Valsblaðið - 01.05.2014, Side 67
Valsblaðið 2014 67
Starfið er margt
Snædís hefur æft fótbolta síðan hún var 5
ára, í 11 ár. Mamma hennar er Valsari og
hún telur að það haf skipt máli þegar hún
byrjaði í Val.
Hvers vegna fótbolti? „Ég hef örugg-
lega æft flestar íþróttir sem hægt er að
æfa hérna á Íslandi fyrir utan dans og
eitthvað svoleiðis. Fótboltinn stóð upp úr
og ég hef svo mikinn áhuga svo það var
ekki spurning að leggja mesta áherslu á
hann.“
Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að
hafa fengið Friðriksbikarinn? „Það er
frábær viðurkenning sem ég er mjög
ánægð með. Þetta hvetur mann til að
halda áfram að standa sig og vera sam-
kvæmur sjálfum sér.“
Hvernig gekk ykkur á þessu ári?
„Okkur hefur nú oft gengið betur en við
enduðum í miðri deildinni, þrátt fyrir að
hafa nánast verið í fallbaráttu. En þetta
var frábært tímabil samt sem áður, við
fórum til Svíþjóðar að taka þátt í Gothia
Cup sem var eitt það skemmtilegasta
sem ég hef gert. Ég held að það sé ekkert
lið með svona góðan móral eins og við
höfum og það skiptir ekki máli hverjar
eru á eldra eða yngra ári, við náum mjög
vel saman. Við höfum líka gaman utan
vallar, fíflumst og erum bjánalegar en
síðan eru alvöru vináttusambönd og við
stöndum við bakið á hver annarri og
erum til staðar fyrir hverja aðra.“
Hvernig eru þjálfarar þínir? „Mér
finnst fyrst og fremst að þjálfari eigi að
hafa gaman af og leggja metnað í það
sem hann er að gera. Margrét, Birkir og
Rakel voru öll með okkur þetta tímabil,
þau eru metnaðarfull og vilja að við
náum langt en síðan er líka hægt að
hlæja með þeim og hafa gaman.“
Fyrirmyndir þínar í fótboltanum?
„Mín helsta fyrirmynd er Alex Morgan,
Abby Wambach kemur líka mjög sterk
inn og eiginlega bara allt bandaríska
kvennalandsliðið. Einnig hefur Sif Atla-
dóttir reynst mér góð fyrirmynd.“
Hvað þarf til að ná langt? „Sama hvað
þú æfir mikið, ef þú hefur ekki gaman af
því sem þú ert að gera eða trúir ekki á
sjálfan þig þá geturðu alveg eins bara
farið heim að horfa á sjónvarpið í staðinn
fyrir að fara á æfingu. Ég þyrfti kannski
helst að bæta snerpu og tækni, en það er
allt í vinnslu.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar?
„Gaman að þú skyldir spyrja að því, ég
er neflinlega búin að skipuleggja fram-
tíðina mína í smáatriðum. Fyrsta mark-
miðið er að spila með meistaraflokki
Vals. Ég stefni samt á að fara á næsta ári
sem skiptinemi til Ástralíu. En eftir það
langar mig ekkert smá mikið að fara til
Bandaríkjanna í háskóla á skóla- og fót-
boltastyrk. Þar langar mig að læra
íþróttasálfræði, næringarfræði eða
sjúkraþjálfun. Ég hefði heldur ekkert á
móti því að hafa þetta sport fyrir atvinnu
og þá helst í Svíþjóð eða Noregi og
kannski verð ég þar eftir 10 ár. Síðan má
ekki gleyma því að mig langar að spila
fyrir landsliðið en það er langþráður
draumur.“
Frægasti Valsarinn í fjölskyldunninni?
„Ætli það sé ekki móðir mín, Bryndís
Valsdóttir. Hún spilaði með meistara-
flokki í Val í mörg ár, hún var líka í
landsliðinu og ein af þremur fyrstu at-
vinnumönnum Íslands í kvennaknatt-
spyrnu en hún spilaði í Napoli á Ítalíu
með tveimur bestu vinkonum sínum,
Guðrúnu Sæmundsdóttur og Kristínu
Briem. Hún er sennilega líka besti
íþróttamaðurinn í fjölskyldunni þó pabbi
gamli, hann Logi Ólafsson, hafi kannski
mesta vitið á íþróttinni þar sem hann hef-
ur mikla reynslu af fótboltaþjálfun.“
Stuðningur fjölskyldu? „Ég hef fengið
mikinn stuðning frá foreldrum mínum og
einnig hafa þau leiðbeint mér bæði með
það hvað ég get gert betur og hvernig ég
á að takast á við meiðsli, þar sem þau
voru bæði í fótbolta og hafa því mikla
reynslu af íþróttinni. Ég er mjög þakklát
fyrir þann stuðning sem ég hef fengið frá
þeim og efast ekki um að ég sé betri leik-
maður með hjálp þeirra svo ég tel að það
geti skipt sköpum að fá stuðning.“
Hvað finnst þér mikilvægtast að gera
hjá Val til að efla starfið í yngri flokk-
unum? „Mér finnst yngri flokkum ekki
gefin næg athygli en það væri í rauninni
eina sem mætti bæta. Svo bara að leggja
áherslu á að vera með metnaðarfulla
þjálfara í starfi.“
Hvernig er aðstaðan á Hlíðarenda til
að æfa fótbolta? „Hlíðarendi er mjög
fallegur staður og Vodafone völlurinn
líka en gervigrasið er ekki alveg styrk-
leiki félagsins. Það mætti bæta það veru-
lega en það kostar auðvitað mikinn pen-
ing að hita það og bæta undirlagið en
þangað til má útvega okkur tíma á al-
mennilegum gervigrasvöllum.“
Hvað finnst þér að Valur geti gert til
að stuðla að jafnrétti í íþróttum?
„Mætti kannski byrja á að losa sig við
karlrembuna. Ég hef allavega fundið
mikið fyrir því að þeir þarna í meistara-
flokki karla séu kóngarnir og stelpurnar
séu bara afgangur, en vonandi lagast það
sem fyrst.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra
Friðrik Friðriksson 11. maí 1911.“
Hver eru þín einkunnarorð? „Sá sem
segist ekki geta eitthvað og sá sem segist
geta það hafa oftast báðir rétt fyrir sér.“
Áhugi og ástríða er
lykillinn að árangri
Snædís Logadóttir er 16 ára og leikur knattspyrnu
með 2. flokki og er handhafi Friðriksbikarsins í ár