Jökull


Jökull - 01.12.1985, Page 116

Jökull - 01.12.1985, Page 116
ATHUGASEMDIR OG VIÐAUKAR ABSTRACT Glacier variations were recorded at 44 locations, 22 tongues showed advance, 4 were stationary and 18 ton- gues retreated. In the end ofwinter 1983184 the snoW pack in the south and southwestern part of Iceland was above average in the mountains but totally absent in the lowlands areas. In the north and east relatively little snow. Marked rise in temperature as compared to previous 5-7 years, espe- cially warm summer months in the north and east, rainy in the south-west, south-west winds prevailing. Great ablation on glaciers, extremely high on glaciers areas to the north-east of a hypothetical line between Isafjarðardjúp and Örœfajökull. Haustið 1984 voru jökuljaðrar mældir á 44 stöðum. Á mælingaárinu höfðu sporðar færst fram á 22 stöðum, haldist óbreyttir á 4 stöðum, en hopað á 18 stöðum. Samanlagt er mælt framskrið 801 m en hop 492 m, veita ber því athygli að þessar heildartölur þurfa athuga- semda við ef nýta á þær til að sýna þróunina milli ára, kemur þar margt til. T.d. er tímabilið milli mælinga við suma mælistaðina meira en eitt ár o.s.frv. í greininni um lengdarmælingarnar í Jökli fyrir ári síðan ræddi ég um framhlaupsjökla, sem framhald af því skal vikið að Hagafellsjöklum, þeir hlupu 1980. Haustið 1982 mældist hop þeirra 30 m á tveimur árum. Síðan hefur lengdar- breyting ekki verið mæld. Jaðrar þeirra hafa verið frem- ur óhrjálegir og hurfu að nokkru undir fönn. Nú er að myndast sléttur og sleiktur hopjaðar, aðeins að norð- austan er stál þar sem jökulinn hefur gengið út í Haga- vatn. Mun að líkindum mælast við Hagafellsjökla veru- legt hop, hop þriggja ára, að hausti 1985. Aðalatriðið er að á hinum köldu árum undanfarið hafa stuttir og brattir jöklar gengið fram, þeir eru fljótir að taka við sér, hafa skamman viðbragðstíma eins og kallað er. Hinir löngu og flötu meginjöklar héldu stöðugt áfram að hopa, að vísu mældist undanhald þeirra flestra minna og minna með hverju árinu. Og nú sýna meginjöklar framskrið, sem áður hafa hopað, eins og t.d. Skeiðarárjökull, sjá töfluna. Löngu og þykku skriðjöklarnir hafa af eðlilegum ástæðum langan við- bragðstíma. Hefur Skeiðarárjökull lagað sig að hinu hlýja veður- fari eftir 1920 ? Og fer framskriðs nú að gæta sem einskonar viðbragðssvörunar sem rekja má aftur til hafís- og kaláranna eftir 1964 eða hvað ? Fyrsta skrefið er að komast að raun um viðbragðstíma skriðjökulsins, þá eru svörin fengin. Hér er ástæða til að huga að andstæðum. Á árinu 1984 tók veðurfarið stakkaskiptum, hvað leysingu á jöklum áhrærir, sumurin 1983 og 1984 voru þar gjörólík. Jökulár voru rýrar 1983 og þá var jafnframt snjósöfnun milli ára í hálendi, einkum vestanlands og á Norður- landi, en sumarið 1984 voru jökulár í foráttu. Á jöklum leysti þá margra ára snjó og urðu jöklar blakkir lengra upp en þeir hafa verið til fjölda ára, á stöku stað jafnvel lengra upp en vitað var um áður. Ef nánar er á þetta litið má rekja þessi þáttaskil til febrúarmánaðar 1984, því að í þeim mánuði og annað veifið út veturinn komu hlákukaflar. Það gerðist til tíðinda 1984 að árshitinn var hærri á Akureyri en í Reykjavík, 4,2 gráður á móti 4,0 gráðum, það er algjör nýlunda. Norðausturland var baðað í sól og suðvestanátt um sumarið, en sunnan- og vestanlands voru þrálátar rigningar. Sumarið 1984 var eitt hið mesta leysingasumar á jöklum sem komið hefur og um er vitað. Leysingin í sumar hefur þó eigi verið næg til að gera framskriðsbylgju köldu áranna að engu. Hjarnskafla frá undanförnu köldu árunum leysti drjúg- um. Leifar þeirra leynast þó enn víða í giljum norðan- og vestanlands. Einkum var leysingin mikil á öllum jökulsvæðum norðaustan við línu sem má hugsa sér dregna frá ísa- fjarðardjúpi til Örœfajökuls. Gera má ráð fyrir að á komandi árum skríði jökul- tungur fram og þar megi merkja áhrif köldu áranna sjö (‘77-‘83), einkum mun þetta áhræra stutta jökla strax, en þykka og langa jökla síðar. Ei má þó gleyma atriði sem gengur hér þvert í mót. En það er að vart þarf meira í viðbót en eitt ámóta leysingasumar eins og 1984 var til að þurrka út leifarnar af afkomu köldu áranna. Þessi fullyrðing er örugglega rétt fyrir Norðurland og Austurland. Gagnvart hájöklum suðvestan og sunnan- lands eins og Snæfellsjökli og Eyjafjallajökli varð annað uppi á teningnum, sumarið 1984 var þar ekkert sérstakt leysingasumar en ákoman á árinu var þar allmikil. Hver er þá framvinda jökla á íslandi, munu þeir vaxa eða minnka ? Búskapur jöklanna er að mestu háður því hvort má sín meira, suðrænn varmi eða norðansvali. Þá er komið að aðalatriðinu. Hvar munu brautir lægða liggja á komandi árum ? Er unnt að svara því ? Það gildir hið sama varðandi búskap jökla og langtímaspár (hálfs eða eins árs) um vatnsbúskap landsins, að svör við eftirfarandi atriðum þurfa að liggja fyrir áður en reynt er að setja fram marktæka spá. 1) Hvar munu brautir lægða liggja, norðan eða sunnan við land, að sumri og að vetri ? 2) Hvernig munu háloftastraumar liggja, vestlægir eða 114 JÖKULL 35. ÁR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.