Glóðafeykir - 01.11.1972, Page 49

Glóðafeykir - 01.11.1972, Page 49
GLOÐAFEYKIR 49 beinsdal, Halldórssonar, og konu hans Jórunnar Andrésdóttur bónda í Stokkhólma, Bjömssonar bónda á Valabjörgum, Ólafssonar, en kona Andrésar og móðir Jórunnar var Herdís Pálmadóttir. Þau fóru þegar að búa á Hjaltastöðum og bjuggu þar á móti jórunni, móður Margrétar, er misst hafði mann sinn 1910, til 1919, þá í Flugumýrarhvammi til 1921. A því ári dó Pétur í Stokkhólma, ókvæntur og barnlaus. Þangað fluttu þau, Sigurður og Margrét, keyptu jörðina og bjuggu þar 20 ár samfleytt. Árið 1941 keyptu þau Hjaltastaði (/4 hl.) og fluttu þangað, en höfðu Stokkhólma með til 1950. A Hjaltastöðum bjuggu þau svo óslitið allt þar til Sigurður lézt. Lengstum bjuggu þau hjón stórbúi, bæði í Stokk- hólma og á Hjaltastöðum, en hefluðu nokkuð seglin síðustu árin, enda var þá Sigurður farinn að heilsu. Böm þeirra hjóna eru 6: Þorsteinn, bóndi í Hjaltastaðahvammi, Pétnr, bóndi á Hjaltastöðum, Hjalti, bóndi á Hjalla (Hjaltast. II), Leifur, járnsmíðameistari og Halldór, gullsmiður og skartgripasali, báðir í Reykjavík, og Jórunn, húsfr. á Frostastöðum. Margrét, móðir þeirra systkina, dvelur hjá bömum sínum á víxl, en mest á Frosta- stöðum, sem og Herdís, systir hennar. Sigurður á Hjaltastöðum var mikill maður vexti og mikillar gerðar. Hann var fölur yfirlitum og grannholda, stórskorinn nokkuð og rúnum ristur og þó vel farinn í andliti, sviphýr oftast og hlýr í viðmóti. Hann var frábær eljumaður og féll aldrei verk úr hendi, afburðamaður um afl og atorku, enda gekk svo undan honum einum, sem tveir væru að verki. Hann var hlédrægur og hægur í fasi, manna stilltastur, geðljúfur og þó geðfastur, leitaði aldrei á aðra en lét ekki undan fallast, ef á var sótt. Enda þótt Sigurður væri oftar en hitt alvarlegur í bragði, \ar hann þó gleðimaður og undi sér vel á gleðimótum, gat þá verið hrókur alls fagnaðar. Hann var ágætlega greindur, hagorður vel en flíkaði lítt, launfyndinn og skemmtilega glettinn. Sigurður Einarsson hugsaði mikið um samfélagsmál, vildi sjálf- ur brjóta hvert mál til mergjar, fráhverfur því að láta aðra hugsa fyrir sig. Hann var félagshyggjumaður og umbóta, einlægur sam- vinnumaður, skipaði sér jafnan þar í sveit sem betur gegndi og horft var lengra en rétt um fætur fram. Hann var mikill manndómsmaður og mannkosta.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.