Jökull


Jökull - 01.12.1985, Síða 136

Jökull - 01.12.1985, Síða 136
Ferðasaga Kyndils á Langjökul Það var haustið 1979, þegar vetrarstarf Björgunar- sveitarinnar Kyndils í Mosfellssveit hófst, að félagar sveitarinnar fóru að tala um sleðaferð á Langjökul og Hveravelli. Nokkrir úr sveitinni höfðu farið á jökulinn veturinn áður, í eins dags ferð í fallegu veðri, og þótti mikið til koma. Eftir áramótin var svo ákveðið að fara og varð 9. febrúar fyrir valinu. Rann sá dagur upp með roki og rigningu. Við vorum búnir að hafa samband við Veðurstofuna, svo þeir gætu notað ferðina, og tókum við póst og annað lítilræði til Hveravalla. Veðurstofumenn sögðust ekki geta lofað okkur góðu veðri, enda rann laugardagurinn upp, eins og fyrr segir, með roki og rigningu. Fararstjóri var Erlingur Ólafsson, sá sem þetta skrif- ar. Klukkan 7 um morguninn var haldið af stað austur Mosfellsheiði að Þingvöllum. Þar var veður svo slæmt að varla var stætt fyrir slagviðri. Ákveðið hafði verið að leggja af stað frá Meyjarsæti. Ekki vildum við gefast upp við svo búið og var ákveðið að fara austur að Gullfossi og athuga, hvort veður væri skárra þar austur frá. Þegar við komum austur í Grímsnes var vegurinn orðinn þurr og vindur óverulegur. Var haldið inn að Sandá, en lengra varð ekki komist á bíl, og tókum við þar af. Snjór var frekar lítill þarna. Þeir sem voru að leggja upp í þessa ferð voru, auk fararstjóra: Albert Finnbogason Finnbogi Albertsson Sigurður Sigfreðsson Guðjón Haraldsson Georg Magnússon Jón Þ. Jónsson Þorsteinn Theodórsson Guðmundur I. Hjálmtýsson Grétar Hansson Magnús Helgason Ragnar Bjarnason, 12 talsins á jafnmörgum sleðum. Ferðin gekk frekar seint til að byrja með, vegna snjóleysis. Töfðum við lítillega við Grjótá, þar sem hún var opin og skarir á henni. Þegar komið var upp á Bláfellsháls var færi orðið gott og veður ágætt, frost en sólarlaust og logn. Var nú ekkert sem tafði för okkar og brunuðum við nú niður í Skálpanes og yfir brúna á Hvítá. í Miðnesi stönsuðum við smástund og héldum síðan að skála F.í. í Hvítárnesi og borðuðum þar. Um eitt leytið var haldið af stað til Hveravalla. Við höfðum haft samband við Hveravelli í gegnum talstöð annað slagið og biðu þau Guðmundur og Bergrún með óþreyju komu okkar. Farið var gömlu leiðina fyrir austan Fúlukvísl, austur fyrir Kjalfell að Beinahól, vestan við Rjúpnafell og síðan beint að Hveravöllum. Þangað komum við um kl. 3.30. Móttökur voru ekki af verri endanum. Þegar við komum beið okkar kaffi og meðlæti. Eftir að hafa gert kaffi og brauði góð skil, með spjalli við Guðmund og Bergrúnu, fórum við í skála F.í. var hann heitur og notalegur og ekki var laugin síðri. Morguninn eftir var veður hið besta, sólskin og tveggja stiga frost, eins gott sleðaveður og hugsast gat. Lang- jökull skartaði sínu fegursta og voru menn nú fljótir að búa sig af stað. Kvöddum við nú heimilisfólkið á Hvera- völlum og héldum af stað í átt að Langjökli. Fórum við fyrir sunnan Dauðsmannsgil í Hundadali og beint á jökulinn. Færið á jöklinum var eins gott og best varð á kosið. Héldum við nú upp fyrir Jökulkrók, síðan niður á sléttuna sem er vestan við Sandfell og Þjófadali, þaðan upp og vestur fyrir Fjallkirkju, niður og austur með henni að skála Jöklarannsóknafélagsins, sem nefndur hefur verið Kirkjuból. Útsýnið þaðan er afskaplega fallegt og ekki síst í svona fallegu veðri eins og þarna var. Húsið var eins og ísmoli á að líta og sást hvergi í það. Brutum við frá hurðinni og kom þá í ljós, að innri hurðin var opin og forstofan hálf af snjó. Hreinsuðum við snjóinn úr húsinu og gengum frá því. Frá Fjallkirkju héldum við að Péturshorni og síðan að Þursaborg, sem er einhver sá fallegasti staður sem við höfðum komið á, og var erfitt að slíta sig frá þeim stað. Ekki máttum við dvelja þar of lengi, þar sem dagurinn er stuttur á þessum árstíma. Frá Þursaborg var haldið að Jarlhettum. Þræddum við í gegnum ótal gil og dali, en svæðið í kringum Jarlhettur er mjög skemmtilegt. Þá fórum við niður að Sandvatni og þræddum skafla niður að brúnni á Sandá, því snjó- lítið var þegar þangað var komið. Og lauk þar með velheppnaðri ferð. Erlingur Ólafsson 134 JÖKULL 35. ÁR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.