Gerðir kirkjuþings - 1991, Page 101
aöilar tilnefna varamenn í nefndina. Nefndin skal gefa kjörmannafundi skriflega og
rökstudda umsögn um hæfni umsækjenda til að gegna embættinu.
Kirkjumálaráðherra setur nánari reglur um störf nefndarinnar að höfðu samráði
við biskup.
4. gr.
3. gr. orðist svo:
Kjörmannafundur er lokaður og stýrir prófastur honum. Fyrir fundinn skulu
kjörmenn hafa fengið í hendur umsóknir um prestakallið.
Áður en atkvæðagreiðsla fer fram, skal prófastur kanna, hvort óskað er
umsagnar nefndar skv. 3. gr. um umsækjendur. Ef svo er, skal kjörfundi frestað og
prófastur hlutast til um að afla hennar.
Séu færri en 3/4 hlutar kjörmanna á fundi, þegar atkvæðagreiðsla á að fara
fram, skal prófastur fresta henni að svo stöddu og boða nýjan kjörfund innan mánaðar.
Ekki skal fresta kjörfundi oftar en einu sinni, enda þótt fjöldi kjörmanna við
atkvæðagreiðslu nái ekki 3/4 hlutum.
Atkvæðagreiðsla er leynileg. Prófastur afhendir hverjum kjörmanni atkvæðaseðil
með nöfnum umsækjenda. Kjörmaður setur kross fyrir framan nafn þess, er hann velur.
Atkvæði eru talin á kjörmannafundi. Ef umsækjandi er einn telst val hans
bindandi hafi hann hlotið 2/3 hluta greiddra atkvæða.
Ef umsækjendur eru fleiri en einn, telst val á umsækjanda bindandi, ef hann fær
meirihluta atkvæða. Fái enginn meirihluta atkvæða skal endurtaka kosninguna milli
þeirra umsækjenda, sem fengu atkvæði. Sá sem fær meirihluta atkvæða við endurtekna
kosningu telst kosinn bindandi kosningu. Fái enginn meirihluta atkvæða eftir þrjár
kosningaumferðir, telst val ekki bindandi.
Nú vill meiri hluti kjörmanna hafna umsækjendum með því að skila auðum
atkvæðaseðlum og er þá ráðherra óheimilt að veita embættið.
5. gr.
Við 6. gr. 3. mgr., bætist:
Og að liðnum þeim fresti, sem kjörmenn hafa til að kalla prest, sbr. 7. gr. 3. tl.
II. kafli
Brevting á II. kafla laga um veitingu prestakalla
6. gr.
7. gr. orðist svo:
Heimilt er kjörmönnum að kalla prest án umsóknar í eftirfarandi tilvikum, enda
séu 3/4 hlutar þeirra einhuga um það:
98