Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Blaðsíða 5

Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Blaðsíða 5
Merkilegt að þurfa að réttlæta að gaumur sé gefinn að þörfum og skoðunum kvenna og stúlkna í alþjóðlegu mannúðar- og þróunar- starfi. Þó er vitað að slíkt starf hefur löngum mótast af ríkjandi karllægum viðhorf- um. Fyrir vikið hafa þróunarverkefni og stefnumótun gjarnan viðhaldið ójafnrétti milli kynjanna og á tíðum mismunað konum og stúlkum með margvíslegum afleiðingum. Á síðustu árum hefur jafnréttishugtakinu þó vaxið fiskur um hrygg og nú er svo komið að almenn sátt ríkir innan stofnana Sameinuðu þjóðanna og meðal aðildarríkjanna um að samþætta þurfi kynjasjónarmið í stefnu og störfum, í hverju ríki sem og á alþjóðlegum vettvangi. Þar fer Þróunarsjóður Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna, UNIFEM, fremstur í flokki. Hlutverk UNIFEM er að sjá til þess að jafnréttissjónarmið skili sér í orði og í verki til að bæta lífskjör kvenna og stúlkna, sem og karla og drengja, um allan heim. Í ár er UNIFEM á Íslandi fimmtán ára og í tilefni afmælisins er við hæfi að staldra við og spyrja: Hver er þessi UNIFEM? Hvar hefur hún alið manninn og hvert stefnir hún í framtíðinni? Hverjar eru skoðanir hennar og áhugasvið? Tíma- ritið í ár er umfangsmikið enda af mörgu að taka. Eftir ávörp formanns, forsætis- ráðherra og aðalframkvæmdarstýru UNIFEM eru rifjuð upp fyrstu starfsár lands- félagsins og rakin tildrög að stofnun þess. Þá eru reifuð störf á liðnu ári og helstu mál á dagskrá og rætt við félaga og nýráðna framkvæmdastýru. Þegar við höfum fengið innsýn í vöxt og viðfangsefni á Íslandi gerum við víðreist og rýnum í þrjú helstu áhersluatriði UNIFEM á alþjóðavísu. Umfjöllun um efnahagslegt öryggi og réttindi kvenna skýrir áhrif hnattvæðingar á konur, líf og hagi farandverkakvenna, landréttindi og nýjungar í hagstjórn og fjárlagagerð. Innanlandsátök og ofbeldi gegn óbreyttum borgurum, sem þeim fylgir, hefur aukist verulega síðustu áratugi. Samfara því hefur alþjóðleg samvinna tekið breyt- ingum. Í kaflanum um konur, stríð og frið er að finna áhugaverða umfjöllun um konur sem fórnarlömb átaka og þátttakendur í friðarumleitunum og uppbygg- ingarstarfi eftir stríð. Íslenskur sérfræðingur hjá UNIFEM í Kósóvó fjallar um stöðu mála í héraðinu þar sem hún segir allt vera pólitískt. Í nýlegri rannsókn er leitað svara við því hvort íslenska friðargæslan geti státað af samþættingu jafnréttis- sjónarmiða í störfum sínum. Tíðni ofbeldis gegn konum er svipuð sama hvert litið er, þótt birtingarmynd þess sé ólík eftir stað og stund. Í rúmlega 20 ár hefur afnám ofbeldis og réttur kvenna til að njóta mannréttinda verið eitt af helstu baráttumálum UNIFEM og fjölmargra stofnana og samtaka um heim allan. Um þetta er fjallað í einni grein af fjórum í greinaflokki þar sem sagt er frá starfi íslenskrar konu með alnæmissmituð- um stúlkum í Úganda, fjallað um tengsl ofbeldis og alnæmis og áhrif faraldsins á konur og stúlkur, og rétt stúlkna til menntunar. Mig rámar í að rithöfundurinn og heimspekingurinn Gunnar Dahl hafi eitt sinn sagt Íslendinga vera minnstu stórþjóð í heimi – eða var það stærsta smáþjóðin? Allténd vísaði hann þar til þeirrar tilhneigingar að líta á okkur sem jafningja stórþjóða. Smæðin setur vissulega mark sitt á framlag okkar og verkefnaval í þróunarsamvinnu og þátttöku í samfélagi þjóðanna. Þó fer hlutur okkar á þessum vettvangi vaxandi, enda þjóðin stórhuga, og við höfum töluvert fram að færa á vettvangi þróunar- og jafnréttismála. Greinaflokk um Ísland, alþjóðlega þróunar- samvinnu, friðargæslu og jafnréttismál er að finna í síðasta kafla blaðsins. Fyrir hönd ritnefndarinnar og UNIFEM á Íslandi langar mig að lokum að þakka öllum þeim sem komu að gerð blaðsins og styrktu útgáfu þess. Sérstakar þakkir fá útgáfufélagið Hænir, Sóley Stefánsdóttir hönnuður, greinahöfundar og ljósmyndarar fyrir óeigingjarnt starf. Hver er þessi UNIFEM? Njótið vel, Hrund Gunnsteinsdóttir Útgefandi: UNIFEM á Íslandi Þróunarsjóður Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 552 6200, Fax: 562 6010 Netfang: unifem@unifem.is Veffang: www.unifem.is Ábyrgðarmaður: Rósa Erlingsdóttir Ritstjóri: Hrund Gunnsteinsdóttir Ritnefnd: Ásta María Sverrisdóttir, Jónína Helga Þórólfsdóttir, Hólmfríður Anna Baldursdóttir og Hrund Gunnsteinsdóttir Prófarkalestur: Ásdís Káradóttir Aðstoð við útgáfu: Hænir sf. Sími: 588 8100 Netfang: utgafa@haenir.is Ljósmyndir: ýmsir, sjá merkingar á myndum Hönnun: Sóley Stefánsdóttir, soley@mi.is Prentun: Gutenberg Ljósmyndir úr myndabanka UNICEF (ofan frá): UNICEF/ HQ98-0502/Giacomo Pirozzi, UNICEF/ HQ97-0337/Shehzad Noorani, UNICEF/ HQ99-0651/Giacomo PIROZZI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit UNIFEM

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit UNIFEM
https://timarit.is/publication/1156

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.