Náttúrufræðingurinn - 2012, Side 77
77
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
ystu stöðu jökulsins úti fyrir Austur-
landi og Suðurlandi er aftur á móti
óþekktur. Þetta gæti bent til þess
að jöklar á Íslandi hafi í ísaldarlok
hörfað mun seinna frá ystu stöðu
sinni en stóru meginlandsjöklarnir
í Norður-Ameríku, Skandinavíu og
Barentshafi, sem allir byrjuðu að
hörfa fyrir um 21.500 árum. Bráðnun
meginlandsjöklanna skilaði miklu
af því vatni sem áður var bundið
í þeim aftur til heimshafanna, en
binding vatns í jöklum jarðarinnar
við hámark síðasta jökulskeiðs hafði
leitt til allt að 130 m hnattrænnar
lækkunar sjávarborðs. Ör hækkun
sjávarborðs í tengslum við hraða
bráðnun stóru meginlandsjöklanna
leiddi til þess að jöklar, sem þá
gengu í sjó fram við landgrunns-
brúnina (1. mynd), flutu upp, og á
hlutfallslega stuttum tíma losnaði
gríðarlegt ísmagn úr ísbrúninni. Á
þennan hátt eyddist og hopaði jökul-
skjöldurinn yfir Íslandi mjög hratt,
eins og atburðarásin á landgrunninu
úti fyrir Vesturlandi bendir til, en
Faxaflói og strandsvæði Borgar-
fjarðar urðu nánast samtímis íslaus
fyrir 15.500–14.600 árum.24,36
Myndun efstu fjörumarka
Efstu fjörumörk frá síðjökultíma
á Vesturlandi hafa verið aldurs-
ákvörðuð og eru um það bil 14.600
ára.36,37 Stóri-Sandhóll og aðrar set-
myndanir í mynni Skorradals (2.
mynd) marka sjávarstöðu í um 150
m yfir núverandi sjávarmáli, en
fjörumöl ofan við Stóru-Fellsöxl í
austanverðu Akrafjalli er ummerki
eftir sjávarstöðu í um 105 m hæð.
Elstu fjörumörk og elsta sjávar-
set á landi í Borgarfirði og Hval-
firði1,2,29,32 eru því frá Bøllingskeiði,
en það hófst fyrir um 15.600 árum
og lauk fyrir um 13.900 árum (3.
mynd og 1. tafla). Upplýsingar
úr setkjörnum af landgrunninu úti
fyrir Norðurlandi sýna að þar var
áhrifa Golfstraumsins þegar farið að
gæta fyrir rúmlega 16.700 árum.27
Strandsvæðin á Melrakkasléttu voru
orðin íslaus fyrir um 14.800 árum,14
en þar eru fjörumörk frá þeim
tíma í 50–60 m hæð. Strandsvæði
á Vestur- og Norðausturlandi voru
því greinilega orðin íslaus snemma
á Bøllingskeiði en mjög há fjöru-
mörk, sem trúlega eru af sama aldri,
eru víða annars staðar á landinu.2
Á Reykjanesskaga eru fjörumörk
til dæmis í um 70 m hæð2 og við
innanverðan Breiðafjörð eru efstu
fjörumörk í um 100–110 m hæð.38,39
Á Vestfjörðum, milli Breiðafjarðar og
Ísafjarðardjúps, eru fjörumörk víða í
allt að 95 m hæð2 (3. mynd). Nyrst á
Skaga eru gömul fjörumörk í um 65
m40 og austan við Skagafjörð, yst í
Sléttuhlíð, eru þau í svipaðri hæð.2
Á Tjörnesi eru fjörumörk í um 90 m
hæð2 og þá eru greinileg fjörumörk
í um 60 m hæð við Þistilfjörð og
Bakkaflóa.41 Yst á Langanesi eru þau
í um 30 m hæð yfir sjó.2
Þetta bendir til þess að á Bøllings-
keiði hafi jöklar víðast hvar á Ísland
hörfað inn fyrir núverandi strönd
landsins, nema ef til vill á Suður-
landi (3. mynd). Aldursákvarðað
sjávarset frá Bøllingskeiði er í Borgar-
firði og Hvalfirði,32,42 í Rauðamel á
Reykjanesskaga, í Garðabæ sunnan
Reykjavíkur2,13 og á vesturströnd
Melrakkasléttu.14 Tegundasamsetn-
ing skeldýrafánunnar í þessum set-
lögum og samsætuhlutfall súrefnis
í fornskeljunum42 benda til þess að
áhrifa Golfstraumsins hafi þá gætt
við strendur Íslands og sjávarhiti
verið svipaður eða heldur lægri
en hann er nú.2,32 Umhverfisbreyt-
ingar á landi á Bøllingskeiði eru ekki
vel þekktar en hugsanlega gætu
kjarnar úr setlögum á botni stöðu-
vatna varpað skýrara ljósi á hörfun
jökla, gróðurfarsþróun og veðurfar
á þessum tíma. Sú mynd verður þó
sennilega alltaf nokkuð brotakennd,
því að í lok Allerødskeiðs og á yngra
Dryasskeiði gengu jöklar aftur yfir
þau svæði sem urðu jökullaus á
Bøllingskeiði1,43 og eyddu líklega
flestum ef ekki öllum ummerkjum
um hve langt inn til landsins jökl-
arnir höfðu áður hörfað. Á Bølling-
skeiði og fyrri hluta Allerødskeiðs
varð líklega stór hluti Norðurgos-
beltisins íslaus, því þá runnu hraun
frá Þeistareykjum (um 40 km innan
við núverandi strönd) allt norður í
Kelduhverfi við Öxarfjörð og vestur
í Reykjahverfi sunnan Skjálfanda-
flóa.2,44,45 Hugsanlega hörfuðu þeir
enn lengra inn til landsins, því að
hraun á Kröflusvæðinu við Mývatn
sýna að sá hluti landsins varð einnig
íslaus á þessum tíma.9
4. mynd. Jökulhnik í Melabökkum. Myndin sýnir sjávarsetlög af Bøllingaldri sem lík-
lega aflöguðust þegar jökull gekk út Borgarfjörð og fram á Skorholtsmela fyrir tæpum
14.000 árum. – Marine sediments of Bølling age in the Melabakkar cliffs, West Iceland,
tectonized by a surging Borgarfjörður ice-stream shortly before 14,000 cal. years BP.
Ljósm./Photo: Þorleifur Einarsson 1980.