Jökull


Jökull - 01.12.1985, Side 142

Jökull - 01.12.1985, Side 142
Minning DR. TRAUSTI EINARSSON PRÓFESSOR ÆVIÁGRIP Trausti Sigurður Einarsson fæddist í Reykjavík 14. nóvember 1907. Foreldrar hans voru hjónin Einar Run- ólfsson trésmiður (f. 17.09. 1884, d. 10.03. 1961) og Kristín Traustadóttir (f. 22.10. 1878, d. 02.02. 1960). Trausti átti þrjú systkini, Hákon, Guðrúnu og Þórhall, sem öll eru á lífi. Meðan Trausti var enn barn að aldri fluttist fjöl- skyldan til Vestmannaeyja, og þar bjó Trausti þar til hann hóf menntaskólanám í Reykjavík. Trausti gekk í barnaskólann í Vestmannaeyjum, og mun Páll Bjarna- son skólastjóri hafa átt sinn þátt í að vekja áhuga Trausta á náttúrufræði. Eins og aðrir Eyjamenn sprang- aði Trausti og klifraði um kletta sem strákur, og hefur sú reynsla vafalítið komið honum að gagni í því fjalla- og klettaklifri sem fylgdi jarðfræðirannsóknum hans síðar á lífsleiðinni. Trausti tók gagnfræðapróf utanskóla 1924 og settist svo í stærðfræðideild Menntaskólans í Reykjavík. í menntaskólanum var Trausti þrjú ár og lauk þaðan stúdentsprófi vorið 1927. Ein af prófgreinunum í menntaskólanum var stjörnufræði, og það var sú grein sem Trausti ákvað að leggja fyrir sig í háskólanámi. Ekki virðist sem einn kennari öðrum fremur hafi kveikt áhuga Trausta á stjörnufræði. Líklegast er að „fegurð næturhiminsins" ásamt lestri góðra bóka hafi gert stjörnufræðina heillandi, enda tendra fáar greinar raun- vísinda jafn göfugar og rómantískar vísindahugsjónir í hugum ungra manna og stjörnufræðin. Trausti var afburða námsmaður og hlaut einn af þeim fjórum 4-ára styrkjum sem menntamálaráðuneytið veitti til framhaldsnáms. Hélt hann um haustið 1927 til Göttingen ásamt vini sínum Leifi Ásgeirssyni stærðfræð- ingi og síðar prófessor. Síðustu árin fékk Trausti svo aukastyrk til að ljúka doktorsnáminu, auk þess sem fjölskyldan styrkti hann eftir því sem efni leyfðu. Náms- árið í Göttingen skiptist í vetrarmisseri og sumarmisseri, en þar sem Trausti og Leifur komu ekki út fyrr en um haustið misstu þeir af sumarmisserinu. Á vetrarmisser- inu urðu þeir þó að standa skil á ýmsum greinum stærðfræðinnar sem kenndar höfðu verið um sumarið, og gekk það vel. Fyrsta námsárið deildu Trausti og Leifur herbergi, unnu saman og sóttu að hluta sömu kúrsa. Stúdentsár þeirra voru með svipuðu sniði og þá var algengt í þýskum háskólabæjum: hörð vinna alla virka daga, en oft göngu- eða hjólreiðartúrar um helgar. Við háskólann í Göttingen nam Trausti árin 1927-34 að tveimur undanskildum. Eitt ár var hann við nám í Munchen og annað ár tók hann sér frí frá námi vegna veikinda, og dvaldi þá á íslandi. Meðal kennara Trausta fyrstu árin voru margir kunnustu stærð- og eðlisfræðing- ar þess tíma. Þar má nefna stærðfræðingana David Hilbert og Richard Courant, og eðlisfræðinginn Max Born. í Munchen sótti Trausti m.a. tíma hjá eðlisfræð- ingnum Arnold Sommerfeld. Aðalkennari Trausta í stjörnufræði var hins vegar stjarnfræðingurinn H. Kienle. Á sínum unglings- og námsárum hafði Trausti ekki sérstakan áhuga á jarðfræði umfram önnur náttúru- fræði, og segist hafa haft „lítið dálæti á þeim jarðnesku mönnum sem voru með nefið niðri í gjám og gjótum eða grófu í moldarbörð“. En þegar hann hafði lokið námi sínu í Göttingen með doktorsritgerð um kórónu sólar var allt í óvissu um starf hans heima á íslandi. Fór hann þá á fund svissnesk-norska jarðefnafræðingsins Victors Moritz Goldschmidts, föður jarðefnafræðinnar, sem þá var forstöðumaður og prófessor í steindafræði í Götting- en. Hann benti Trausta á að ef hann fengi ekki rann- sóknarstöðu í stjörnufræði á íslandi, þá gæti hann margt verra gert en að sinna jarðfræðirannsóknum, og lagði áherslu á þá miklu möguleika sem ísland hefði upp á að bjóða á því sviði. Er líklegt að Trausti hafði haft þessa ábendingu í huga þegar hann hóf jarðfræðirannsóknir sínar á íslandi. Trausti var ráðinn kennari að Menntaskólanum á Akureyri haustið 1935. Hann varð aðalkennari stærð- fræðideildarinnar, sem þá var endanlega komin á lagg- irnar, og kenndi stærðfræði, eðlisfræði og stjörnufræði. Strax og Trausti kom heim hóf hann rannsóknir og varð þjóðkunnur af því að endurvekja Geysi í Haukadal, 1935. Vaxandi áhugi Trausta á jarðfræði, einkum uppruna móbergs, leiddi til þess að hann fékk ársfrí frá kennslu og hlaut styrk frá British Council til náms í bergfræði við háskólann í Glasgow, veturinn 1942-43. Þar var aðal- leiðbeinandi hans bergfræðingurinn kunni G.W. Tyrrell og fékk Trausti aðgang að miklu safni íslenskra berg- sýna sem Tyrrell og M.A. Peacock höfðu safnað. Námið fólst meðal annars í athugun á um 500 þunnsneiðum af íslensku bergi. Þetta var eina formlega háskólanámið sem Trausti 140 JÖKULL 35. ÁR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.