Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 55

Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 55
55 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 10 km dýpi. Í efstu 10 km nemur varmaorkuforðinn 1,2 EJ (1 exajúl (EJ) = 1024 J) en 0,1 EJ í efstu 3 km. Miðað við mat Gunnars Böðvars- sonar17 á orkuflæði og Guðmundar Pálmasonar o.fl.28 á orkuforða svarar varmaorkan í efstu 10 km jarðskorp- unnar til varmaflæðis úr möttli í 1,3 milljónir ára en til rúmlega 100.000 ára miðað við varmaforðann í efstu 3 km jarðskorpunnar.3 Af þessum tölum má sjá að jarðvarmi getur naumast talist endurnýjanleg auð- lind frá sjónarhóli eðliseiginleika hans. Varmaflæði út um yfirborð þurr- lendis er metið 14.700 GW af Davis og Davis.26 Tækist að nýta þennan varma að hluta, segjum 10%, eða 1.470 GW, er ljóst að þetta endur- nýjanlega orkuflæði er ekki stórt á mælikvarða orkunotkunar mann- kyns. Í dag er uppsett afl raforku- vera í heiminum eitthvað á fimmta þúsund GW. Tækist hins vegar með tækniframförum að nýta þann varmaforða sem býr í efsta hluta jarðskorpunnar fengi mannkynið aðgang að nánast óendanlega stórri varmanámu, en slíkar framfarir eru forsenda þess að nýting þess- arar varmanámu verði að veru- leika. Langt er síðan vísindamenn áttuðu sig á því að framtíðarorku- gjafi mannkyns hlýtur að vera sólin og sá orkugjafi er endurnýjanlegur. Varmastreymi frá sólinni á jörðina er um 4.000 sinnum meira en varma- streymið út um yfirborð jarðar. Flokkun jarðvarmakerfa og einkenni þeirra Jarðhitasvæði verður best skilgreint sem afmarkað svæði á yfirborði jarðar þar sem hærri hita verður vart en yfirleitt gerist, þ.e. ýmist í laugum, hverum eða heitum jarð- vegi. Undir slíkum svæðum er heitt og lekt berg með heitu vatni og/eða gufu, m.ö.o. svonefnt jarðhitakerfi. Jarðhitakerfi eru hluti af þeim kerfum í jörðu sem hér eru nefnd jarðvarmakerfi (e. geothermal sys- tem). Hér er orðið jarðhitakerfi notað í sömu merkingu og enska hugtakið „hydrothermal system“. Jarðvarmakerfi hafa verið flokkuð með ýmsu móti, allt eftir reynslu þess sem setur flokkunina fram og einkennum þeirra jarðvarmakerfa sem sá hinn sami þekkir. Það sem réttlætir flokkun er sú staðreynd að jarðvarmakerfi finnast aftur og aftur í samskonar jarðfræðilegu umhverfi. Eftir sem áður eru engin tvö jarðhitakerfi eins í smáatriðum og örugglega ekki með tilliti til vinnslueiginleika. Sú flokkun sem höfundur aðhyllist, vegna þess að hún nær yfir langflest þekkt jarð- varmakerfi, var sett fram af Goff og Janik.29 Flokkunin er þannig: 1) kerfi í ungu eldfjallaumhverfi (háhitakerfi) 2) sprungukerfi (lághitakerfi) 3) kerfi í setlagatrogum (jarðþrýstikerfi) 4) kerfi í heitu en þéttu bergi (þurrkerfi) 5) kvikukerfi Íslenskum jarðvarmakerfum sem flokkast undir jarðhitakerfi hefur lengi verið skipt í tvo flokka, þ.e. 5. mynd. Forn háhitakerfi í neógen (síð-tertíerum) og kvarterum berggrunni. – Fossil high-temperature systems in neogene (late-tertiary) and quaternary formations. 0 50 km Forn megineldstöð - Extinct central volcano complexes Tertíert berg - Tertiary bedrock Árkvartert berg - Plio-Pleistocene bedrock Síðkvarter hraun - Late Pleistocene lavas Síðkvartert móberg - Late Pleistocene hyaloclastites Súrt gosberg - Rhyolite Basískt og súrt innskotsberg - Gabbro and granophyre Hraun frá nútíma - Postglacial lavas Setlög frá nútíma - Alluvium Gosbelti - Volcanic zone Skýringar - Legend Geological map of Iceland by Haukur Jóhannesson and Kristján Sæmundsson 1999. 1:1.000.000. Icelandic Institute of Natural History. 0 50 km
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.