Peningamál - 01.11.2006, Side 28
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
3
28
Tafl a V-2 Fjármál ríkissjóðs 2005-20081
% af landsframleiðslu 2005 2006 2007 2008
Tekjur 37,0 37,6 35,5 34,1
Gjöld 31,1 30,3 31,1 32,0
Afkoma 5,9 7,3 4,3 2,1
Sveifl uleiðrétt afkoma 4,3 6,1 3,7 1,1
Lánsfjárafgangur 11,6 6,9 4,1 1,9
Hreinar skuldir2 2,9 -3,5 -7,0 -8,6
Heildarskuldir 18,3 11,9 7,7 6,1
1. Uppsetning þjóðhagsreikninga. 2. Með innstæðum ríkissjóðs en án lífeyrisskuldbindinga.
Heimildir: Hagstofa Íslands, fjármálaráðuneytið, Fjársýsla ríkisins, grunnspá Seðlabankans 2006-2008.
2005 og námu 23 ma.kr. Áætlað er að tekjurnar aukist um 50% í ár,
verði 38 ma.kr. og haldist óbreyttar á næsta ári.
Á síðasta ári námu tekjur ríkissjóðs af fjármagnstekjuskatti 14½
ma.kr. (án skattgreiðslna ríkissjóðs). Um 56% framtalinna fjármagns-
tekna voru söluhagnaður, 22% arður og 20% vextir og hækkuðu allir
liðir verulega milli ára árið 2005 og hafa enn hækkað það sem af er
þessu ári. Þar sem tekjur ríkissjóðs af fjármagnstekjuskatti eru háðar
hagnaði og vaxtastigi er nú áætlað að tekjur af fjármagnstekjuskatti
aukist um rúmlega fjórðung á þessu ári, í 18½ ma.kr. Gert er ráð fyrir
svipuðum tekjum árið 2007, en að þær lækki nokkuð árið 2008.
Dregur úr tekjuafgangi ríkissjóðs á næsta ári ...
Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2007 var lagt fram hinn 2. október. Þar var
gert ráð fyrir um 15 ma.kr. afgangi á rekstri ríkissjóðs, en að teknu til-
liti til kostnaðar við skattalækkanir sem kynntar voru 9. október sl. má
áætla að afgangurinn geti numið tæplega 10 ma.kr. Þessar boðuðu
skattalækkanir, ásamt þeim sem áður hafa verið ákveðnar, hafa í för
með sér að tekjur ríkissjóðs lækka um 6% að raunvirði milli ára, miðað
við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarps, eða um 20 ma.kr.
Gert er ráð fyrir að regluleg útgjöld ríkissjóðs hækki um 4% að
raunvirði eða 15 ma.kr.1 Þar af má rekja um helming til framlags rík-
isstjórnarinnar vegna endurskoðunar launaliðar kjarasamninga og við-
ræðna við samtök aldraðra. Með þessum breytingum versnar afkoma
ríkissjóðs um 35 ma.kr. milli ára.
Áætlanir Seðlabankans sýna svipaðar breytingar milli ára, 5%
samdrátt rauntekna en um 3% hækkun raungjalda. Samkvæmt því
lækkar tekjuafgangur um 35 ma.kr. að raunvirði og verður um 50
ma.kr.
... og enn frekar árið 2008
Á árinu 2008 er áætlað að afkoma ríkissjóðs versni áfram en verði þó
jákvæð um 25 ma.kr. eða 2% af landsframleiðslu. Samkvæmt spá
Seðlabankans verða breytingar milli ára svipaðar og í langtímaáætlun
ríkissjóðs. Rauntekjur lækka um 2½%, að mestu vegna minni tekna
af tekjuskatti fyrirtækja. Áætlað er að útgjöld ríkissjóðs aukist um
Tekjuskattur lögaðila
Fjármagnstekjuskattur
Mynd V-4
Fjármagnsskattar 1980-2008
Tekjuskattur lögaðila og fjármagnstekjuskattur
% af VLF
Heimildir: Ríkisreikningur, grunnspá Seðlabanka Íslands.
0
1
2
3
4
‘07‘04‘01‘98‘95‘92‘89‘86‘83‘80
Tekjuskattur einstaklinga
Tekjuskattur fyrirtækja
Fjármagnstekjuskattur
Óbeinir skattar
Mynd V-5
Helstu breytingar ríkistekna 2005-2008
Breyting frá fyrra ári
Ma.kr., á verði hvers árs
Heimild: Grunnspá Seðlabanka Íslands.
-30
-25
-20
-15
-10
-5
0
5
10
15
20
200820072006
Samneysla
Tilfærslur
Fjármunamyndun
Vaxtagjöld
Mynd V-6
Helstu breytingar ríkisútgjalda 2005-2008
Breyting frá fyrra ári
Ma.kr., á verði hvers árs
Heimild: Grunnspá Seðlabanka Íslands.
-10
-5
0
5
10
15
20
25
200820072006
1. Reiknað er með afskriftum skatttekna og lífeyrisfærslu í meðallagi en fjármagnstekjuskatti
ríkisins er sleppt.