnar án þess að skerða möguleika komandi kynslóða til að fullnægja þörfum sínum.4 Með þetta í huga ætti að leggja áherslu á fjölnýtingu háhita fremur en nýt- ingu til raforkuframleiðslu eingöngu, a.m.k. þar sem henni verður við komið, vegna þess að með fjölnýt- ingu er auðlindin vel nýtt (hér má nefna Svartsengi og á Nesjavelli sem dæmi) en ekki þegar eingöngu er um raforkuframleiðslu að ræða. Vilji Íslendingar fara að núverandi stjórn- arstefnu og styðja sjálfbæra þróun í verki, ætti þjóðin að greiða arð af nýtingu jarðhita í auðlindasjóð til handa komandi kynslóðum, því einstök jarðhitakerfi eru endanleg orkulind.5 Þá þyrfti að grandskoða í ljósi sjálfbærrar þróunar hvort íbúar og fyrirtæki í þéttbýli ættu ekki að hafa forgang að nýtingu jarðhita- kerfa sem eru innan seilingar og þá aðallega til upphitunar húsa. Orku- og umhverfismál í heiminum Margir áratugir eru síðan áhyggjur vöknuðu um að hratt væri gengið á olíulindir jarðar og að því kæmi í fyrirsjáanlegri framtíð að þær yrðu 1. mynd. Uppsett rafafl jarðgufuvirkjana (A) á Íslandi3 og (B) í heiminum1. Á síðustu 25 árum hefur árlegur vöxtur í heiminum verið nálægt 230 MW. Spár um vöxt hafa jafnan verið hærri en raunvöxtur og svo gæti einnig orðið með spána fram til 2015 (bláa slitna línan). Uppsett afl jarðgufu- stöðva á Íslandi er 6,2 % af heildinni á heimsvísu. Gögn fyrir heiminn eru frá Bertrani1 en fyrir Ísland frá Stefáni Arnórs- syni o.fl.3 og skv. munnlegum upplýsingum frá Árna Ragnarssyni hjá Samorku. – In- stalled capacity of geothermal power plants in (A) Iceland and (B) worldwide. During the last 25 years annual growth has been about 230 MW. In the past, development plans have generally been higher than real growth. The same may be the case for the prediction up to 2015 (blue broken line). Installed capacity of plants in Iceland is 6.2% of the total in the world. Data for the world are from Bertrani1 but those for Iceland are from Stefán Arnórsson et al.3 and oral information from Árni Ragnarsson at Samorka. 0 100 200 300 400 500 600 700 1960 1970 1980 1990 2000 2010 2020 Ár – Year 0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20 1950 1960 1970 1980 1990 2000 2010 2020 U pp se tt af l í G W – In st al le d ca pa ci ty in G W U pp se tt af l í M W – In st al le d ca pa ci ty in M W Ár – Year A B 0 100 200 300 400 500 600 700 1960 1970 1980 1990 2000 2010 2020 Ár – Year 0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20 1950 1960 1970 1980 1990 2000 2010 2020 U pp se tt af l í G W – In st al le d ca pa ci ty in G W U pp se tt af l í M W – In st al le d ca pa ci ty in M W Ár – Year A B 2. mynd. (A) Aukning á koltvíoxíði í andrúmsloftinu samkvæmt mælingum á Mauna Loa á Hawaii og (B) meðalhlýnun andrúmslofts við yfirborð jarðar. Koltvíoxiðstyrkurinn (ppmv) er í mg í lítra. Byggt á Wikipedia.9 – (A) Increase in atmospheric carbon dioxide according to monitoring at Mauna Loa on Hawaii and (B) increase in global temperatures at Earth's surface. The carbon dioxide concentration is in mg/L (ppmv). Based on Wikipedia.9 Okt. Jan. 310 1960 Ár – Year Árssveifla – Annual cycle A 2000199019801970 2010 Jan. Apr. Júl. 370 360 350 340 330 320 380 390 M ag n ko ltv ío xí ðs – C ar bo n di ox id e co nc en tra tio n (p pm v) Koltvíoxíð í andrúmslofti á eyjunni Mauna Loa á Hawaii. – Carbon dioxide in the atmosphere as measured at Mauna Loa, Hawaii. - 0,4 1880 Ár – Year B Ársmeðaltal – Annual average Meðaltal 5 ára – 5 year average 1960194019201900 1980 2000 0,6 0,4 0,2 0,0 - 0,2 H ita br ey tin ga r – T em pe ra tu re c ha ng e (°C )
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.