Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 80
Náttúrufræðingurinn
80
Hæð og aldur fjörumarka vitna
um aukna fergingu landsins þegar
jöklar gengu fram á ný og náðu
tímabundið mestri stærð fyrir um
12.000 árum (5. mynd).1,2,29,43 Fund-
arstaðir skelja af yngri Dryasaldri
og hugmyndir okkar um útbreiðslu
og stærð jökla á þeim tíma eru
sýndar á 6. mynd.
Jöklaframrásin á yngra Dryas-
skeiði átti sér nokkurn aðdraganda
og svo virðist sem jöklarnir hafi
þegar verið farnir að stækka á Alle-
rødskeiði, en vöxtur þeirra hafði
m.a. áhrif á upphleðslu Fossvogs-
laganna í Reykjavík.52 Við Faxaflóa,
á Reykjanesskaga og Snæfellsnesi
er ekki mikið vitað um útbreiðslu
jökla á yngra Dryasskeiði. Reykja-
víkursvæðið var að mestu undir
sjó á þessum tíma en jökulbrúnin
virðist hafa verið í mynni Mosfells-
dals.2 Á sama tíma gekk jökull út í
miðjan Hvalfjörð en á Borgarfjarðar-
svæðinu virðast jöklar hafa staðið í
mynni flestra þverdala (6. mynd).
Miklar upplýsingar um útbreiðslu
jökla á þessum tíma má fá með því
að kortleggja hæð og útbreiðslu
fornra fjörumarka. Víða eru há
og tiltölulega hallamikil fjörumörk
utarlega í fjörðum og dölum, en
þau hverfa þegar innar dregur í þá;
þar lágu jökulbrúnir sem einfald-
lega komu í veg fyrir myndun fjöru-
marka í innri hluta þeirra. Stundum
marka greinilegir jökulgarðar þessar
fornu jökulbrúnir en oft eru einu
ummerkin þau að háu strandlín-
urnar hverfa og neðan og innan við
þær finnast einungis yngri, lægri og
hallaminni fjörumörk, mynduð eftir
að jöklarnir höfðu hopað enn lengra
inn til landsins.37 Þannig er stærð
yngri Dryasjökulsins í Dölum við
innanverðan Breiðafjörð aðallega
metin á grundvelli vitneskju okkar
um legu og útbreiðslu fjörumarka á
svæðinu.58 Setkjarnar úr botni Ísa-
fjarðardjúps benda til þess að jöklar
úr dölum og fjörðum við innanvert
Djúp hafi á þessum tíma náð út í
Djúpið og sameinast þar í einn megin-
skriðjökul.59 Á sama tíma voru
annes á vestanverðum Vestfjarða-
kjálka og á Hornströndum íslaus.2,21
Á Norðurlandi voru jöklar á Skaga
bundnir við hálendið sunnan til í
skaganum en nyrsti hluti hans var
íslaus.40 Við Eyjafjörð og Skjálf-
anda hefur útbreiðsla Skóga-Vedde-
gjóskunnar, sem varð til í miklu
sprengigosi fyrir um 12.100 árum,60
verið notuð til að afmarka jökul-
laus svæði og brún jökulsins, sem
á þessum tíma náði a.m.k. norður
undir Hrísey á Eyjafirði.19,60 Lega
fjörumarka í Öxarfirði sýnir að
þar var jökuljaðarinn innan við
þáverandi strönd,2 en endaslepp
fjörumörk við Þistilfjörð og sunn-
anverðan Bakkaflóa eru til vitnis
um að jökull gekk í sjó fram beggja
vegna Langaness41 en ysti hluti
þess var íslaus.2 Á Austfjörðum
gengu jöklar í sjó fram í öllum
fjörðum, en strandfjöll og skagar
voru íslausir.61,62 Yngri Dryasjökull-
inn gekk líklega í sjó fram með öllu
Suðausturlandi, en jökulgarðar við
Vatnsdalsfjall á ofanverðum Rangár-
völlum, sem og jökulgarður á um
20 m dýpi í Markarfljótsaurum,
marka sennilega útbreiðslu hans á
Suðurlandi (6. mynd).2,63
Svonefnd Búðaröð (7. mynd)
hefur löngum verið talin marka legu
jökulbrúnar eða -jaðars á Suður-
landi á yngra Dryasskeiði,4 en seinni
tíma rannsóknir hafa sýnt að Búða-
röðin er syrpa af misgömlum jökul-
görðum.1,64 Innri og yngri hluti
garðanna, sem eru best sýnilegir í
Búðabergi við Þjórsá, eru af Prebo-
realaldri65,66 (sjá neðar), en eldri og
ytri hluti þeirra, sem trúlega er frá
yngra Dryasskeiði,1 sést best við
Eystri-Rangá undir Vatnsdalsfjalli.
Fátt er vitað um veðurfar á Íslandi
á yngra Dryasskeiði annað en það
sem lesa má úr framrás jökla og
setkjarnanum úr botni Torfadals-
vatns á Skaga.56,57 Þar kemur kóln-
unin fram í skyndilegu falli í magni
frjókorna og því að magn kolefnis
í setinu fellur einnig mjög hratt, en
það er til marks um að frumfram-
leiðsla vatnsins minnkaði skyndi-
lega. Á þessum tíma var umhverfi
vatnsins túndra, svipað því sem var
strax eftir að jöklar hurfu á Allerød-
skeiði. Líffræðilegar upplýsingar
úr setkjarnanum gefa til kynna að
á öllu yngra Dryasskeiði hafi sum-
arhiti á Norðurlandi verið mjög
lágur, en það gæti bent til þess að
þá hafi mikil hafísþök verið fyrir
ströndum Norðurlands. Þetta sam-
rýmist vel niðurstöðum rannsókna
á setkjörnum sem teknir hafa verið
úr sjávarseti á landgrunninu úti
fyrir strönd Vestur- og Norður-
lands.27,67 Þrátt fyrir fimbulkulda á
yngra Dryasskeiði þraukuðu grös
og hálfgrös túndrunnar umhverfis
Torfadalsvatn. Ef til vill má taka
það sem vísbendingu um að á
Íslandi hafi einföld túndrusamfélög
plantna hugsanlega lifað af fimbul-
kuldann um hámark síðasta jökul-
skeiðs í jökulskerjum í jökulskildi,
sem þá þakti allt landið og land-
grunnið.34
7. mynd. Jökulgörðum Búðaraðarinnar á Suðurlandi má fylgja meira en 50 km vegalengd frá
Efstadalsfjalli í Biskupstungum að Eystri-Rangá á Rangárvöllum. – The outer Búði moraine
close to Geldingalækur, east of Ytri-Rangá at Rangárvellir, South Iceland, is correlated with
the Younger Dryas advance of the Icelandic ice sheet there. Ljósm./Photo: Ólafur Ingólfsson.