Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1991, Side 96

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1991, Side 96
Jóhann Hannesson sérstakri fræðigrein, átrúnaðarsálfræðinni. Hún lýtur þó lögmálum sálarfræðinnar, en ekki hinnar kirkjulegu guðfræði, og er ekki bundin við einstök trúarbrögð. 12. Svo sem sýnt var fram á í 9. lið, varð guðfræðin til út frá þörf kirkjunnar til að gera sér grein fyrir starfi sínu og lífi. Hún er þess vegna „scientia eminens practica” eins og Chemnitz sagði á sínum tíma. Hún er umfram allt hagnýt frœðigrein. En hún er líka kritisk fræðigrein, sem spyr og prófar hvort kirkjan sé raunverulega það sem hún þykist vera, kirkja Krists og lýður Guðs í hinum nýja sáttmála. Þó hefir sú venja myndast að skipta guðfræðigreinunum í tvo aðalflokka, fræðilegan og praktiskan, og nefnist síðari flokkurinn kennimannleg guðfræði á voru máli, og greinamar í þeim flokki eiga að búa guðfræðinga undir hið daglega starf prestsins í þjónustu kirkjunnar. Þær greinar geta orðið allt að því tuttugu, ef allt er tínt til. Fræðilegu greinunum er oftast skipt í fimm meginflokka: Gamla testamentisfræðin, Nýja testamentisfræðin, kirkjusöguflokkinn, trúafræði- flokkinn og siðfræðiflokkinn. í reynd hefir svo farið að nám í þessum greinum hefir fyrir löngu orðið háskólanám, oft mjög svo einangrað frá daglegu lífi kirkjunnar, þar sem kennslunni er miðlað af lærðum sérfræðingum hverjum í sinni grein, og aðstoðarmönnum þeirra. Þessi einangrun guðfræðinnar frá kirkjunni, sem skapaði hana í upphafi, var ekki æskileg, en samt algeng í sumum löndum á öldinni sem leið og í upphafi þessarrar. Ofangreindir fimm flokkar greinast síðan margvíslega. 13. Til eru þeir sem segja að kirkjan sé merkasta stofnun sögunnar. En jafnvel þótt svo sé ekki (hugsanlegt er að herinn væri sögulega séð merkari), þá er það ærið rannsóknarefni að skilja kirkjuna og áhrif hennar. Menn geta varið heilli mennsævi til þess eins að rannsaka kirkjusögu og hafa samt ærið að starfa. En venjulegur starfandi guðfræðingur þarf líka að kynna sér margt annað og hagnýta í starfi sínu, t.d. málvísindi, heimspeki, sálfræði, félagsvísindi, framandi trúarbrögð og þjóðhætti, ennfremur listir, svo sem tónlist og myndlist. Þessar greinar hafa einatt verið í nánum tengslum við kirkjuna, þær hafa þjónað henni og hún þeim. Og þær hafa almennt menntandi gildi, jafnvel þótt menn komist ekki langt í þeim. Sumar þeirra læra menn í upphafi náms síns við háskóla t.d. heimspekisöguna, sem leggur ýmsum fræðgreinum til þýðingarmikil hugtök og fræðiheiti. Aðrar em teknar inn í kennimann- lega námið, sem víða fylgir á eftir fræðilega náminu. 14. Vera má að þú eða einhver annar vilji staðhæfa að kirkjulífið hér sé heldur dauflegt, prestamir engar andans hetjur og almenningur sinnulaus orðinn um trú þá, sem áður naut almennrar virðingar. Undir þetta taka líka lærðir guðfræðingar í mörgum löndum. Segja þeir að samtíð vor sé „eftirkristileg öld”, eine nachchristliche Zeit — post-christian aera. Aðrir tala um allsherjar hnignun átrúnaðar. En þetta ástand fækkar ekki
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.