Glóðafeykir - 01.11.1972, Blaðsíða 44
44
GLOÐAFEYKIR
Fallnir félagar
Arni Arnason
Árni Árnason, fyrrum bóndi á Syðri-Hofdölum, lézt þ. 4. des.
1962. Hann var fæddur að Atlastöðum í Svarfaðardal 19. júní 1892.
Foreldrar: Árni bóndi á Atlastöðnm Runólfsson, bónda á Hreið-
arsstöðum, Isakssonar bónda á Kjarna í
Möðruvallasókn, Hallssonar, og kona hans
Anna Guðrtin Björnsdóttir, bónda á Atla-
stöðum, Sigurðssonar, og konu hans Önnu
Jónsdóttur frá Koti í Svarfaðardal.
Árni óx upp með foreldrum sínum á
Atlastöðum. Tók þar við búsforráðum 1915
og bjó þar samfellt til 1936, er þau hjón
fluttu búferlum hingað til Skagafjarðar, að
Syðri-Hofdölum í Viðvíkurhreppi, og
bjuggu þar til 1950; brugðu þá búi, fluttu
til Sauðárkróks og áttu þar bólfestu eftir
það. Að Hofdölum kom að uorðan með
Árna Trausti bróðir hans ásamt með konu sinni; bjuggu þeir
bræður þar báðir og var sambýli þeirra alla stund með þeirn hætti,
að á betra varð eigi kosið. Aldrei hafði Árni stórt bú og eigi mikil
efni, en hann var eljumaður og komst furðu vel af með stóra fjöl-
skyldu. Eftir að til Sauðárkróks kom, stundaði hann verkamanna-
vinnu meðan dagur entist, og sló aldrei slöku við.
Árið 1916 kvæntist Árni Rannveigu Rögnvaldsdóttur frá Skegg-
stöðum í Svarfaðardal, góðri konu og ntikilla mannkosta. Börn
þeirra hjóna eru 7: Sigríður, luisfr. á Sauðárkróki, Anna og ísak,
húsasmíðameistari, hafa búið með foreldrum sínum, Rögnvaldur,
húsgagnasmiður á Akureyri, Sigurlina, húsfreyja á Sauðárkróki,
Ragyihildur, húsfreyja í Reykjavík og Trausti, kennari við Mennta-
skólann á Akureyri.
Árni Árnason var eigi hár maður en riðvaxinn, bjartur yfirlitum,