Valsblaðið - 01.05.2014, Page 22

Valsblaðið - 01.05.2014, Page 22
22 Valsblaðið 2014 Starfið er margt Karlar Guðmundur Hólmar Helgason, besti leikmaður Alexander Örn Júlíusson, efnilegastur Konur Kristín Guðmundsdóttir, besti leikmaður Morgan Þorkelsdóttir, efnilegust Framtíðin er björt 2. flokkur karla vann allt 2. flokkur karla náði frábærum árangri með því að vinna alla þá þrjá titla sem í boði voru. Liðið tryggði sér deildarmeist- aratitilinn með miklum yfirburðum en deildarmeistaratitillinn var í höfn þegar þrjár umferðir voru eftir af Íslandsmótinu. Í bikarkeppni HSÍ vann Valur lið Fjölnis 34-22 í sextán liða úrslitum og Stjörnuna í átta liða úrslitum, 41-36. Í undanúrslitum var spilaði við FH og vannst sá leikur með minnsta mun, 31- 30. Úrslitaleikur bikarkeppninnar var hörkuspennandi en eftir að Valur hafði leitt leikinn örugglega framan af leik náði Afturelding að jafna leikinn á síð- ustu mínútu leiksins. Valsstrákarnir voru síðan sterkari í framlengingu og tryggðu sér bikarmeistaratitilinn með því að vinna leikinn, 34-33 í hreint frábærum úrslitaleik. Sveinn Aron Sveinsson var valinn maður leiksins af mótshöldurum. Í átta liða úrslitum Íslandsmótsins vann Valur lið Stjörnunnar 28-26 og í undanúr- slitum voru Akureyringar lagði af velli, 27-21. Úrslitaleikur mótins var síðan á móti Haukum og vannst hann auðveldlega 34-25 og þar með þriðji titillinn í hús. Besti leikmaður flokkins var valinn Aex- ander Örn Júlíusson og þá var Ýmir Örn Gíslason valinn efnilegasti leikmaðurinn. deildar. Hrafnhildi er þakkað sérstaklega fyrir sitt framlag um leið og okkur hlakk- ar til að sjá hana á hliðarlínunni. Handknattleiksdeild Vals Þakkar Stef- áni Arnarsyni fyrir gott samstarf sem þjálfara meistaraflokks kvenna. Stefán hefur náð stórkostlegum árangri með Valsliðið á síðustu árum og sannað sig sem einn allra besti þjálfari landsins. Ár- angur hans með Val hefur verið hreint ótrúlegur en liðið varð Íslandsmeistari þrjú ár í röð 2010, 2011, 2012 og síðan kom síðasti titillinn 2014 þegar liðið varð Islandsmeistari í fjórða sinn á síð- ustu fimm árum. Valsliðið varð deildar- meistari fjögur ár í röð, árin 2010–2013 en lenti í 2. sæti í ár. Liðið varð bikar- meistari 2012, 2013 og 2014. Samtals sautján titlar á þeim sex árum þegar allt er talið. Við þökkum Stefáni kærlega fyr- ir samstarfið og óskum honum velfarn- aðar á nýjum vettvangi. Þjálfarar: Stefán Arnarson og Óskar Bjarni Óskarsson Sjúkraþjálfari Valgeir Viðarsson Liðstjóri Hulda Steinunn Steinsdóttir Á uppskeruhátíð meistaraflokks karla og kvenna voru verðlaunaðir þeir leik- menn sem sköruðu fram úr á tíma- bilinu. raunin og allt í járnum og jafnt í einvíg- inu. Þá var það hreinn úrslitaleikur í Mýr- inni og bæði lið gáfu allt í sölurnar, nokkuð jafn leikur en Valsstúlkur leiddu mestan hluta leiksins, leynivopnið okkar Sigurlaug Rúna Rúnarsdóttir kom inn með reynslu og reyndist erfitt fyrir Stjörnustúlkur að finna eitthvað um hana fyrir leikina þar sem það er víst einungis til á VHS spólum og setti hún fjögur mörk á mikilvægu augnabliki. Leikurinn endaði 20-23 og Íslandsmeistaratitill í höfn. Þess má geta að við misstum nokkra mikilvæga leikmenn í meiðsli á tímabilinu, Ragnhildi Rósu, Írisi Ástu og Hrafnhildur Skúladóttir spilaði sárþjáð alla úrslitakeppnina með gallsteina. Símabikarinn Í Coca Cola bikar kvenna fórum við alla leið í úrslit og voru spiluð fjögurra liða úr- slit í höllinni líkt og árið áður. Í 8 liða úr- slitum mættum við liði ÍBV og vannst sá leikur 27-20, næst fengum við lið Hauka og unnum þann leik 21-25 í höllinni og þar með komin í úrslitaleik. Þar mættum við liði Stjörnunnar og ætluðu okkar stelpur ekki að láta í minni pokann og unnu sannfærandi sigur 19-24 og Síma- bikarmeistarar 2014 og þriðja árið í röð. Annars gott ár á enda þar sem þrír titl- ar af fimm mögulegum komu í hús. Fyrirliði og íþróttamaður Vals 2009 Hrafnhildur Skúladóttir lagði skóna á hilluna í maí og mun snúa sér að öðrum verkefnum innan félagsins, sem snúa að þjálfun yngri iðkenda handknattleiks- Íslands­, deildar­ og bikarmeistarar 2. flokks karla í handknattleik 2014. Efri röð frá vinstri. Ragnar Óskarsdon, Sturla Magnússon, Bjartur Guðmundsson, Geir Guð­ mundsson, Alexander Örn Júlíusson, Daníel Ingason, Baldvin Fróði Hauksson, Kári Elísson, Daníel Andri Valtýsson, Ýmir Örn Gíslason, Maksim Akbachev, Benedikt Óskarsdon og Heimir Ríkarðsson. Neðri röð. Stefán Pétur Gunnarsson, Helgi Karl Guðjónsson, Sveinn Aron Sveinsson, Fjölnir Georgsson, Kristján Ingi Kristjánsson og Valdimar Sigurðson. Fjáröflun á heimaleik fyrir keppnisferð. Sigurður Ásbjörnsson er einn fjölmargra sjálf­ boðaliða í Val og situr m.a. í ritnefnd Valsblaðsins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.