Valsblaðið - 01.05.2014, Page 76
76 Valsblaðið 2014
Starfið er margt
Fálkar eru stuðningsmenn
Vals sem starfa fyrir Val
með áherslu á barna- og
unglingastarfið. Upphaflega var
hópurinn eingöngu skipaður
pöbbum sem áttu börn í yngri
flokkum Vals en undanfarið ár
hafa fleiri bæst í hópinn. Fálkar
funda reglulega yfir veturinn
og starfa að ýmsum verkefnum
Fálkar enduðu árið 2013 með glæsilegu
jólahlaðborði þar sem gestir fundarins
voru handboltaþjálfararnir Ólafur Stef-
ánsson og Ragnar Óskarsson. Formaður
félagsins frá upphafi Benóný Valur Jak-
obsson var heiðraður og honum færð
gjöf frá félaginu sem þakklætisvott fyrir
ósérhlífið starf hans fyrir félagið allt frá
stofnun þess árið 2009. Var honum færð
ævisaga Hemma Gunn árituð af höfundi,
honum Orra Páli ásamt einhverjum
guðaveigum.
Árleg dósa- og jólatrjáasöfnun
Fálka í Valshverfinu
Fálkar byrjuðu árið 2014 eins og undan-
farin ár með því að standa fyrir sameig-
inlegri dósa- og jólatrjáasöfnun hjá öll-
um yngri flokkum félagsins. Það er kom-
inn mikil hefð á þetta verkefni og íbúar
farnir að treysta á að krakkarnir mæti í
byrjun árs svo losa megi úr geymslum og
skila trjám til endurvinnslu. Er skemmst
frá því að segja að söfnunin tókst frábær-
lega og safnaðist á vel á aðra milljón sem
flokkarnir skiptu á milli sín eftir fyrir-
fram ákveðnum reglum.
Hemmi Gunn var verndari Fálkanna
Á fyrsta fundi ársins þann 9. janúar var
gestur fundarins svo áðurnefndur Orri
Páll rithöfundur sem las upp úr bók sinni
um Hemma Gunn. Var gerður góður
rómur að og var mikið um spurningar og
umræður. Minnt var á að Hemmi Gunn
var verndari Fálkanna sem var nokkuð
sem honum þótti mjög vænt um. Hemmi
átti eftir að koma meira við sögu hjá
Fálkunum á árinu því Fálkar studdu vel
við verkefnið Hemmalund sem hrint var
í framkvæmd um vorið. Settur var upp
leikvöllur með vönduðum tækjum og var
hugmyndin og fjársöfnun á vegum
Hansa og Sossu eins og við köllum þau í
daglegu tali. Fálkar studdu við verkefnið
með fjárframlagi og vinnandi höndum.
Fálkum fjölgar hægt og rólega
Venju samkvæmt var svo aðalfundur
félagsins haldinn í febrúar þar sem stjórn
Fálka var kjörin og skipti með sér verk-
um. Þær breytingar urðu á stjórn að Sig-
urvin Sigurðsson gekk úr stjórn en í stað
hans var kosinn Sigurður Sigurðsson.
Var svo skipað í nefndir og ráð enda eru
verkefnin fjölmörg. Flestir gegna mörg-
um hlutverkum og veitir ekki af þó að
Fálkum fjölgi hægt og rólega. Nú í lok
árs 2014 eru um 40 virkir félagar. Aðal-
fundur félagsins endar alltaf með glæsi-
legri þorraveislu og var ekki breyting á
því í ár.
Fjölbreytt starf
Á fundi Fálka í mars var gestur fundarins
nýr framkvæmdastjóri Vals, Jóhann Már
Helgason. Sagði hann stuttlega frá sjálf-
um sér og lýsti svo sýn sinni á Knatt-
spyrnufélagið Val og hvernig hann sér
það geta þróast. Mjög áhugaverðar hug-
myndir og spunnust miklar umræður um
framtíðarsýn og stefnu Vals.
Í mars og apríl voru skemmtilegustu
leikir vetrarins sem óhætt er að kalla
einn af hápunktum vetrarstarfs Fálka.
Fjórði flokkur karla og kvenna yngri og
eldri í handbolta spiluðu leiki í Voda-
fonehöllinni í fullri stærð með tónlist,
vallarþul í miklu stuði, heiðursgestum og
grillstemningu. Tókst þetta vægast sagt
frábærlega vel að vanda og vakti
skemmtilega athygli.
Í apríl var gengið frá samningum og
skipulagi vegna grillsumarsins en Fálkar
hafa nú í nokkur ár staðið fyrir grilli á öll-
um heimaleikjum karla og kvenna í meist-
araflokki í knattspyrnu. Það er stór hluti af
fjáröflun Fálka, en eins og kunnugt er
rennur allur ágóði til félagsins með styrkj-
um til yngri flokkanna. Undanfarin tvö ár
hafa nánast öll boltakaup yngri flokka
verið fjármögnuð með styrkjum frá Fálk-
um. Fálkar hafa átt frábært samstarf við
Kjarnafæði og Mylluna undanfarin ár og
varð ekki breyting á því.
Á fundi í maí var að venju hátíðardag-
Fálkaárið 2014
Rúmlega 40 manns eru nú virkir í
fjölbreyttu starfi Fálkanna sem héldu
upp á fimm ára afmæli sitt á árinu.