Glóðafeykir - 01.11.1972, Blaðsíða 57
GLÓÐAFEYKIR
57
síðar presti á Hesti, dr. theol.' og Erlingi Sveinssyni, síðar bónda á
Víðivöllum ytri í Fljótsdal austur. Mun Blönduhlíð naumast í ann-
an tíma hafa haft á að skipa, samtímis, öllu meiri görpum til náms, en
þeim félögum þrem.
Næstu árin stundaði Stefán kennslu á
vetrum. Árið 1918 kvæntist hann Helgu
Jónsdóttur bónda á Flugumýri, Jónassonar
bónda á Engimýri í Öxnadal, Magnússonar,
og fvrri konu hans Ingibjargar Jónasdótt
ur bónda á Bakka í Öxnadal, Sigurðssonar.
Kona Jónasar á Bakka og móðir Ingibjargar
var Helga Fgilsdóttir bónda á Bakka, Tóm-
assonar. Böm þeirra Stefáns og Helgu eru
5: Ingibjörg, húsfr. á Sauðárkróki, Geir-
þrúður, húsfr. í Reykjavík, Jón, verkstj. á
Bifr- og vélaverkst. Kaupfél. Skagf., Eiríkur
Haukur, málarameistari, og Hrafnhildur, htisfr., öll á Sauðárkróki.
Þau Stefán og Helga hófu búskap 1920, fyrsta árið á Flugumýri,
hið næsta í Sólheimum í Blönduhlíð. Keyptu höfuðbólið Hjalta-
staði 1922, fóru byggðum þangað og bjuggu þar til 1941, er þau
seldu jörð og bú og hurfu til Sauðárkróks, þar sem heimili þeirra
stóð æ síðan.
A Hjaltastaðabóndann hlóðust trúnaðarstörf. Hann sat í hrepps-
nefnd 1922—1937, í skattanefnd 1922—1940, í skólanefnd mörg ár,
var safnaðarfulltrúi, deildarstjóri Akradeildar K. S., vann á sínum
tíma ásamt með sr. Sigfúsi jónssyni kaupfélagsstjóra manna mest að
stofnun Mjólkursamlags Skagfirðinga. Var mörg ár í stjórn Sögu-
félags Skagfirðinga. Fyrstu árin eftir að til Sauðárkróks kom, var
hann við bamakennslu á vetrum, en verkstjóri hjá Síldarverksmiðj-
um ríkisins á Siglufirði á sumrum. Fastráðinn skrifstofumaður hjá
Mjólkursamlagi Skagfirðinga varð hann 1947 og gegndi því starfi
unz hann lagðist banaleguna. Endurskoðandi Kaupfélags Skagfirð-
inga 1944—1957 og Btinðarsamb. Skagf. 1931—1939. Ritari bæjar-
stjórnar allmörg ár. Hann var og ritari sýslunefndar 1939—1962 og
átti ómældan þátt í því að gera sýslufundi að samfelldri „sæluviku“;
var þá tíðkuð orðagleði og yrkingar, er í milli varð, og ekki sútar-
legar allar.
Stefán Vagnsson var um margt óvenjulegur maður og ágætlega
gerður, líkamlega jafnt sem andlega. Hann var meðalmaður á vöxt,
fríður sýnum og bar sig vel, afreksmaður um íþróttir og alla fim-
Stefán Vagnsscm