Glóðafeykir - 01.11.1972, Page 46

Glóðafeykir - 01.11.1972, Page 46
46 GLÓÐAFEYKIR dóttur, bónda í Stokkhólma og á Starrastöðum, Sigurðssonar, en móðir Margrétar og 3. kona Árna var Steinunn Arnórsdóttir prests á Bergstöðum, Árnasonar biskups á Hólum, Þórarinssonar. Börn þeirra Hallgríms og Iníönu eru 3: Andrés, bílstjóri í Reykjavík, Mar- geir, kaupm. á Sauðárkróki og Guðrún, húsfr. í Hraunprýði við Hafnarfjörð. Hallgrímur Valberg var meðalmaður á vöxt og vel á fót kominn; dökkur á yfirbragð og vel farinn í andliti. Hann var prýðilega gef- inn, bókhneigður, vel að sér um margt, einkum í ættvísi og þjóðleg- um fróðleik margs konar. Hann var traustur maður, öfgalaus í orðum ,skilgóður og skrumlaus. Hann var samvinnumaður og rnörg ár fulltrúi á aðalfundum K. S. Sveinn Arngrimsson, f.v. bóndi í Hofstaðaseli, o. v., lézt þ. 7. marz 1963. Hann var fæddur á Bjarnargili í Fljótum 19. júlí 1885, sonur Arngríms bónda á Gili í Fljótum Sveinssonar, bónda þar, Jónssonar, og konu hans Ástríðar Sigurðar- dóttur. Sveinn var einn í hópi fjölda systkina, um 20 alls, og má af líkum ráða, að hann hafi ungur orðið að fara að heiman og vinna fyrir sér. Kom sér vel, að hann var snemma orkumikill, duglegur og lagvirkur, enda varð honum eigi ráðafátt. Laust fyrir fermingu fór hann i vist að Brúnastöðum í Fljótum og var þar til 16 ára aldurs, eftir það á Hraunum o. v., unz hann aftur hvarf að Brúnastöðum og fastnaði sér heimasæt- una þar, Guðrúnu Jónsdóttur, bónda á Brúnastöðum, Jónssonar bónda á Lundi í Stíflu, Einarssonar, og konu lians Sigríðar Pétursdóttur bónda á Sléttu í Fljótum, Jóns- sonar bónda þar og í Utanverðunesi, Ólafssonar. Þau giftust 1909, fóru að búa á Brúnastöðum 1910 og bjuggu Jrar til 1928. Gekk bti þeirra skjótt fram, enda bæði hyggin, atorkusöm og samtaka í bezta lagi. Árið 1928 taka þau sig ujíp og fara byggðum að Ásgeirsbrekku í Viðvíkursveit, búa þar 11 ár við góðan farnað, Jiá í Hofstaðaseli 1939—1941, brugðu þá búi, en dvöldu þar enn um sinn með syni sínum og tengdadóttur, er tekið höfðu jörðina til ábúðar. Árið 1947 fluttu þau hjón alfari til Sauðárkróks og stundaði Sveinn lengstum smíðar eftir það, meðan þróttur entist. Sveinn Arngrimsson

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.