Glóðafeykir - 01.11.1972, Blaðsíða 11
GLOÐAFEYKIR
11
fyrir framtíðarstarfsemi þess. Hefði þá bygging þar verið löngu
komin í notkun.
Vörubirgðir nema alls 36,8 millj. króna. Hafa venjulegar verzl-
unarvörur nær ekkert hækkað, en vörur sérreikninga hafa hækkað
um 3,4 millj. Afskrift vörubirgða er samkvæmt venju eins og lög
heimila. Nemur afskriftarupphæðin tæpum 32 millj. kr. Afskriftin
hefur verið og er mun hærri en álagningin; tel ég, að félagið eigi
15—20 milljónir í vörubirgðum, sem er góður varasjóður. Eigna-
breytingar hafa orðið í samræmi við nýtt fasteignamat. Fasteignir,
sem eru 35 að tölu og sumar mjög verðmætar, eru nri bókfærðar á
85,8 millj. kr., en voru áður bókfærðar á 27,2 milljónir. Vélar, tæki,
béiðainnréttingar, bílar, hvers konar áhöld og annað lausafé er nú
bókfært á 18 millj. kr., en f. á. á 16,1 millj. Bókfært verð allra eigua
félagsins 31. des. er allt endurmatsverð og þó raunar nokkuð minna.
Upphaflegt kostnaðarverð eignanna er allt afskrifað miðað við síð-
ustu áramót. Fyrningar þessara eigna voru 12,2 millj., sem er nær
tvöfalt hærri upphæð en á fyrra ári. Stafar það af hækkuðum af-
skriftarstofni. Fymingar Fiskiðjunnar nema tæpl. 3,2 millj. kr. —
Samtals nema því fymingar 15,4 millj. kr. Viðhald eigna nam 9,8
milljónum auk 1,7 millj. kr. hjá Fiskiðjunni. Er hér um ýmsar
varanlegar endurbætur að ræða. Viðhaldskostnaður véla og tækja
var 3,9 millj. og fasteigna 5,9 rnillj. króna. Hæstu fyrirtækin með
viðhald eru Mjólkursamlagið með 2,8 millj, litibúið á Hofsósi 1,6
millj. og sameiginl. kostn. 1,1 millj. króna.
Fjárfesting nam aðeins 5,3 milljónum og hefur sjaldan verið
minni. Komið var upp kornflutningabíl og flytur hann nú þegar
yfir 30% af því kornuðu fóðri, sem kaupfélagið selur. Fer sala á
lausu fóðri stiiðugt vaxandi. Félagið seldi fóðurvörur fyrir tæpar
36 millj. kr. árinu. Er það milli 80 og 90% af allri fóðurvörusölu
í héraðinu og sýnt, að fóðurvörusala annarra aðilja fer enn minnk-
andi. Mölun er nú hafin á maís og bvggi.
Keypt var húsið Suðurgata 1 á Sauðárkmki með tilheyrandi lóðar-
rétindum, um 1200 ferm. Þá var reist viðbygging við Bifr,- og véla-
verkstæðið til að mála og sprauta bíla. Eru þá ótaldar ýmsar smærri
fjárfestingar.
Innlánsdeild hækkaði um 9,9 millj. kr. eða 18,7% og var um
áramót 62,7 millj. Innstæður í reikningum hækkuðu aðeins nm 3,6
millj. og námu 38,2 millj. kr. Skuldir hækkuðu aðeins meira en
innstæðuaukningunni nam, eða samtals í viðskiptareikningum, í