Valsblaðið - 01.05.2014, Side 24
24 Valsblaðið 2014
Starfið er margt
liðum á eldra ári og einu á því yngra. A-
liðið á eldra ári lék í 1.deild og þrátt fyrir
þó nokkur skakkaföll, svo sem meiðsli
lykilleikmanna, hreppti liðið bronsverð-
laun á Íslandsmótinu. B-liðið lék í 2.
deild og naut liðsinnis nokkurra stelpna
af yngra árinu. Liðið átti á tíðum erfitt
uppdráttar, enda oftast að spila á móti A-
liðum annarra félaga. En liðið tók mjög
miklum framförum og sýndi virkilega
góðan leik á lokamóti vetrarins.
Liðið á yngra ári skiptist á að vera í 1.
og 2. deildinni en tók stöðugum framför-
um og hefði með réttu átt heima í 1.deild
í lok tímabils.
Hópurinn í 5. flokki kvenna er sam-
heldinn en um leið kappsamur og mætti
stundum halda að barist væri upp á líf og
dauða á æfingum. Í flokknum er gríðar-
lega mikið af metnaðarfullum og efnileg-
um leikmönnum sem hafa alla burði til
að ná langt í handbolta.
Yngra ár
Áhugi og ástundun: Þórunn Jóhanna
Þórisdóttir
Mestu framfarir: Nikolina Milansdóttir
Remic
Eldra ár
Áhugi og ástundun: Guðný Kristín
Erlings dótir
Mestu framfarir: Saga Huld Ágústs-
dóttir
Leikmaður flokksins: Auður Ester
Gestsdóttir
5. flokkur karla
Veturinn hjá strákunum hefur verið
hreint ótrúlegur, miklar framfarir, frábær
ástundun og aðsjálfsögðu bikarar. Mikill
iðkendafjöldi var í 5. fl. kk og voru skráð
5 lið til móts samanlagt á eldra- og yngra
ári. Á eldra ári urðu strákarnir í Val 1 Ís-
landsmeistarar í 4. skiptið í röð eftir
hörku mót þar sem úrslitin réðust rétt í
7. flokkur kvenna
7. flokkur kvenna fór á 4 mót i vetur og
stóðu þær sig mjög vel. Þær hafa tekið
gríðarlegum framförum i vetur, bæði á
vellinum og utan vallar. Flokkurinn
skemmti sér vel i vetur og var með
félagslegt nokkrum sinnum, t.d. pizzu-
veisla og leikrit. Þessi vetur hefur verið
frábær með stelpunum.
6. flokkur karla
Veturinn 2013–2014 voru um 36 strákar
að æfa handbolta í 6. flokki karla og er
það stærsti sigurinn. Hópurinn er afar
jafn og sjaldan hafa verið svona margir
álíka leikmenn að æfa saman, skipti nán-
ast ekki neinu máli hvernig skipt var í lið
á æfingum, alltaf jafnir og góðir leikir,
sama átti við þegar valið var í lið. Þetta
sýndi sig á því að Valur1 og Valur2
spiluðu til úrslita á Reykjavíkurmótinu á
eldra ári, 2002. 4 lið voru send til þátt-
töku á eldra ári og tvö á yngra og því 6
lið sem spiluðu undir merkjum Vals í
vetur. Mjög efnilegur flokkur með mik-
inn metnað. 2002 liðið varð Reykjavík-
urmeistari og vann einu sinni 1.deildina.
Yngra árið 2003 tapaði ekki leik í vetur,
gerði eitt jafntefli og unnu alla aðra leiki
og enduðu með að vinna Reykjavíkur-
mótið og öll 5 Íslandsmót sem voru í
boði.
Eldra ár
Leikmaður flokksins: Benedikt Gunnar
Óskarsson
Besta mæting: Jóhann Bjarkar Þórsson
Mestu framfarir: Gunnar Jónsson
Yngra ár
Besta mæting: Tryggvi Garðar Jónsson
Mestu framfarir: Flosi Valgeir Jakobs-
son
5. flokkur kvenna
5. flokkur kvenna tefldi fram tveimur
Uppskeruhátíð handboltans
8. flokkur karla
Um 15 strákar hófu æfingar í 8. flokki
karla sl. haust og voru þeir allir byrjend-
ur. Upp úr áramótum hafði þeim fjölgað
um nærri helming og er óhætt að segja
að það hafi oft verið mikið fjör á æfing-
um. Strákarnir tóku þátt í tveimur mótum
og voru þar flestir að stíga sín fyrstu
skref á keppnisvellinum. Drengirnir
stóðu sig rosalega vel og sýndu marga
snilldartakta. Þeir hafa síðan allir verið
duglegir að mæta á æfingar og hafa tekið
miklum framförum.
8. flokkur kvenna
Sl. haust byrjuðu 7 galvaskar stelpur
handboltaferilinn sinn og var strax ljóst
að þarna leynast framtíðarhandbolta-
stjörnur. Í lok handboltaársins hafði
fjölgað um helming í flokknum. Há-
punktar vetrarins eru klárlega 2 mót hjá
Gróttu og Stjörnunni þar sem stelpurnar
stóðu sig frábærlega.
7. flokkur karla
Í byrjun vetrar var um 15 stráka kjarni að
mæta á æfingar og sáu þjálfararnir fram
á frekar rólegan vetur. Þeir æfðu og
mættu vel og voru mjög áhugasamir og
duglegir. Eftir áramót fóru svo að bætast
við fleiri og fleiri snillingar, sérstaklega í
kringum EM í handbolta. Í lokin voru
um 30 strákar að æfa sem er mjög gott,
það hélt þjálfurunum við efnið að
minnsta kosti. Þjálfararnir lögðu upp
með það að hafa skemmtilegar æfingar
og góða stemningu, og svo auka kröfurn-
ar handboltalega jafnt og þétt. Flottur og
skemmtilegur hópur sem á framtíðina
fyrir sér í Valstreyjunni. Sérstakar þakkir
fá svo að sjálfsögðu foreldrarnir sem
voru afar hjálpsamir allan veturinn í
kringum mót og annað.