Jökull - 01.12.1985, Síða 101
Mynd 2. Eldgosið í norðausturhorni Jan Mayen séð úr
norðri um kl. 14:50 hinn 7. jan. 1985. Örsmá glóð sést í
tveim gígum, móbrúnan gosmökk leggur til austurs upp
af efstu gígunum á sprungunni og hvítan gufumökk
leggur upp af hraunjaðrinum þar sem hraunið rann í sjó.
A bak við gosstöðvarnar er eldkeilan Beerenberg, 2277
m há, nyrsta eldfjall í heimi. Ljósm. RAX. — Fig. 2.
The eruption seen from north at 14:50 on the 7th of
Gjóska lá á landinu umhverfis gígaröðina, einkum
sunnan hennar, og þakti um 1.0 km2. Pykkt hennar var
ekki hægt að áætla. Hún myndaði svarta þekju á annars
snævi þöktu landinu. Gjóskugeirinn náði nokkuð suður
fyrir Austkapp, norðar þó en miðja vegu milli Austkapp
og Tollnerodden. Um gjóskumagnið verður ekki dæmt.
Frá gígaröðinni, einkum ofanverðri, hefur runnið
hraun norður og niður af Kraterlia austast og út á
sléttuna og norður í sjó. Sjóinn eimdi upp af heitum
hraunjaðrinum frá Nordbukta um það bil miðri og
austur undir Fulmarfloget. Hraunið virtist einungis ná
mjög stutt út fyrir gömlu ströndina, en ljóst er að eyjan
hefur lengst örlítið til norðurs á þessum kafla; Nord-
kapp er komið undir hraun. Um þykkt hraunsins er ekki
auðvelt að dæma, en það virðist vera þunnt, Iíklega
helluhraun. Þegar við vorum þarna yfir var það hætt að
renna. í gilskorningi einum utan í Kraterlia var örmjór
hrauntaumur, sem náði niður undir jafnsléttu. Var hann
glóandi á að giska 20—30 m niður eftir hlíðinni. Líklega
var honum viðhaldið af hraunslettum úr efsta eða næst-
efsta gígnum. Á tveim stöðum í hrauninu sjálfu glytti í
glóð, örsmá augu. Var annað niður undir Nordbukta við
vesturhraunjaðarinn. Hitt var einnig nærri vesturjaðrin-
um í hrauninu, nærri hlíðarbrúninni efst. Par mun
hraunið fara fram af stalli í landslaginu. Flatarmál
January 1985. Small glowing spots may be seen in two
craters, a brown eruption column is blown toward east
from the uppermost craters and a white steam cloud rises
from the hot lava in contact with the sea. Behind the
eruption site is Beerenberg, a 2277 m high volcanic cone,
the northernmost volcano of the world. Photo: R.Ax-
elsson.
hraunsins er um 1.0 km2. Þar af virðast 76% vera á
gömlu landi en 24% utan gömlu strandarinnar.
Samkvæmt viðtali fréttamanns hjá Ríkisútvarpinu,
Reykjavík (upplýsingar frá Fréttastofu útvarpsins) við
stöðvarstjórann á Jan Mayen hinn 10. jan. var ekkert
gos í gangi hinn 9. jan., þegar flogið var yfir gosstöðvar-
nar í þyrlu. Það lítur því út fyrir að gosið hafi ekki tekið
sig upp aftur og að því hafi í raun lokið mánudaginn 7.
jan.
Á meðfylgjandi korti (3. mynd) eru hraunið, gjósku-
dreifin og gígaröðin dregin inn, eins og þau virtust vera,
séð úr lofti. Ennfremur er dregið inn á það hraunið og
gígarnir frá gosinu 1970, eins og það er teiknað af
Imsland (1978) eftir loftmyndum frá 1975.
UMRÆÐA
Samkvæmt meðfylgjandi korti (3. mynd) er flatarmál
hraunsins 1.0 km2. þar af eru 0.76 á þurru landi og 0.24
utan gömlu strandarinnar. Ef hraunið, sem virðist vera
þunnt, er áætlað að meðaltali 5 m þykkt á landi og 10 m
þykkt utan gömlu strandarinnar, sem líklega eru lág-
markstölur, þá er rúmmál þess 6.2 milljón m3. Þó
gjóskumyndun hafi verið töluverð, miðað við basaltgos
almennt, er nær ógerlegt að áætla magn gjóskunnar.
Um 7 milljón m3 má nota sem áætlaða lágmarkstölu
JÖKULL 35. ÁR 99