Náttúrufræðingurinn - 2012, Síða 143
143
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Rannsóknir sýna að á köldustu
tímabilum síðasta jökulskeiðs var
styrkur CO2 í andrúmslofti rúmlega
helmingi minni en hann er í dag, og
inngeislun frá sól var þar að auki
lægri vegna reglulegra breytinga
á braut jarðar um sólina (e. orbital
forcing). Mjög gott samræmi er milli
þeirra veðurfarsgagna sem lesa má
úr Grænlandskjörnunum og ann-
arra jarðfræðilegra gagna sem aflað
er víðs vegar um heim.
Nýlegar rannsóknir á djúp-
kjarnanum frá Dome-C (EDC) á
suðurheimsskautinu gefa upplýs-
ingar um veðurfar u.þ.b. 800.000
ár aftur í tímann og sýna þar með
breytilegt veðurfar á suðurskaut-
inu yfir átta síðustu jökulskeið,
eins og sýnt er á 10. mynd.3,43 Þessi
langa loftslagssaga og bættur tíma-
kvarði leyfir nákvæmari skoðun á
tengslum hitastigs á Suðurskauts-
landinu og reglulegra breytinga á
braut jarðar um sólu, og staðfestir
hún að langtímabreytingar stjórnast
af þeim en styttri sveiflur stjórnast
af breytingum í hringrás heimshaf-
anna og lofthringrás.34,35,43 Annar
nýlegur kjarni frá Suðurskautsland-
inu, Dronning Maud Land (EDML),
gefur veðurfar síðastliðin 150.000 ár
í hærri upplausn en nokkur annar
kjarni þaðan.44 Hann sýnir að allar
D/O-sveiflur á Grænlandi á síð-
asta jökulskeiði eiga sér hliðstæðan
topp á Suðurskautslandinu (Ant-
arctic Isotope Maxima). Með niður-
stöðum úr EDML-kjarnanum sést
vel að sterk tengsl eru milli hitafars
á Suðurskautslandinu og Græn-
landi, ekki eingöngu á lengri tíma-
kvarða heldur einnig á tiltölulega
stuttum tímakvarða. Á þeim kvarða
virðast norður- og suðurhvel ekki
í fasa, heldur virðist meðalfasam-
unur vera um 90°. Þannig virð-
ast köldu tímabilin á Grænlandi á
síðasta jökulskeiði vera samtíma
hlýnun á Suðurskautslandinu og
öfugt, en þó eru hitatoppar á báðum
stöðum nokkurn veginn samtíma,
eins og sést vel á 10. mynd, þar
sem NGRIP-d18O-ferillinn (grænn)
er borinn saman við feril Dome-C
kjarnans (rauður).43 Þessi fasam-
unur hefur verið kallaður veðurfars-
10. mynd. Hitastig reiknað út frá samsætumælingum Dome-C-kjarnans á Suðurskautslandinu sem fall af tíma síðastliðin 810.000 ár.
Fyrstu 140.000 árin er hitastigið byggt á 100 ára meðaltali, en þar fyrir neðan er það umreiknað beint frá mælingum á 0,55 m löngum
kjarnabútum. Efsta myndin, sem spannar 140.000 ár, sýnir samanburð við NGRIP-kjarnann á Grænlandi (grænn ferill). Áhrif veður-
farsvegasaltsins (thermal seesaw) milli norðurs og suðurs koma vel fram.42 – Isotopic temperatures calculated for the Dome C deep
ice-core, Antarctica, as a function of time. For the uppermost 140.000 years the temperature is based on 100-year mean values, where-
as for earlier periods is calculated from the 0.55 cm raw data. The uppermost trace shows comparison with the DO events of the NGRIP
core, demonstrating the thermal seesaw between the north and south.42
Ár (þús) – Years (ka)