Glóðafeykir - 01.11.1972, Side 5
GLOÐAFEYKIR
5
Aðalfundir
Nýlega eru afstaðnir aðalfundir Mjólkursamlags Skagfirðinga og
Kaupfélags Skagfirðinga (21. apríl og 27.-28. apríl).
Tobías Sigurjónsson, Geldingaholti, form. stjómar K. S., setti
báða fundina og flutti skýrslu stjómar, en fundarstjóri á fundunum
var Gísli Magnússon, Eyhildarholti. Fundarritarar voru Halldór
Hafstað og Rósmundur Ingvarsson á aðalfundi M. S. og F.gill Bjarna-
son og Sigurður Sigurðsson á aðalfundi K. S.
ÁRSFUNDUR MJÓLKURSAMLAGSINS
var haldinn í Bifröst á Sauðárkróki 21. apríl s.l. í ýtarlegri skýrslu
Sólbergs Þorsteinssonar, samlagsstjóra, komu fram m. a. eftirfarandi
upplýsingar:
Innvegið mjólkurmagn á árinu 1971 var kg 7.772.948 og hafði
aukizt um 7,7% frá fyrra ári. Meðalfeiti mjólkurinnar reyndist
3,828% og hafði aukizt aðeins frá árinu 1970.
Neyzlumjólkursala var aðeins um 10% af heildarmagni innleggs,
og fóru því um 90% af mjólkinni til vinnslu.
Á árinu framleiddi samlagið 137 tonn af smjöri, 481 tonn af
mjólkurostum og 18 tonn af ostaefni. Sala á skyri var um 72 tonn
og af rjóma seldust 47.800 ltr.
Um áramótin síðustu voru smjörbirgðir 78 tonn og mjólkurostar
102 tonn.
Innleggjendur voru 315 og hafði fækkað um 7. Meðalinnlegg
reyndist 24. 671 kg og hafði vaxið um liðlega 2 þús. kg frá fyrra ári.
Heildargreiðslur til innleggjenda fyrir framleiðsluna 1971 er um
120 milljónir, senr gerir 15,96 kr. á ltr., eða um 30 aura umfram
staðargrundvallarverð.
AÐALFUNDUR KAUPFÉLAGS SKAGFIRÐINGA
var haldinn 27. og 28. apríl s.I. á Sauðárkróki. Sveinn Guðmunds-
son, kaupfélagsstjóri, flutti þar yfirgripsmikla ræðu um hag og horf-