Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2012, Side 83

Náttúrufræðingurinn - 2012, Side 83
83 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags að 500–600 árum yngri en yngsta strandlínan í Fnjóskadal.2 Fyrir 13.700–13.500 árum hafði afstætt sjávarborð lækkað frá því að það stóð við hæstu fjörumörk og var komið í svipaða hæð og núverandi sjávarborð eða jafnvel neðar.2,14,36 Það var einmitt á þessum tíma sem jökulskjöldurinn yfir Íslandi varð hvað minnstur35 (3. mynd), áður en hann stækkaði á ný og jöklar tóku að ganga fram í kjölfar kólnandi veður- fars á Allerød- og yngra Dryas- skeiði. Vöxtur jökla náði hámarki fyrir um 12.100 árum en aukið farg þeirra olli umtalsverðu landsigi og myndun fjörumarka, sem nú eru í um 60 m hæð á Suðvesturlandi2,80 (6. og 9. mynd). Eftir það hopuðu jöklarnir enn á ný og land reis úr sæ vegna minnkandi jökulfargs. Við þetta, fyrir rétt rúmum 11.500 árum, lækkaði afstætt sjávarborð um eina 40 m (9. mynd).2 Aftur stækkuðu jöklar og bældu nú landið svo mikið umfram hækkun yfirborðs heims- hafanna að afstætt sjávarborð hækk- aði um eina 25 m (9. mynd) og náði nýju hámarki fyrir um 11.200 árum. Fjörumörk frá þeim tíma eru nú í um 40 m h.y.s. á Suðvesturlandi.2,80 Eftir þetta, seinna á Preboreal- og á Borealskeiði, bráðnuðu jöklar ört af landinu, sem við það reis hratt úr sjó undan þverrandi fargi. Fyrir um 10.600 árum hafði afstætt sjávarborð fallið niður fyrir botn Seltjarnar (-2,5 m) (9. og 10. mynd)80 og fyrir um 10.100 árum varð afstætt sjávar- borð lægst (9. mynd), þegar það stóð um 40 m neðan við núverandi sjávarborð í Faxaflóa.2,81 Dæmi um lágt sjávarmál frá þessum tíma finn- ast víðar á landinu, t.d. á Eyjafjarðar- svæðinu82 og á Suðurlandi þegar Þjórsárhraunið rann til sjávar við mun lægri sjávarstöðu en er nú.6,83 Samantekt og niðurstöður Síðjökultími og upphaf nútíma á Íslandi voru einstæð tímabil sökum mikilla og hraðra umhverfisbreyt- inga. Meginatriði þessara breytinga eru eftirfarandi: • Jökulhörfun í upphafi Bølling- skeiðs var gríðarlega hröð og benda ýmis gögn til þess að jökul- skjöldurinn sem þá lá yfir Ís- landi hafi hreinlega hrunið, a.m.k. sá hluti hans sem gekk í sjó fram og lá úti á landgrunninu. Þessi hraða bráðnun jöklanna leiddi til myndunar mjög hárra fjöru- marka á fyrri hluta Bøllingskeiðs (2., 4. og 9. mynd). • Sökum eiginleika jarðskorpunnar undir Íslandi og lágrar seigju í deighveli möttuls var svörun við breytingum á jökulfargi tafarlaus og mjög hröð. Þannig reis land með miklum hraða þegar jökla leysti á Bøllingskeiði og afstætt sjávarborð féll hratt (9. mynd). • Aukið farg vegna stækkandi jökla og framrásar þeirra, í kjölfar kólnunar loftslags í lok Allerød- skeiðs og á yngra Dryasskeiði, bældi landið og olli áflæði sjávar. Við hámark yngra Dryasskeiðs var stór hluti landsins á ný hul- inn jöklum, sem víða náðu út til þáverandi stranda (6. mynd). • Eftir nokkra hörfun í lok yngra Dryasskeiðs gengu jöklar fram á nýjan leik í upphafi Preboreal- skeiðs, og fyrir um 11.200 árum náðu þeir svipaðri útbreiðslu og á yngra Dryasskeiði (8. mynd). • Eftir að þessu framrásarskeiði lauk hörfuðu jöklar mjög hratt samfara hröðu landrisi og afflæði sjávar (9. mynd). Afstætt sjávar- borð féll niður fyrir núverandi sjávarmál (9. mynd) fyrir um 10.600 árum (10. mynd) og varð lægst fyrir um 10.100 árum, þegar það var tugum metra neðar en núverandi sjávarmál. Þegar borin eru saman gögn af landi, af sjávarbotninum á land- grunninu og úr Grænlandsjökli (11. mynd), kemur í ljós að jökla- og umhverfisbreytingar á Íslandi á síð- jökultíma og í upphafi nútíma sýna mjög virka svörun við veðurfars- og sjávarstraumabreytingum í Norður- Atlantshafi. Rannsóknir á jökla- og veðurfarssögu Íslands geta því leitt til aukins skilnings á umhverfis- breytingum á öllu Norður-Atlants- hafssvæðinu og þannig varpað skýrara ljósi á hið flókna samspil loft, hafs, lands og íss sem leiðir til stórfelldra og mjög hraðfara veður- fars- og jöklabreytinga. 10. mynd. Fjörumórinn í Seltjörn á Seltjarnarnesi. Mór fór að myndast í tjörninni fyrir um 10.600 árum þegar afstætt sjávarborð féll niður fyrir botn tjarnarinnar. Fyrir tæp- um 3.200 árum tók fyrir mómyndun í Seltjörn þegar sjór fór að ganga inn í tjörnina. – Peat section in Seltjörn in westernmost part of Reykjavík. Accumulation of peat started about 10,600 cal. years BP and was terminated less than 3200 cal. years BP when the area was transgressed by the sea. Ljósm./Photo: Ólafur Ingólfsson.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.