Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2012, Side 103

Náttúrufræðingurinn - 2012, Side 103
103 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Þó má hafa mikil áhrif á það hversu smátt grjót springur með vinnslu- tækni, svo sem með bormynstri og hleðslu borhola. Jarðgangarannsóknir Áður en ráðist er í gerð veg- ganga er þörf á ítarlegum jarð- fræðirannsóknum. Rannsóknirnar beinast að því að gera líkan af jarð- lögum á jarðgangaleiðinni til að ákvarða heppilega legu ganganna og meta eiginleika bergsins. Þær felast í almennri jarðfræðikortlagn- ingu svæðisins ásamt því að bora kjarnaholur í gegnum berg mögu- legrar jarðgangaleiðar, skrá berg- gerð og mæla bergtæknilega eig- inleika. Sprungumynstur kjarna er skráð til að hægt sé að gera sér grein fyrir breytileika í höggun bergsins. Valin eru sýni af borkjörnum og þau send í álagspróf til að meta stæðni og gæði bergsins. Rannsóknir á berggæðum beinast m.a. að því að áætla nauðsynlega styrkingu berg- laga í jarðgöngunum með spraut- usteypu, bergboltum og í sumum tilfellum dýrari aðgerðum. Gerðar eru lektarmælingar á mismunandi dýpi í borholunum, enda er vatns- agi einn helsti óvissuþátturinn við jarðgangagerð. Oft er einnig beitt jarðeðlisfræðilegum mælingum þ.e. bylgjubrotsmælingum og segulmæl- ingum til að rannsaka þykkt og eig- inleika setlaga á svæðinu og hljóð- hraða í bergi undir setinu. Rannsóknir á undir- stöðu vega og brúa Mikilvægur þáttur í tæknilegum rannsóknum í vegagerð eru rann- sóknir á jarðlögum í undirstöðu vega og brúa. Þessar rannsóknir eru ýmist gerðar með rannsóknar- gryfjum eða borunum. Rannsóknir á vegstæðum beinast m.a. að því að kanna stæðni setlaga með til- liti til skriðs. Einnig er algengt að rannsaka þurfi mjúk undirlög vegar, t.d. mýrarjarðveg, til að unnt sé að áætla sig undirstöðunnar undan fargi vegarins. Mikilvægt er í þessu sambandi að mæla rakastig jarðefna og gera áætlun um afvötnun veg- stæðisins. Í brúarstæðum beinast rannsóknir að því að finna nægilega þétt setlag eða klöpp sem undir- stöðu fyrir sökkla brúarinnar. Sé um þykk setlög að ræða eru oft reknir niður staurar til að treysta undir- stöður brúarinnar. Umhverfismál Hluti af starfi jarðfræðinga við efnis- leit er að sjá um að efnistaka valdi sem minnstum umhverfisspjöllum. Samkvæmt lögum um náttúru- vernd njóta eldvörp, gervigígar og eldhraun sérstakrar verndar. Einnig er mikilvægt að gæta varúðar við efnistöku á eyrum veiðiáa og er einungis ráðist í slíka efnistöku í nánu samráði við Veiðimálastofnun og veiðifélög. Mikilvægt er að hafa ávallt í huga að sýnilegt rask verði eins lítið og kostur er og æskilegt er að haga efnistökunni þannig að hún sé sem minnst í augsýn frá alfaraleið og að auðvelt verði að ganga vel frá námunni að lokinni efnistöku. Þó að jarðmyndanir njóti ekki sérstakrar verndar getur verið mjög óæskilegt að taka efni úr þeim ef efnistakan verður til mikilla lýta. Gott dæmi um mikil sjónræn áhrif er efnistaka úr skriðum þar sem lítilsháttar efnistaka neðst í skrið- unni getur valdið því að yfirborð skriðunnar skríður fram, allt upp að klettabeltum sem geta verið ofarlega í fjallinu. Í stærri verkum er það í ferlinu um mat á umhverf- isáhrifum sem ákvörðun er tekin um hvort og með hvaða hætti efnis- taka fer fram. Mikilvægt er að hafa ávallt náið samráð við landeigendur, og frá á með 1. júlí 2012 verður öll efnistaka í námum óheimil nema fyrir liggi framkvæmdaleyfi sveitar- félags. Vorið 1999 voru sett í lög um náttúruvernd (nr. 44/1999) ákvæði um námufrágang. Í 49. grein lag- anna var sett inn ákvæði um að efnistökusvæði skuli ekki standa ónotað og ófrágengið lengur en þrjú ár og í 2. tl. ákvæðis til bráðabirgða er kveðið á um frágang á eldri efn- isnámum, sem ekki eru lengur í notkun. Á árinu 2000 hóf Vega- gerðin átaksverkefni við námufrá- gang í samræmi við ákvæði laganna. Markmiðið var að ganga frá 35 eldri námum árlega. Í júní 2004 gaf Vega- gerðin út ritið „Langtímaáætlun um námufrágang 2004–2018“, þar sem mörkuð er sú stefna Vega- gerðarinnar að frágangi náma, sem ekki eru lengur í notkun (alls um 900 námur), skuli lokið á fimmtán 4. mynd. Borað í klöpp á Hólmahálsi við Eskifjörð. Ljósm. Hafdís Eygló Jónsdóttir.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.