Jökull


Jökull - 01.12.1985, Page 134

Jökull - 01.12.1985, Page 134
3. mynd. Grunnurinn undirbúinn 14. apríl 1979. Ljósm. Pétur Þorleifsson. að sumir þeirra er voru leiðangrinum áhangandi, hefðu ætlað um kveldið austur á Hlöðuvelli og gista þar, en komust ekki vegna veðurofsans. Urðu þeir að grafa sig í fönn og lágu úti um nóttina við kalda búð. Morguninn eftir, föstudaginn langa, var allur svipur annar. Enn var hvasst, en hríðinni hafði slotað, komið sólskin og sást um allt. Vorum við stödd vestan undir Skefilfjalli. Var nú haldið af stað. Storminn lægði, og allan daginn fengum við svo gott veður sem verða mátti, logn og sólskin, en frost var talsvert. Nú var haldið inn í leið. Skammt fyrir austan Skjaldbreið áttum við nokkra dvöl. Hér var fagurt vetrarumhverfi, hjarn yfir öllu hið neðra, nema hraunrindar og klettar stóðu upp úr á stöku stað, en allt um kring gnæfðu stórfjöll, Skjald- breiður í vestri, Hlöðufell í austri, Skriðan og Skriðu- tindar í suðri, Högnhöfði og Rauðafell í landsuðri, öll alhvít nema dökkir hamrar og gil. Haldið er inn hraun vestan við Hlöðufell og stefnt á jökul. Nokkur brekka er upp á jökulinn en ferðin gekk þó greiðlega. Var farið upp Hagafellsjökul vestri nokkru nær Klakk en Haga- felli. Síðan var haldið inn jökul allan daginn og kveldið með, og var það skemmtileg ferð að aka inn jökul- breiðuna í björtu sólskini, en slétt er og jafnlent þar efra þegar komið er upp úr brekkum. Nær miðnætti var komið inn undir Fjallkirkju. Er þar upp allmikla brekku að fara. Nú voru snjóbílarnir tengdir í lest allir þrír og beitt fyrir sleðann og síðan lagt í brattann. Var eft- irminnilegt að sjá þessa lest þokast upp brekkuna þarna hæst uppi á Langjökli um miðnætti í björtu tunglsljósi. Allt gekk vel, og innan stundar nemur lestin staðar á klapparsvæðinu austur af Fjallkirkju. Nú er komið fram um miðnætti og menn taka á sig náðir. Morguninn eftir, laugardaginn fyrir páska, var hafist handa að koma húsinu fyrir. Þar voru að verki þaulæfðir menn og harðduglegir. Asamt Jöklarannsóknafélags- mönnum voru þar menn úr Hjálparsveit skáta í Reykja- vík og Björgunarsveit Ingólfs. Þar voru handtök bæði hörð og snör. Fyrst var að grafa fyrir húsinu. Voru settar niður í grunninn fjórar kistur gerðar af sterku vírneti, gólfbitarnir festir þar í og þær síðan fylltar grjóti. Ekki var auðvelt að afla grjótsins. Að vísu var talsvert af því á brúninni, en mjög frosið niður. Og er allt hafði verið tekið er til náðist þar, var enn þörf grjóts. Voru nú góð ráð dýr. Var þá tekið til þess ráðs, að vagn á skíðum var látinn síga á spili niður í snarbratta brekkuna. Þar stóðu nokkrir menn og settu grjótið í vagninn. Var mannhætta að standa þar við grjótvinnu á mjóum rinda, en mörg hundruð metra hjarnbrekka tók við, hefði út af borið. En þetta fór vel. Sóttist verkið allt ótrúlega fljótt, og var því lokið síðari hluta dags. Húsið hlaut nafnið Kirkjuból. Það stendur á austurbrún fjalls- ins austan við Fjallkirkjuna. Útsýni er hið fegursta. Sér þar yfir allt Kjalvegssvæðið, einnig til Kerlingarfjalla og austur á Hofsjökul og langt austur öræfi sunnan jökla. Mun slíkt útsýni ekki vera úr mörgum gluggum á ís- landi. Um kveldið fóru Pétur Þorleifsson, Vilhelm Andersen og Valdimar Valdimarsson á vélsleðum suður á Skriðufell. Fengum við Kristín að vera þar með í för, einnig nokkrir skíðamenn, sem létu vélsleðana draga sig. Um 10 km eru frá Fjallkirkju suður á Skriðufell. Þar fellur fram skriðjökull. Klofnar hann á dyngjunni miklu Leggjabrjót, sem er þar í austurbrún jökulsins. Nyrðri álman, sunnan við Fjallkirkjuna, sem nú hefur fengið nafnið Kirkjujökull, er talsvert sprungin þar neðra, svo jafnvel má sjá núna, þótt þykkt snjólag sé á jöklinum. 4. mynd. Margskonar tækjum var beitt á grjótið 14. apríl 1979. Ljósm. Pétur Þorleifsson. 132 JÖKULL 35. ÁR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.