Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2000, Side 45
Hreindýr
Aðalsumarhagar hreindýranna á Austurlandi hafa alltafverið örœfin í kringum Snœfell. Mynd tekin í júlí
1994 í átt að Snœfelli yfir Gilsárdal. Ljósm. SGÞ.
Saga hreindýra á íslandi
Fyrsti innflutningur hreindýra voru 13
eða 14 dýr sem sett voru á land í Vestmanna-
eyjum árið 1771. Um helmingur þeirra
drapst fljótlega en sjö dýr voru ílutt að
Hlíðarenda í Fljótshlíð. Lítið er vitað um
sögu þeirra en talið er að þau hafi öll verið
dauð um 1783.5 Árið 1777 var 23 hreindýr-
um sleppt á land á Hvaleyri við Hafnarfjörð
og runnu þau þegar til fjalla. Síðan fjölgaði
þeim ár frá ári og urðu aðalheimkynni þeirra
austurfjöll Reykjanesskagans, Bláfjöll,
Lönguhlíðarfjöll og Heiðin há. Hreindýrin
urðu líklega aldrei mjög mörg á þessum
slóðum þar sem þau hefðu þá dreifst meira.
Aldrei sáust heldur stórir hreindýrahópar svo
vitað sé eða alltaf innan við 100 dýr. Hrein-
dýrin hafa því lrklega aðeins skipt hundruð-
um þegar þau voru flest. Þeim fór mjög
fækkandi á síðari hluta 19. aldar og voru alla
tíð mjög fá á þessari öld. Síðasta hreindýr
sem vitað er um á suðvesturhominu var
gömul hreinkýr er fylgdi fjárhópi á Bola-
völlum við Kolviðarhól rétt fyrir 1930.6
Arið 1784 var 35 hreindýrum sleppt á
Vaðlaheiði við Eyjafjörð. Dreifðust þau um
hálendið upp af Fnjóskadal og fjölgaði
fljótt. Upp úr aldamótunum 1800 fóru að
berast kvartanir frá bændum um að hrein-
dýrin eyðileggðu bithaga og eyddu fjalla-
grösum. Þórður Björnsson sýslumaður
Þingeyinga sagði í bréfi til stjórnarinnar rétt
fyrir 1820 að harða veturinn 1815 hafi
hreindýr leitað af öræfunum og niður í
byggðimar og eyðilagt bithaga búfjárins svo,
að útigangspeningi hafi staðið hætta af.7
5 Jón Helgason, 1961. Hreindýr flutt til landsins í fjórða skipti 1787. Öldin átjánda, 185.
6Helgi Valtýsson, 1945. Á hreindýraslóðum, 121-128. Ólafur Þorvaldsson, 1960. Hreindýr á ísland, 15-24, 59-61.
7Ólafur Þorvaldsson, 1960. Hreindýr á ístandi, 20. Jóhannes Friðlaugsson, 1933. Hreindýraveiðar í Þingeyjarsýslu á 19.
öld. Eimreiðin, 187-188.