Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 153

Náttúrufræðingurinn - 2012, Page 153
153 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Goshverir – undur fortíðar Um aldir voru goshverir taldir meðal helstu náttúruundra Íslands. Árið 1907 benti Matthías Þórðarson,7 síðar þjóðminjavörður (2. mynd), á þörfina fyrir verndun goshvera og annarra náttúruminja hér á landi. Hann nefndi m.a. að Almannagjá hefði verið skemmd með vegagerð og Strokkur stíflaður með grjóti. Goshverir eru bæði skammlíf og óstöðug fyrirbæri. Af heimildum má ráða að yfirleitt hafi verið nokkrir virkir goshverir í landinu samtímis og heildarfjöldi þeirra rúmlega 20. Að auki verður að gera ráð fyrir að fjöldi skammlífra goshvera mynd- ist öðru hverju á helstu jarðhita- svæðum landsins. Flestir goshverir voru á Suður- og Suðvesturlandi eða um 14, þar af 7 eða 8 á Geysis- svæðinu. Á Vesturlandi voru tveir goshverir og fjórir á Norðurlandi. Núna, árið 2012, gýs aðeins Strokkur í Haukadal en hann var lífgaður við með borun árið 1963. Þegar Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson rannsökuðu Geysi í Hauka- dal árið 17508 köstuðu þeir hellum og hnullungum af hverahrúðri í hverinn í þeim tilgangi að örva hann til dáða (3. mynd). Jónas Hall- grímsson kannaði Geysi og Strokk 1837. Í dagbókum sínum lýsir hann skemmdum ferðamanna á brúnum og gospípu Strokks og kallar fram- ferðið vandalisma.9 Grjót og torf mun hafa verið borið í Geysi og Strokk allt fram á 20. öld. Árið 1935 var höggvin rauf í skál Geysis og vatnsborðið lækkað um 80 cm. Af öðrum dæmum má nefna að um 1920 var steypt hús ofan á gos- hverinn Strokk á Norður-Reykjum í Borgarfirði og steypt var yfir Reyk- holtshver í Biskupstungum um 1970. Norðanlands var um svipað leyti steypt yfir Uxahver og Syðstahver í Reykjahverfi og áður hafði verið steypt þró umhverfis Strokk. Að Reykjum í Ölfusi mun grjót hafa verið borið í goshveri og í Hvera- gerði var steinhella sett yfir skál Grýlu. Vellir í Reykjadalsá í Borgar- firði er nú óvirkur en hefur sloppið við rask. Nokkrir hinna fjötruðu hvera gjósa reyndar ennþá, en gosin eru lítt eða ekki sýnileg. Áður en vélvæðing komst á fullan skrið á 20. öld hafði um helmingi íslenskra goshvera verið spillt með handafli. Síðar hófst orkuvinnsla úr jarðhitasvæðunum í og við Hvera- gerði, á Reykjanesi og í Reykjahverfi og veldur því að goshverir á þeim svæðum eru ólíklegir til að vakna til lífsins í bráð. Vélvæðing nútímans Undir miðja 20. öld héldu stórvirkar vinnuvélar innreið sína í íslenskt atvinnulíf. Þessu fylgdu geysilegar framfarir á mörgum sviðum, m.a. húsakosti, samgöngum og landbún- aði. Jafnhliða var lítil fyrirhyggja sýnd í umgengninni við náttúru landsins og það ástand varir ennþá í stórum dráttum. Framræsla mýranna Með vélvæðingunni opnuðust ný tækifæri til framfara í landbúnaði. Um 1940 hófst hér á landi umfangs- mikil framræsla mýrlendis sem stóð í hálfa öld, eða allt til 1990. Upphaf- legur tilgangur framræslunnar var að auka möguleika til ræktunar, en eftir 1965 voru mýrar að mestu ræstar fram til að bæta þær sem beitilönd.10 Áætluð stærð mýrlendis á land- inu er 8–10 þús. km2 og talið er að 3. mynd. Geysir þeytir upp vatni og grjóti fyrir Eggert Ólafsson og Bjarna Pálsson árið 1750. – The Great Geysir spouting water and rocks in 1750. Málverk/Painting: Fyrirmæli Eggerts Ólafssonar/After Eggert Ólafssons instructions. 2. mynd. Árið 1907 benti Matthías Þórðar- son, síðar þjóðminjavörður, á þörfina fyrir verndun goshvera hér á landi. – In 1907 Matthías Þórðarson pointed out the need for conservation of geysers in Iceland. Ljósm./ Photo: Þjóðminjasafn Íslands/The National Museum of Iceland.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.