Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2012, Side 87

Náttúrufræðingurinn - 2012, Side 87
87 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Sverrir A. Jónsson, Ólafur Eggertsson og Ólafur Ingólfsson Skógarsaga Fljótsdals- héraðs síðustu 2000 árin Tilgangur þessarar rannsóknar var að afla gagna sem gætu gefið mynd af gróðurfarssögu Fljótsdalshéraðs síðastliðin 2.000 ár og kanna orsakir fyrir hnignun skóga héraðsins. Rannsóknin byggist á tveimur mismunandi gagnasöfnum. Annars vegar var farið í gegnum sagnfræðilegar heimildir um gróðurfar og veðráttu á Austurlandi frá landnámi til okkar daga. Hins vegar var gerð frjórannsókn á sýnum úr setkjarna sem tekinn var úr tjörn í Hallormsstaðarskógi. Sá kjarni spannar um það bil 2.000 ár. Setið í kjarnanum var fremur einsleitt vatnaset en innihélt mörg ösku- lög. Öskulagatímatal, byggt á sex þekktum öskulögum, var sett upp fyrir kjarnann. Niðurstöðum frjórannsóknarinnar var skipt upp í fimm frjóbelti þar sem hvert þeirra táknaði mismunandi gróðurfarsaðstæður. Frjóbeltin voru síðan notuð til að túlka gróðurfarssögu svæðisins. Við landnám var svæðið umhverfis tjörnina þakið skógi, en skógurinn hörfaði hratt eftir landnám. Á 15. öld styrktist skógurinn á ný og hélt stöðu sinni allt fram á miðja 18. öld en fór eftir það að hörfa hratt. Skóginum hnignaði allt til upphafs 20. aldar, þegar hann var friðaður. Áhrif mannsins virðast hafa skipt sköpum hvað varðar ástand skógarins eftir landnám. Náttúrufræðingurinn 82 (1–4), bls. 87–97, 2012 Ritrýnd grein Inngangur Samkvæmt viðteknum hugmyndum var Ísland þakið birkiskógi við land- nám. Ýmsar frjórannsóknir styðja þessar hugmyndir1,2,3,4 og benda sumar þeirra til þess að skógur hafi byrjað að hörfa hratt fljótlega eftir landnám.2,3 Hallormsstaðarskógur er talinn stærstur náttúrulegra skóga á Íslandi, en ekki er ljóst hvort þar hafi vaxið skógur óslitið frá landnámi eða hvort hann hafi horfið alveg á ein- hverjum tíma. Til að rannsaka sögu skóga á Fljótsdalshéraði er mikil- vægt að kanna skriflegar heimildir um skóginn og notkun hans, breyt- ingar á mannfjölda og veðurfar. Samhliða þessu var gerð frjórann- sókn á setkjarna sem tekinn var úr lítilli tjörn í Hallormsstaðarskógi. Veðurfar á Íslandi Mikið er til af rituðum heimildum um veðurfar á Íslandi á fyrri öldum og hefur sagnfræðingurinn Astrid Ogilvie farið í gegnum öll þessi gögn og tekið saman yfirlit yfir veðurfar frá landnámi og til þess tíma að mælingar hófust fyrst á Íslandi, í Stykkishólmi snemma á 19. öld (1. mynd). Ekki er mikið til af gögnum um veðurfar frá fyrstu öldum Íslands- byggðar, en ef aðeins er byggt á þeirri staðreynd að tveir bæir sem voru í byggð á þeim tíma lentu síðar undir jökli7, má leiða líkur að því að veðurfarið hafi verið frekar milt við landnám. Margar heimildir vitna um versnandi veðurfar frá byrjun 13. aldar, og við lok 13. aldar virðist loftslag hafa kólnað verulega. Á 14. öld var veðurfarið misjafnt, frekar milt framan af en sjöundi og áttundi áratugur 14. aldar virðast hafa verið kaldir. Árið 1364 er greint frá því að hafís hafi aukist á siglingaleiðinni til Grænlands. Ekki er mikið um heim- ildir um veðurfar frá 15. öld, en þó virðist sem það hafi almennt verið frekar milt. Um miðja 16. öld var veðurfar án efa kalt og mikill hafís við strendur landsins og á siglinga- leiðum.8 Veðurfar virðist hafa farið kóln- andi undir lok 16. aldar og í byrjun þeirrar 17. Seinni hluti 17. aldar virðist aftur á móti hafa verið frekar mildur fyrir utan tíunda áratug aldarinnar, sem var mjög kaldur. Fyrri hluti 18. aldar virðist hafa verið mildur fram undir 1730, en þá kólnaði mjög. Næstu þrír áratugir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.