Glóðafeykir - 01.11.1972, Page 30

Glóðafeykir - 01.11.1972, Page 30
30 GLOÐAFEYKIR Ur Leirgerði FRAMHALD Eitt sinn átti Jón Bakkaskáld í erfiðri kosningabaráttu, því að þótt maðurinn sé á allan hátt hinn herðimannlegasti og þess vegna sjálfkjörinn á sýslufund, þá voru þó innan hreppsins menn, sem töldu sig eiga erindi á það þing ekki síður en Jón. F.n þrátt fyrir það sigraði Jón, og töldu kunnugir, að það rnætti hann þakka Bessa hreppstjóra í Kýrholti, er jafnan studdi Jón að öllum þeirn ernbætt- um, er honum máttu til virðingar verða. Þá orti oddviti sýslu: nefndar: Bragðfimur hefur brugðið brandi enn að vanda. Vígsterkur sá's með virktum Viðvíkur- hreppti -ríki. Hátt bar hersi með Bersa hjálmprúðan í gný álma áður úr Röanis reani rakkur kont heim að Bakka. Við kosningar til sýslunefndar 1046 var ekkert lát á Jóni, hvorki andlega né líkamlega, að gefa kost á sér. Voru Viðvíkurhrepps- menn nú að fullu sannfærðir um, að ekki mundu aðrir hæfari til að beitast fyrir þeirra misjöfnu málefnum innan sýslunefndar; var hann kosinn að kalla mátti einum rómi með álitlegu atkvæða- magni. Er ritaranum, vini Jóns, bárust þessi tíðindi, varð hann glaður við og orti til hans — þó ekki hjálparlaust: Enn hefur ort hinn svinni óð í sögu þjóðar, orðsnjall enn sem forðum, Of vann sigur hinn digii. Hvasst beit hjörinn glæsti höfuð, fremstum jöfurr. Hann mun því hróður manna hreppa meðan lönd eru uppi.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.