Gerðir kirkjuþings - 1995, Qupperneq 193
1995
26. KIRKJUÞING
3, mál
Starfsmenn kirkjusókna
60. gr.
I kirkjusókn starfar organisti. Rétt til að kallast organisti hefur hver sá sem
uppfyllir tilskildar kröfur um menntun samkvæmt áfangakerfí námsskrár Tónskóla
þjóðkirkjunnar. Um störf organista fer eftir ákvæðum í starfsreglum sbr. 62. grein.
61. gr.
Kirkjuþing skal setja ákvæði um stöðu og störf starfsmanna sókna í starfsreglur, sbr.
62.gr.
IV. kafli
Starfsreglur
62. gr.
Um aðra starfsmenn þjóðkirkjunnar en þá, er fyrr hafa verið taldir, fer eftir
almennum reglum um starfshætti hennar, er kirkjuþing setur og hafi að geyma nánari
fyrirmæli um stjómun og starfshætti kirkjunnar á gmndvelli laga þessara. í reglum þessum
skal m.a. kveðið á um hlutverk starfsmanna þjóðkirkjunnar eftir því, sem við getur átt.
Kirkjuþing setur jafnffamt nánari reglur um tiltekna þætti kirkjustarfsins, sem eigi er
fjallað um í hinum almennu reglum, sem getið er um í 1. mgr. Þá staðfestir kirkjuþing
stofiiskrár og nánari reglur um stjóm og starfsemi stofiiana, er starfa á vegum
þjóðkirkjunnar, en kirkjuráð staðfestir endurskoðaða reikninga þeirra stofnana og birtir þá
síðan í skýrslu sinni til kirkjuþings.
Kirkjuráð geíur út reglur þær og stofnskrár, er um ræðir í 1. og 2. mgr., ásamt
breytingum, sem kunna að verða gerðar á þeim. Skulu reglur og stofiiskrár, sem og
breytingar á þeim, birtast á prenti í síðasta lagi innan fjögurra vikna frá því að kirkjuþing
samþykkti þær. Ber kirkjuráði að hafa eftirlit með því, að eintök þeirra séu aðgengileg fyrir
almenning frá þeim tíma, auk þess sem kirkjuráð annast dreifingu þeirra og kynningu með
tilhlýðilegum hætti.
Hafi eigi verið á annan veg mælt í reglum þeim, sem hér um ræðir, öðlast þær, sem
og breytingar, bindandi gildi á þrítugasta degi fiá útgáfúdegi þeirra. Eftir þann tíma ber
öllum starfsmönnum þjóðkirkjunnar, sem og öðrum þeim, sem reglunum er ætlað að binda,
að fara eftir þeim.
V. kafli
Réttarstaða starfsmanna
63. gr.
Þjónandi prestar þjóðkirkjunnar, sbr. 30. gr., njóta réttinda og bera skyldur sem
opinberir starfsmenn eftir því, sem nánar er mælt fyrir um í lögum nr. 38/1954 svo og
öðrum lögum, er kveða á um réttarstöðu opinberra starfsmanna, sbr. þó 11. og 12. gr. laga
þessara. Hið sama gildir um aðra starfsmenn þjóðkirkjunnar, eftir því sem við getur átt.
Um lágmarkslaunakjör þeirra starfsmanna þjóðkirkjunnar, sem taka laun samkvæmt
launakerfi opinberra starfsmanna, fer eftir lögum um kjaradóm nr. 92/1982 með áorðnum
188