Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Page 23

Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Page 23
sagði honum hvað stæði til. Í framhaldi af því gekk Gréta Gunnarsdóttir, starfskona utanríkisráðuneytisins, til liðs við þær stöllur fyrir atbeina Helga Ágústssonar og hún aðstoðaði þær síðan við undirbúning stofn- unar UNIFEM á Íslandi. Boðað var til blaðamannafundar í Rúgbrauðsgerðinni og til stofn- fundar UNIFEM á Hallveigarstöðum 18 í desember árið 1989. Til stofn- fundarins voru boðaðar konur úr öllum helstu kvennahreyfingum og kvennaklúbbum þess tíma. Nokkrir karlmenn sóttu einnig fundinn sem var fjölmennur. Phoebe Muga Asiyo flutti ávarp og sýndar voru myndir frá þróunarstarfi UNIFEM. Frú Asiyo hitti einnig embættismenn og stjórnmálamenn meðan hún dvaldist hér á landi. Framhaldsstofnfundur Félags UNIFEM á Íslandi var svo haldinn á Hótel Holiday Inn 24. október 1990. Fyrsta frjálsa framlagið 5.000 krónur Konurnar fóru einnig í viðtöl í fjölmiðlum til að kynna UNIFEM. „Ég fór eitt sinn í morgunútvarpið og kynnti UNIFEM. Sama dag og ég hafði verið í útvarpinu hringdi kona frá Stöðvarfirði og lagði fram fyrstu 5.000 krónurnar sem voru frjálst framlag. „Ertu viss um að þetta skili sér?“ spurði hún og ég svaraði henni að mér væri tjáð að svo væri. Þetta var fyrsta frjálsa framlagið í sjóð UNIFEM en þessi kona gerðist þó ekki félagi,“ sagði Sæunn. Í upphafi fylgdi UNIFEM á Íslandi fordæmi finnska félagsins. Finnska UNIFEM-félagið var það fyrsta sinnar tegundar, stofnað árið 1981. Morgunverðarfundir UNIFEM voru haldnir að finnskri fyrirmynd og við skipulagningu á opnum fundum UNIFEM var haft að leiðarljósi að blanda saman fræðslu og skemmtun. Stofnendur og fyrstu félagar UNIFEM hittust oftast á kaffistofum í upphafi enda höfðu þær ekki fundar- eða skrifstofuaðstöðu á þeim tíma. Kornhlaðan var vinsæll fundarstaður. Fljótlega fengu þær þó aðstöðu og skáp undir fundargögn í Kvennahúsinu að Vesturgötu 3. Síðar leigðu þær fundarherbergi og vinnuaðstöðu á Vesturgötu en þá höfðu þær fengið styrk frá félagsmálaráðuneytinu til reksturs félagsins. Sæunn og Kristjana Milla ferðuðust talsvert til annarra ríkja Norður- landa til að kynna sér starfsemi UNIFEM. Ferðalögin voru öll á þeirra eigin kostnað og töldu þær ekki eftir sér að greiða fyrir ferðalögin úr eigin vasa. „Þetta var hugsjónastarf og við ferðuðumst til að kynnast öðrum konum sem unnu með UNIFEM og til að kynna okkur starfsemi félaganna.“ Þær Sæunn og Kristjana Milla kváðust sakna þeirrar samstöðu sem ríkti á kvennaáratugi Sameinuðu þjóðanna. Samhugur og samheldni sem þá ríkti virðist búinn að vera, að minnsta kosti í bili. Boðað var til blaðamannafundar í Rúgbrauðsgerðinni og til stofnfundar UNIFEM á Hallveigarstöðum 18 í desember árið 1989. Til stofnfundarins voru boðaðar konur úr öllum helstu kvennahreyfingum og kvennaklúbbum þess tíma. Nokkrir karlmenn sóttu einnig fundinn sem var fjölmennur. Phoebe Muga Asiyo flutti ávarp og sýndar voru myndir frá þróunarstarfi UNIFEM. Frú Asiyo hitti einnig embættismenn og stjórnmálamenn meðan hún dvaldist hér á landi. Framhaldsstofnfundur Félags UNIFEM á Íslandi var svo haldinn á Hótel Holiday Inn 24. október 1990. Rósa Erlingsdóttir, núverandi formaður UNIFEM á Íslandi (talið frá hægri) og Edda Jónsdóttir stjórnarkona spjalla við Kristjönu Millu Thorsteinsson og Sæunni Andrésdóttur, stofnendur landsfélagsins og Sigríði Guðmundsdóttur, fyrrverandi formann. Ljósm ynd : Eyjólfur V . V altýsson/N am ib ía Ljósm ynd ari: Sig urður Jökull 22

x

Tímarit UNIFEM

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit UNIFEM
https://timarit.is/publication/1156

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.