Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2010, Page 128
FRÁ VÖGGU TIL GRAFAR 127
Þrátt fyrir að allar þessar kirkjur hafi verið fulltrúar rómanskrar kirkju-
byggingarlistar hérlendis eru þær, hver á sinn hátt, mismunandi að eðli og
gerð. Ekki er því ætlunin að nota þær hér til samanburðar, enda er ekki
síður mikilvægt að skoða hverja þeirra í sínu eigin samhengi og á eigin
forsendum á hverjum stað fyrir sig.
Grunnform klaustursins á Skriðu er það sama og víðast annarsstaðar
innan hins kaþólska heims miðalda.10 Klausturkirkjan víkur þó einna helst
frá hinu hefðbundna skipulagi. Hún er áberandi minni að grunnf leti en
almennt tíðkaðist í sambærilegum klaustrum erlendis. Eins vekur athygli
að kirkjan sjálf snýr í höfuðáttir, austur og vestur, en það gera klausturhúsin
ekki alveg, þrátt fyrir að saman myndi þau eina þyrpingu. Virðist kirkjan
því byggð örlítið á ská miðað við klausturhúsin sjálf. Það kann að vera að
ekki hafi verið tekið mið af höfuðáttum við byggingu klausturhúsanna
sjálfra en að það hafi aftur á móti verið gert þegar klausturkirkjan var
byggð um 20 árum eftir stofnun klaustursins.
Skriðukirkjur
Nokkuð hefur varðveist af heimildum um Skriðuklaustur, þótt engar
samtímaheimildir séu til um húsaskipan eða byggingarlag. Eins og fyrr
segir hefur sr. Heimir Steinsson tekið heimildirnar saman og yfirfarið.
Á það einkum við um þær sem vitna um stofnun klaustursins, jarðir þess
og jarðakaup en síðast en ekki síst um innviði og gripi Skriðukirkju eftir
siðbreytingu.11 Yngri heimildir um klausturkirkjuna gefa þó einhverja
hugmynd um innréttingar hennar og gripi á klausturtíma þar sem hún
virðist hafa verið notuð samfellt fram á miðja 17. öld.
Eldra byggingarstig – Klausturkirkja
Klausturkirkjan hefur verið 15 x 5,7 m að innanmáli. Enn fremur kom
fram við uppgröftinn að þrjár hliðar kirkjunnar voru gerðar úr torfi og
grjóti en vesturgaf l hefur verið úr viði. Klausturkirkjunni var skipt í kór,
miðskip og framkirkju. Við uppgröft kom einnig í ljós útbrot á norðurhlið
hennar, um 2,5 x 3 m að stærð. Inngangar voru tveir. Aðalinngangur var
á vesturgaf li en inngangur sem snéri að klaustrinu á norðurhlið (mynd 1).
Undirstrika ber að í úttektum frá árunum 1598, 1610 og 1641 er klaustur-
kirkjunni ekki lýst nákvæmlega, hvorki byggingarlagi né heildarstærð.