Glóðafeykir - 01.11.1972, Blaðsíða 15
GLOÐAFEYKIR
15
Lánskostir kaupfélaga
„Hlynur" er mánaðarrit, gefið út af Samb. ísl. samvinnufélaga,
Starfsmannafélagi SÍS og Félagi kaupfélagsstjóra, 16 blaðsíður hvert
tbl. (hefti). Ritið flytur fréttir frá kaupfélögunum og margháttaðan
fróðleik um samvinnumál. I 4 tbl. þ. á. er greint frá því, að Skipu-
lagsdeild Sambandsins hafi „dreift sérstakri skýrslu um efnahag og
rekstur kaupfélaganna á árunum 1966—1970. Sú skýrsla er lögð fram
af Sigurði Markússyni frakv.stj. og unnin upp úr svonefndum Hag-
skýrslum kaupfélaga, sem safnað hefur verið um langt árabil og hafa
að geyma upplýsingar úr endurskoðuðum efnahags- og rekstrar-
reikningum kaupfélaganna."
Síðar í sömu grein segir:
„Sérstaka athygli vekur og það, sem segir í skýrslunni um heildar-
stöðu félaganna gagnvart bönkum og sparisjóðum landsins. Inn-
eignir félaganna í þeim aukast verulega á tímabilinu, úr 20 millj.
kr. í árslok 1966 upp í 70 millj. kr. í árslok 1970. Yfirdráttarfyrir-
greiðsla hækkar hins vegar úr 145 millj. í árslok 1966 upp í 174
millj. í árslok 1968, en síðan blasir við sú furðulega staðreynd, að í
árslok 1970 hefur þessi tala lækkað niður í 129 millj. kr. Þannig
hefur yfirdráttarfyrirgreiðsla, að frádregnum innstæðum hjá banka-
og sparisjóðakerfi landsins, lækkað um meira en helming, eða 53 af
hundraði, á tímabilinu öllu. Þetta gerist á sama tíma og vitað er, að
útlán, — yfirdrættir jafnt sem önnur útlán — hafa aukizt stórkost-
lega.“
Svo mörg eru þau orð — og nógu mörg til að sýna það og sanna,
svo að ekki verður um villzt, að kaupfélögin hafa að undanfömu
verið homrekur hjá bönkum og sparisjóðum, þótt vitaskuld eigi
þessar ágætu stofnanir þar ekki allar óskilið mál. Nú má þess ef til
vill vænta, að þarna verði á nokkur stefnubreyting. Má og þess geta
um leið, „að við bindum mjög miklar vonir við það, að væntanleg
Stofnlánadeild samvinnufélaga við Samvinnubankann eigi eftir að
geta orðið okkur að liði við að létta þann vanda, sem fjármagnsskort-
urinn hefur jafnan skapað okkur,“ segir Gunnar Sveinsson, kaupfé-
lagsstjóri í Keflavík, í viðtali við ritstjóra Hl\ns (5. tbl.). En lög um
Stofnlánadeild við Samvinnubankann voru samþykkt á síðasta þingi.
G.M.