Glóðafeykir - 01.11.1972, Blaðsíða 47
GLOÐAFEYKIR
47
Sveinn bjó jafnan góðu búi og gagnsömu og var ávallt í beztu
bænda röð, enda allt í senn: fyrirhyggjusamur, verkhagur ágæt-
lega og aðfaramaður um dugnað; gekk þó sjaldan heill til skógar,
var löngum þjáður af liðagigt allt frá fermingaraldri eða f\Tr. En
hann var harðneskjumaður og hlífði sér hvergi, ókvalráður og eigi
kvartsár.
Þau hjón eignuðust 9 böm og komust 6 til fullorðinsára: Herjólf-
ur, lengi bóndi í Hofstaðaseli, nú verkam. í Reykjavík, Hólmfriður,
húsfr. á Sauðárkróki, Jóna, húsfr. í Kýrholti í Viðvíkursveit, Jóhanna
og Þorbjörg, báðar húsfr. í Reykjavík og Sigriður, húsfr. á Siglufirði.
Sveinn Amfrímsson var mikill maður á vöxt og karlmenni, glæsi-
legur að vallarsvn á yngTÍ árum. Hann var um marga hluti vel gerð-
ur maður, cr í lund og stórbrotinn, höfðingi heim að sækja, gestris-
inn og greiðasamur og þá eigi smátækur alltaf. Kjarkur og þor óbil-
andi, allir vegir færir, — en forsjálni þó og f\TÍrhyggja eigi minni.
Sveinn \ar laoinn hestamaður. Hann var gleðimaður og skemmti-
legur í viðræðu, félagsmaður ágætur og vinsæll. Með honum og
þeim hjónum báðum var jafnan gott og notalegt að vera.
Ingib jörg Friðfinnsdóttir, fv. húsfr. í Bjarnastaðahlíð, lézt 8. marz
1963. Hún var fædd á Abæ í Austurdal 24. júlí 1871, dóttir Friðfinns
bónda í St'gaseli í Austurdal o. v. Friðfinnssonar, og bústýru hans
Margrétar Guðmundsdóttur bónda á Abæ.
Ingibjörg mun hafa alizt upp að mestu á
Ábæ og e. t. v. víðar í Dölum fram. Hún
stundaði nám í kvennaskólanum á Lauga-
landi í Eyjafirði 1892—1894.
Aldamótaárið, á Jónsmessu, giftist hún
Guðrnundi Sveinssyni í Bjamastaðahlíð. Sjá
þátt um hann í 5. h. Glóðafeykis, bls. 31.
Bjuggu þau ágætu búi í Bjamastaðahlíð
nálega hálfa öld. frá 1900—1947, en voru
eftir það með bömum sínum, meðan bæði
lifðu. Ingibjörg missti mann sinn 18. jan.
1952. Eftir það var hún lengstum hjá dótt-
ur sinni og tengdasyni á Hafgrímsstöðum í Tungusveit.
Þau hjón eignuðust 4 böm og komust 3 upp: Snjólaug, húsfr. á
Hafgrímsstöðum, Sveinn, bóndi í Amesi í Tungusveit, d. 1950, og
Gisli, bóndi í Bjamastaðahlíð.
Ingibjörg Friðfinnsdóttir var í minna lagi á vöxt, en vel farin
Ingibjörg Friðfinnsdóttir