Valsblaðið - 01.05.2014, Side 4
4 Valsblaðið 2014
„Leggið alla stund á að leggja
fegurð inn í leik yðar“ Jólahugvekja 2014
Hafnfirðingur nokkur var skríðandi við
ljósastaur, augljóslega leitandi að ein-
hverju, þegar maður gekk að honum og
bauðst til að hjálpa honum við leitina: –
Já, takk ég finn ekki lyklana mína. – Ég
skil þig og hvar misstirðu þá? – Jú, þarna
í brekkunni hinu megin við hólinn! – Nú
af hverju í ósköpunum ertu þá að leita
hérna við ljósastaurinn? – Jú, sjáðu til
það er bara miklu betra ljós hérna við
ljósastaurinn.
Manneskjan hefur alla tíð leitað í ljósið. Þetta finnum við
sterkt nú þegar jólaljósin lýsa í skammdeginu og veita aukna
birtu.
Birtan sem stafar frá hinum fyrstu jólum er falleg, sagan um
móðurina ungu sem mitt í vosbúð og vanefnum, hjúfrar barnið
að sér og meðtekur hlýju þess, andardrátt og kærleika. Barnið
sem spáð var að yrði undraráðgjafi, friðarhöfðingi og frelsari.
Barnið sem Davíð Stefánsson orti síðar um: Frá þínum ástareldi
fá allir heimar ljós.
Hátíð ljóss og friðar, minnir okkur á að í lífinu þurfum við
leiðarljós. Við þurfum að vita hvert er stefnt, hvað eykur á gleði
okkar og blessun. Kristin trú boðar þetta leiðarljós. „Ég er ljós
heimsins“ segir Kristur og býðst til að lýsa okkur veg réttlætis
og góðra verka. „Því hver sem fylgir mér mun ekki ganga í
myrkrinu heldur hafa ljós lífsins.“ segir Jesús.
Hafnfirðingurinn þráði ljósið en bar það ekki áfram þangað
sem vandinn lá. Okkar hlutverk er að sjá birtu Guðs og jólanna
og láta hana skína áfram. Myrkur getur ekki hrakið myrkur á
brott, það getur ljósið eitt gert, hatur getur að sama skapi ekki
hrakið hatrið á brott það gerir bara kærleikur og góðvild.
Í vígsluræðunni á Valsvellinum lagði Sr. Friðrik Friðriksson
áherslu á að skapa birtu í kringum sig á íþróttavellinum er hann
sagði: „Leggið alla stund á að leggja fegurð inn í leik yðar, látið
aldrei kappið bera fegurðina ofurliði. …. Kærið ykkur ekki um
að vinna með röngu eða ódrengilegu bragði. Þeir sterkari boli
aldrei hinum yngri og linari frá réttum leik. Segið ávallt satt og
venjið yður á að segja til, ef yður verður eitthvað á og játa það.
Hælist aldrei yfir þeim sem tapa, og gleðjist líka yfir velleiknu
sparki hjá mótleiksmönnum yðar.“
Njótum jólanna, tökum boðskap þeirra og sr. Friðriks alvar-
lega og sköpum birtu í kringum okkur og góðar minningar.
Eftir Guðna Má Harðarson prest við Lindakirkju í Kópavogi
Valsmenn – bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár
HENSON
Nýkjörinn formaður Vals
Björn Zoëga með föður
sínum Jóni Gunnari
Zoëga fyrrum formanni
Vals á 103ja ára afmæli
Vals við styttuna af séra
Friðriki Friðrikssyni.
Fjörmiklar stelpur í 7.
flokki kvenna í fótbolta
vígja Hemmalund á
afmælisdegi Vals 2014.
Guðni Már
Harðarson