Gripla - 20.12.2014, Blaðsíða 146
GRIPLA146
sierlig sidunum spilla
soma lauser hordomar
aufund med ofsa syndum
yfer geingr suo lengi. (sth. perg. 23 4to 36r)
kippa þeir um klerk upp
kyndugir höfuðsynd:
siða drýgði sviftuðr
sómalausan hórdóm. (Maríuvísur III.18)7
Af 23 hef ég aðeins haft gamlar myndir á filmu. Á þeirri heimild eru
nokkur orð í vísum 10 og 11 illlæsileg eða ólæsileg. Við þau orð sem ég gat
illa lesið hef ég stuðst við útgáfudrög Jóns Helgasonar og uppskrift Jóns
Sigurðssonar í JS 560 4to.
Dróttkvæður háttur á síðmiðöldum
Á fjórtándu öld taka við nýir tímar í íslenskri bókmenntasögu. Þá leggst sá
siður af að íslensk skáld flytji höfðingjum norðurlanda drápur. Áður var
dróttkvæður háttur meginstoðin í þeim kveðskap sem vandaður þótti en nú
fellur hann smám saman í skuggann. Bæði er að aðrir fornir hættir sækja í
sig veðrið, einkum hrynhent og hálfhneppt, en þó mest hitt að rímnahættir
og aðrir endarímaðir bragarhættir ryðja sér til rúms.
Það er þó ekki svo að dróttkvæður háttur gleymist eða líði undir lok.
frá lokum 14. aldar og frá 15. öld eru varðveitt fjögur heilleg helgikvæði
undir þeim hætti. Fyrst er að telja Pétursdrápu, sem varðveitt er í AM 621
4to. Í handritinu AM 721 4to eru síðan Maríuvísur I, Allra postula minn-
isvísur og Vitnisvísur af Maríu. síðasttalda kvæðið er einnig að finna í 713.
Þau verk sem nú hafa verið nefnd eru tekin upp í heildarútgáfur drótt-
kvæða, nú síðast í Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages.8 Hin
yngstu þeirra eru líklega frá um 1450.
7 „Anonymous: Máríuvísur III,“ útg. Kari Ellen gade, í Poetry on Christian Subjects, ritstj.
Margaret Clunies ross, 718–738, Skaldic Poetry of the Scandinavian Middle Ages, 7. b.
(turnhout: Brepols, 2007), 729.
8 „Anonymous: Máríuvísur I,“ útg. Kari Ellen gade, í Poetry on Christian Subjects, 7:678–700;
„Anonymous: Pétrsdrápa,“ útg. David McDougall, í Poetry on Christian Subjects, 7:796–844;
„Anonymous: Allra postula minnisvísur,“ útg. Ian McDougall, í Poetry on Christian Subjects,
7:852–871; „Anonymous: Vitnisvísur af Máríu,“ útg. Kari Ellen gade, í Poetry on Christian
Subjects, 7:739–757.