Glóðafeykir - 01.11.1972, Blaðsíða 54

Glóðafeykir - 01.11.1972, Blaðsíða 54
54 GLOÐAFEYKIR farið var svo ljúft og hlvtt og gott, að fágætt má telja. Haiin var einlægur barnavinur og dýra, varðveitti sitt eigið bamshjarta hreint og óspillt alla ævi. Hann var frábær viljamaður, sívinnandi, og svo mikill og góður verkmaður, að hverju sem gekk. að til var jafnað. Magnús Asgrímsson gegndi eigi opinberum trúnaðarstörfum. En eigi gat mann, er trúrri væri samfélaginu en hann. Eigi gat mann, er með ljúfara geði rækti þær skyldur, er lífið sjálft leggur hverjum manni á herðar. Árni Gislason, afgreiðslumaður á Sauðárkróki, lézt 13. ágúst 1963. Hann var fæddur í Miðhúsum í Blönduhlíð 15. febrúar 1904. For- eldrar: Gísli bóndi í Miðhúsum Þorfinnsson í Hofstaðaseli, Halls- sonar hreppstjóra á Reykjum og Skúfsstöð- um í Hjaltadal, Jónssonar, og kona hans Guðrún Jónsdóttir bónda í Miðhúsum, Björnssonar, en kona Jóns og móðir Guð- rúnar var Þrúður Jónsdóttir bónda í Stokk- hólma o. v., Guðmundssonar. Arni ólst upp með foreldrum sínum í Miðhúsum í stórum og glaðyærum syst- kinahópi. Þá var margt æskumanna í Akra- torfu, þar sem túnin liggja saman, og líf og fjör á ferðum. Dró og ekki úr að þar, á Ámi Gislason Stóru-Ökrum, var samkomustaður sveitar- innar, sem og er enn, og mannkvæmt oft. Arni hvarf að heiman um eða innan við tvítugsaldur. Fýsti hann að alla sér nokkurrar menntunar, þótt fararefni væru í minna lagi. Hót n.im í Hvítárbakkaskóla 18 ára gamall, fór utan nokkru síðar, til Danmerkur, gekk í fimleikaskólann í Ollerup og lauk prófi þaðan. i Ivarf eftir það lieim til íslands og sinnti ýmsum störfum, m. a. í Vestmannaeyjum um skeið, unz hann réðst til Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki og vann á vegum félagsins alla stund síðan, við bílstjórn, afgreiðslu o. fl. Arið 1933 gekk Árni að eiga Ástrúnu Sigfúsdóttur prests á Mæli- felli, síðar kaupfélagsstjóra og alþingsmanns, Jónssonar, og konu hans Petreu Þorsteinsdóttur (sjá þátt um Jón bróður hennar í Glóðafeyki 1969, 10. h., bls. 73), hinni mætustu konu. I.ifir hún mann sinn. Börn þeirra eru tvö: Ragnheiður, húsfr. og hjúkr- unarkona á Akureyri og Sigfús, prestur á Miklabæ í Blönduhlíð. Árni frá Miðhúsum var meðalmaður á velli og þó heldur í lægra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.