Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Page 27
vinnur UNIFEM að því að auka almennan skilning á kynbreytunni í
stefnumótun alþjóðlegra stofnanna eins og Alþjóðabankans og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins (IMF).
Félagslegar aðstæður í efnahagslegri ákvarðanatöku, t.d. orðræða og
karlaklúbbar, í alþjóðastofnunum hefur oft takmarkað getu kvenna-
hreyfinga til að taka þátt í ákvörðunum. Stjórnmálamenn hafa verið
tregir til að viðurkenna að kynbreytan skiptir máli. Þetta hefur haft þær
afleiðingar að teknar hafa verið ákvarðanir sem kallast geta kynblindar og
hafa margar þeirra haft mjög slæm áhrif á stöðu kvenna.
Bent hefur verið á að alþjóðleg stefnumótun þurfi að taka tillit til starfa
kvenna sem þær fá ekki greidd laun fyrir. Þessi störf hafa gjarnan verið
nefnd umönnunarstörf, svo sem uppeldi og umsjón barna, heimilisverk og
umönnun sjúkra og eldri ættingja. Algengt er að konur í þróunarlöndum
starfi við landbúnað eða verslun sem er hluti af fjölskyldurekstri og fái
því ekkert greitt fyrir vinnu sína. Þá eru konur líklegar til að verða verr
úti vegna niðurskurðar í félags- og heilbrigðismálum vegna launaleysis
og umönnunarhlutverks þeirra. Þar sem ekki er tekið tillit til ógreiddrar
vinnu þeirra sést ekki hve mikið þær leggja til og því er síður komið til
móts við þarfir þeirra.
Kynlæg fjárlög
Ein leið til að stuðla að auknu efnahagslegu öryggi kvenna er gerð kyn-
lægra fjárlaga (Gender Responsive Budgets). Ríkisfjárlög fela í sér pólit-
ískar yfirlýsingar stjórnvalda því þær endurspegla áherslur í félags- og
efnahagsmálum. Kynlæg sjónarmið eru mikilvæg því þau stuðla að því
að stjórnvöld standi við skuldbindingar sem þau hafa gert til að koma á
jafnrétti kynjanna og tryggja mannréttindi kvenna.
Kynlæg greining á opinberum fjárlögum (Gender Responsive Budget
Analysis) miðast að því að henda reiður á hversu mikið af útgjöldum
ríkisins fara í málefni sem snerta konur og stúlkur, samanborið við karl-
menn og drengi. Með slíkri greiningu er þó ekki átt við að gerðar séu
fjárhagsáætlanir sérstaklega fyrir konur, né heldur að auka eigi útgjöld til
sértækra verkefna kvenna.
Markmiðið er öllu heldur að sjá til þess að réttindi kvenna og stúlkna
séu í heiðri höfð og að þær hafi aðgang að menntun, heilbrigðisþjónustu,
atvinnu og mörkuðum. Markmið UNIFEM er að veita stjórnvöldum
aðstoð og aðhald við gerð slíkra fjárhagsáætlana.
Kynlæg greining á fjárhagsáætlunum þrýstir einnig á stjórnvöld að
standa við samninga um jafnrétti kynjanna og mannréttindi kvenna,
eins og alþjóðasamninginn um afnám alls misréttis gegn konum
(Convention on the Elimination of All Discrimination Against Women,
CEDAW). Þetta er gert með því að tengja kynjasjónarmið við úthlutun
almannafjár.
UNIFEM styður í auknu mæli slík verkefni með það að augnamiði
að stuðla að auknu gegnsæi og ábyrgð alþjóðlegra stofnana, fyrirtækja
og yfirvalda.
Með stuðningi UNIFEM hafa verið gerðar rann-
sóknir á lagaumhverfi ríkja í Andesfjöllum sem
hafa áhrif á efnahagsleg, félagsleg og menningar-
leg réttindi kvenna. Rannsóknirnar munu hjálpa til
við að auka þekkingu fólks á þessum málefnum á
svæðinu.
Í Suður-Asíu hefur verið tekið saman gagnasafn um
konur sem vinna á heimilum annarra í Nepal, Sri
Lanka og Pakistan. Gagnasafnið veitir mikilvægar
upplýsingar um réttarstöðu þessara kvenna og
munu upplýsingarnar sömuleiðis vera gagnlegar til
að upplýsa stjórnvöld um rétt og réttleysi þeirra.
Þá verður ef til vill hægt að koma í veg fyrir að
vinnuveitendur notfæri sér bága stöðu kvenna,
sem hefur verið mjög algengt á þessu svæði.
Í Póllandi, Búlgaríu og Kasakstan hefur verið gerð
úttekt á menntun og hæfni atvinnulausra kvenna og
kvenna í láglaunastöðum í ákveðnum geirum. Úttektin
verður notuð til grundvallar áætlunum sem miða að
því að auka getu og fjölga tækifærum kvenna á vinnu-
markaði þessara ríkja ásamt því að varpa ljósi á hindr-
anir sem standa í vegi þeirra.
Þá hefur UNIFEM unnið að því að efla stöðu athafna-
kvenna, framleiðenda og verkakvenna víða um heim.
Í Ghana og Nígeríu hefur til dæmis verið lögð áher-
sla á að auka framleiðslugetu dreifbýliskvenna. Fram-
leiðsla nígerískra kvenna á kassavarótinni jókst um
600% þegar framleiðslan var vélvædd og samvinna
nágrannasamfélaga var aukin. Í kjölfarið hefur staða
þessara kvenna batnað til muna og áhrif þeirra í sam-
félaginu aukist.
Ljósmyndir: Að ofan fyrir miðju; Róshildur Jónsdóttir/Kína. Hinar myndirnar eru úr myndabanka UNICEF: t.v. UNICEF/ HQ03-0298/Christine Nesbitt og t.h. UNICEF/ HQ02-0111/Susan Markisz
26 27