Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2010, Page 15
14 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Hermanns-Auðardóttir (1989) að land hefði verið numið á Íslandi á 8. eða
jafnvel 7. öld. Undir þessa túlkun tók Páll Theodórsson (1997, 2009) og
notaði 14C greiningarnar úr Reykjavík sem frekari rökstuðning. Hér er
horft framhjá þekktum aldri landnámsgjóskunnar (AD 871±2) og þeirri
staðreynd að viður getur haft töluverðan eiginaldur og því gefið hærri 14C
aldur en sá atburður sem honum er ætlað að aldursgreina. Einnig er litið
framhjá því að korn er að öllum líkindum frá síðustu uppskeru og því betri
sýna gerð en viður til að gefa nákvæman raunaldur á mannvistarleifum.
Aldursgreiningin á ræktaða korninu (U-2674), sem sýnd er á mynd 1,
gefur aldursdreifingu AD 860-1160 miðað við 2 staðalfrávik og gefur því
ekki tilefni til að f lytja landnám í Reykjavík aftur um eina til tvær aldir.
Við uppgröft í Aðalstræti 16 í Reykjavík árið 2001 gafst tækifæri
til að kanna aldursmun á þessum tveimur sýnagerðum, sem geta haft
mismunandi eiginaldur. Átta sýnapörum af viði og korni var safnað þannig
að hvert par var tekið úr sama jarðvegslagi (Árný E. Sveinbjörnsdóttir
og f leiri, 2004). Niðurstöður mælinganna eru sýndar á mynd 3 og sýna
að viðarsýni gefur að jafnaði hærri aldur en korn, sem nemur allt að
100 árum. Þessar niðurstöður voru túlkaðar þannig að kornið gefur
nákvæmari aldur fyrir fornleifarnar en viðarsýnin, sem að jafnaði gefa of
háan aldur (Árný E. Sveinbjörnsdóttir og f leiri, 2004).
4.2 Áhrif sjávar á 14C aldur
Eins og áður segir þarf að leiðrétta mældan aldur vegna þess að náttúrulegar
forsendur eru frábrugðnar því sem 14C aldursgreiningaraðferðin gerir
ráð fyrir. Helsta frávikið stafar af áhrifum sjávar á lífverur. Sjór er
ekki í jafnvægi við andrúmsloftið því kolefni sem sjórinn tekur upp
úr andrúmsloftinu dvelur þar í ákveðinn tíma. Þess vegna er kolefni í
sjónum eldra en í andrúmsloftinu. Sjórinn mælist því með 14C aldur,
sem oft er nefndur sýndaraldur. Hann er mismunandi eftir stöðum á
jörðinni, en er að meðaltali um 400 ár. Sjávarplöntur og lífverur lifa á
þessu „gamla“ kolefni í sjónum og mælast því eldri en þau í raun eru.
Þannig mælast sjávarlífverur í kringum Ísland um 450 árum eldri en
þær í raun eru (14CHRONO Marine Reservoir Database: http://intcal.
qub.ac.uk/marine). Fyrir sjávarlífverur verður að draga þessa tölu frá
tækjaaldri áður en honum er breytt í raunaldur í almanaksárum með
sjávarleiðréttingarkúrfu Marine04 (Hughen og f leiri, 2004).
Sjávarleiðréttingu verður að gera á 14C aldursgreiningum á manna- og