Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2000, Page 67
Freysteinn Sigurðsson
Gelísk örnefni
Austurlandi
Austan við Útmannasveit rísa Dyr-
fjöll og Beinageitarfjall. Dyrfjöll
þekkja allir af trölladyrunum í
gegnum þau, málverkum Kjarvals og Stein-
þórs Eiríkssonar. Beinageitarfjall er fram-
hald Dyrfjalla til suðurs, naumast aðskilið
frá þeim en sjálft heldur slétt og strokið, þó
hátt sé. Fróðir menn á Héraði segja skafl í
fjallinu taka tímabundið á sig mynd af
„beinageit“, þegar snjóa er að leysa úr því.
Uppruni nafns fjallsins mun þó vera annar.
Suður á Suðureyjum er fjall, sem til forna
hét Bheinn-na-geit, en þess fann ég getið í
Encyclopaedia Britannica frá 1965 og hef
ekki fundið staðinn aftur. Bheinn þýðir fjall
(Ben í nútíma skosku, t.d. Ben Nevis, sem
þýðir Snæfell), na er eignarfallstenging og
geit er hlið eða dyr (samanber gátt á
íslensku og gate á ensku, sambærilegt orð
er til í nútímagelisku). Beinageit(arfjall)
þýðir því Dyrfjöll. Þykir mér líklegast, að
hér á landi hafi verið við landnám íslensku-
mælandi höfðingja úr Noregi og Suður-
eyjum menn, er mælt hafi á geliska tungu,
írsku eða skosku, sem þá var nánast sama
málið. Landnámsmenn á Héraði voru að
Austurhlið Skrúðsins 1. septemher 2000.
Beinageitarfjall, Sandadalur og Grjótfjall 3.
september 1996. Ljósm.: SGÞ.
vísu flestir upprunnir úr Þrændalögum, að
því er heimildir herma, en þó var Am(h)-
eiður á Arn(h)eiðarstöðum, dóttir Asbjarnar
jarls skerjablesa, úr Suðureyjum. Liggja
skal látið milli hluta, hvort þetta geliska
fólk var hér fyrir, og þar sé að finna
landsmenn þá, er ýfðust við Una danska,
eða þeir fylgdu landnámsmönnum til
Islands. Merking nafnsins hafi svo ruglast,
þegar gelisk tunga lagðist af í daglegri
notkun, og hafi það upp úr því verið fært á
innri hluta Dyrfjalla, þar sem það er nú sem
örnefni. Bheinn-na-geit varð Beinageitar-
fjall og hætti að vera Dyrfjöll.
Utarlega við Selfljót er lágur höfði við
ána, sem heitir Arnarbæli.
Muni ég heimildir rétt, þá eiga að vera
þar búðatættur á höfðanum og sagnir um
verslun á sama stað. Upp að höfðanum, að
minnsta kosti, er Selfljótið enn í dag að
mestu djúpt og lygnt. Það hefur verið enn
frekar til forna, meðan skógar þöktu landið
og jarðvegsþekjan var heil og þykk. Þá voru
vatnavextir minni og einkum voru þó
aurburður og malarrót í ám minni. Það
hefur því verið auðsiglt af hafi upp að
höfðanum á sögualdarskipum, sem ristu
grunnt og knýja mátti með árum. Staðhættir
mæla með því, að sagan gæti verið sönn.
Arnarbæli heitir víðar á verslunar-
65